Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 10
10 20. desemberFRÉTTIR AF HVERJU ÆTTI EINHVER AÐ VILJA MIG? n Eva var 34 ára þegar hún lét æskudrauminn rætast n Eini Íslendingurinn með sjaldgæfan augnsjúkdóm E va Óskarsdóttir var 34 ára gömul, tveggja barna móðir þegar hún tók þá ákvörðun að láta æskudrauminn rætast og skella sér í leiklistarnám. Hún hefur farið með aðalhlutverk í kvikmynd og lauk nýlega framleiðslu á annarri þar sem hún fór einnig með hlutverk. Saga Evu er áminning um að við erum skaparar í eigin lífi. Eitthvað vantaði Árið 2010 hafði Eva verið búsett í Austurríki um árabil ásamt þarlendum eiginmanni og tveimur börnum. Hún rak farsælt fyrirtæki á sviði menntunar og hafði komið sér vel fyrir í lífinu en fann að eitthvað vantaði. „Ég var eins og svo margar íslenskar konur. Við eigum það til að vinna eins og brjálæðingar. Á þessum tíma var ég ekkert að pæla í sjálfri mér og hugsaði bara að ég yrði að sýna öllum hvað ég kynni; ég væri einskis virði ef ég væri ekki að vinna eins og vitleysingur. Ég var komin með einhverja 250 kúnna, fjölda starfsmanna og staðan var þannig að ég þurfti annaðhvort að minnka við mig eða stækka við mig. En ég vissi að þetta var ekki minn draumur. Minn draumur var alltaf leiklist. En ég hafði alltaf lokað á leiklistina, ég var svo hrædd við það. Af hverju ætti einhver að vilja mig?“ segir Eva í samtali við blaðamann. Mér skilst að þetta ár hafir þú greinst með ólæknandi augnsjúkdóm. „Já, ég er víst eini Íslendingurinn sem er með þennan sjúkdóm. Þarna fékk ég að vita að það væri ekki víst hversu lengi ég myndi hafa sjón. Það er víst mjög misjafnt hvernig þetta er hjá þeim sem eru með þennan sjúkdóm,“ segir Eva en hún notar linsur í dag og er með rúmlega 70 prósenta sjón á vinstra auganu. Sjúkdómsgreiningin skapaði þrýsting á Evu um að fara að lifa í núinu. „Ég varð svo rosalega hrædd, enda með tvö ung börn. Ég ætlaði ekki að verða blind, það kom ekki til greina. En á endanum reyndist þessi sjúkdómur vera mín blessun. Þetta hristi upp í mér og fékk mig til að horfa á líf mitt. Ég var 34 ára, með fyrirtæki sem gekk vel, ég var með fjölda fólks í vinnu, ég átti tvö heilbrigð börn, ég var í hjónabandi sem virkaði. En ég var ekki hamingjusöm. Mér fannst ég vera föst. Og ég hafði einhvern veginn ekki gert mér grein fyrir því fyrr en þarna. Það vantaði eitthvað.“ Eldri en sumir kennararnir Eva rifjar upp atvik sem átti eftir að hafa djúpstæð áhrif á hana. Hún var stödd á Íslandi ásamt eiginmanni og börnum og þau fóru með fjölskyldu Evu í sumarbústað. „Allt í einu missti ég sjónina á vinstra auga og allt varð svart. Ég varð skíthrædd. Ég bað manninn minn að fara og ná í strákinn okkar, vegna þess að ég fann fyrir sterkri löngun til að vera ein. Ég fór út í náttúruna, sat þar alein og grét og grét, talaði við guð og alheiminn og lofaði að ef ég fengi sjónina aftur þá myndi ég taka til í lífi mínu, ég myndi passa sjálfa mig. Sjónin kom aftur. Ég grét þetta burt.“ Í kjölfarið seldi Eva fyrirtækið og það gerði henni kleift að fjármagna nám í leiklistarskóla í Austurríki. „Ég var náttúrlega langelst af öllum í bekknum, flestir voru í kringum 18, 19 ára. Ég var meira að segja eldri en sumir af kennurunum! Margir tímar voru mjög erfiðir og ég efaðist um sjálfa mig. Oft langaði mig að gefast upp. Það kom auðvitað upp þessi rosalega hræðsla: hræðslan við að eldast, hræðslan við að vera ekki lengur átján ára,“ segir Eva en hún tekur undir með að konur verði mun oftar fórnarlömb aldursfordóma en karlar. Á meðan eldri karlmenn mega safna gráu hári mega konur varla fá hrukkur. „Ég hugsaði loks með mér: „Jæja Eva, þá verður þú bara þessi sem ryður brautina, þú verður þá bara fyrirmynd fyrir hina. Þessi sem finnur sína leið.