Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 70
70 FÓKUS 20. desember
YFIRHEYRSLAN
Hvar líður þér best?
Allir sem þekkja mig vita svarið við þessari spurningu. Mér líður
best á Tálknafirði, heimabænum mínum, sama hvernig viðrar,
sama hvaða árstíð er, í Pollinum, í sundlauginni, úti í Móa, uppi á
Tungufelli eða heima hjá Jóhönnu frænku. Náttúran og kyrrðin
fyrir vestan dregur mann niður á jörðina og minnir man á hversu
lítill maður er í raun og veru.
Hvað óttastu mest?
Að deyja í flugslysi eða náttúruhamförum, stríði eða hryðju-
verkaárás. Vil ekki deyja horfandi á aðra deyja. Það er mjög
skuggalegt. Svo er ég líka hræddur við fólk sem heldur að það
sé yfir aðra hafið bara vegna þess að það fæddist á þessari
breiddargráðu jarðarinnar.
Hvert er þitt mesta afrek?
Ómar Orðabelgur. Að ég hafi fengið tækifæri til að skrifa og leika
fyrir börn úti um allt land er ótrúlega gefandi. Ekkert er betra en
hamingjusöm börn.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér?
Umönnun á næturvakt á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Það er eflaust skrýtnasta en jafnframt fallegasta starf sem ég
hef unnið. Ég fékk að kynnast svo mörgum fallegum sálum rétt
áður en þau kvöddu þessa tilveru. Kynntist einum háöldruðum
ljósmyndara sem hafði tekið ljósmyndir af móðurfjölskyldu
minni á Sellátranesi í Patreksfirði, mamma var þá lítil stelpa.
Hann tók mynd af mömmu og sonur hennar hjálpaði honum að
kveðja þennan heim. Fallegt.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Frá Tálknafirði til Teheran.
Hvernig væri bjórinn Gunnar Smári?
Forðist innihaldið.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
„Jæja Gunnar minn, þú ættir að hætta að drekka“.
Hvert er leiðinlegasta húsverkið?
Að þurrka bleytu með tusku sem hrindir frá sér vatni.
Besta bíómynd allra tíma?
Offret eftir Andrei Tarkovsky, svo líka allt með Tom Hanks.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir?
Að klára helvítis bílprófið. Bið ekki um meira.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið?
Að horfast í augu við sjálfan mig og viðurkenna fyrir sjálfum mér
að ég er alkóhólisti.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
„Tíminn læknar öll sár“. Vigdís Finnbogadóttir sagði eitt sinn í
viðtali: „Tíminn læknar engin sár en kennir manni að lifa með
þeim“.
Hvað getur þú sjaldnast staðist eða ert góður í
að réttlæta að veita þér?
Áfengi, en ég er að vinna í því.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er að leika í Þjóðleikhúsinu ásamt því að skrifa skáldsögu sem
ég vona innilega að fólk hafi áhuga á að lesa. Svo er ég spenntur
yfir því að Age of Empire 4 er að koma út!
Gunnar Smári Jóhannesson kemur frá
Tálknafirði en hann starfar um þessar
mundir sem leikari í Þjóðleikhúsinu sam-
hliða því að skrifa handrit. Gunnari Smára
þykir fátt skemmtilegra en að gera upp
gömul húsgögn en hann segir leiðinlegasta
húsverk í heimi vera að þurrka upp bleytu
með tusku sem hrindir frá sér vatni. Gunnar
Smári er í yfirheyrslu helgarinnar.
Besta ráðið
að hætta
að drekka
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
Gunnar Smári
Jóhannesson
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N