“ Eftir að ég lauk náminu í Austurríki þá fann ég á mér að ég þyrfti að fara á aðra staði, kynnast öðru fólki, frá meiri hreyfingu á líf mitt. Þannig að ég fór til Þýskalands og Ítalíu og sótti námskeið þar. Og síðan fór ég til Los Angeles.“ Misjöfn viðbrögð frá fólki Eva fékk mismunandi viðbrögð þegar hún sagði fólki frá sínum áformum. „Ég fékk til dæmis að heyra hvernig móðir og eiginkona ég væri eiginlega, hvaða móðir færi svona frá börnunum sínum? Ein kona hló upp í opið geðið á mér þegar ég sagði henni að ég væri að fara til útlanda að læra leiklist.“ Hún segist heppin að hafa fengið óendanlegan stuðning frá eiginmanninum. „En auðvitað var þetta erfitt fyrir hann, og okkur. En hann var tilbúinn að vinna í þessu með mér. Við eigum tvö börn saman og við viljum að þau eigi góða fyrirmynd í mömmu sinni.“ Eva hefur nú farið fjórum sinnum til Los Angeles þar sem hún hefur dvalið í minnst sex vikur í senn, og sótt leiklistarnámskeið þar í borg. Hún hyggst fara aftur á næsta ári. „Þeir sem ég kynntist í náminu voru bæði eldri og yngri en ég. Það kom mér á óvart. Margir þarna í Los Angeles eru búnir að reyna í mörg ár að komast að í bransanum, en eru búnir að gefast upp. Þetta er bara of mikið. Fólk verður þreytt og útbrunnið. Það er að bíða eftir þessu „big break“ sem er eiginlega ekki til. Þarna kom ég, 37 ára gömul, með mína orku og ég fann að fólk var hrifið. Ég er eiginlega að byrja sem „newbie“ á tíma þar sem aðrar leikkonur eru að hætta. Konur sem kannski byrjuðu 18 ára, en eru núna búnar að gefast upp.“ Dulbúin blessun Eva hefur farið í nokkrar áheyrnarprufur í Bandaríkjun- um en sumarið 2017 skráði hún sig á síðu fyrir leikara í borginni. Tveimur dögum síðar fékk hún boð í áheyrnarprufu fyrir stutt- mynd og fékk hlutverkið. Við tökurnar á þeirri stuttmynd kynntist Eva leikstjóra frá Hong Kong að nafni Woo Kwan og kom þá upp úr kafinu að Kwan var að leita að leikkonu fyrir spennu- tryllinn Angels Never Cry. Eva fór í prufu og hlutverkið var hennar. Tökur fóru fram á Íslandi í mars á seinasta ári en Eva fer með hlut- verk listakonunar Theresu, sem berst við sjúkdóm sem gæti svipt hana sjón fyrir fullt og allt. Í dag hefur Eva nýlokið vinnu við kvikmyndina The Darker the Lake í Austurríki þar sem hún fór einnig með aukahlutverk; lögreglustjóra. Um er að ræða „mystery thriller“ og kínversk/ bandaríska/austurríska samframleiðslu. Stefnt er á frumsýningu á næsta ári. „Þótt ótrúlegt megi virðast þá varð þessi blessaði augnsjúkdómur það besta sem gat komið fyrir mig. Ég er svo þakklát. Mér finnt svo mikilvægt að við, og sérstaklega konur, leyfum okkur að vera góð við okkur sjálf. Leyfum okkar að vera sjálfselskar. Ég hélt afar lengi að ég væri ekki nógu góð, og ekki nógu þetta eða hitt.“ Eva leggur áherslu á að það sé aldrei of seint að láta drauma rætast og að hindranirnar séu fyrst og fremst í okkar eigin höfði. „Ef þú losnar ekki við þennan draum úr hausnum á þér, þá skaltu elta hann. Bara „go for it.“ Sama þótt þú sért tvítug, eða sextug, eða áttræð. Við lifum miklu lengur núna en áður. Ég er bara rétt að byrja!“ n Óvænt sjúkdómsgreining átti eftir að verða mikil blessun í lífi Evu. Tökur á Angels Never Cry fóru fram á Íslandi á síðasta ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.