Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 48
48 FÓKUS 20. desember
forlag kynnir nýjar bækur
Hér segir frá nótabáti Tálknfirðings BA 325, sem breyttist
í glæsilegt víkingaskip á Þjóðhátíð Vestfirðinga 1974,
og sigldi þöndum seglum á slóðum Flóka Vilgerðarsonar
í Vatnsfirði.
Ennfremur:
Forlagsverð kr. 3.500
Forlagsverð kr. 1.000Forlagsverð kr. 1.500
• Smásögur
• Í grautarskóla hjá Þorbjörgu,
• Ágrip af sögu harmonikunnar
• Mótun Vestfirðingsins
• Þættir af leikstarfi
• Sr. Jón Kr. Ísfeld
Handbók
fyrir
heldra fólk
Um ástina,
lífið og ellina
Speki og spaug
Vasabækur Flóka - Fást í bókabúðum
Fyrir dreifbýlið: Pantið frá forlagi, sími: 892 0855, flokiforlag@internet.is
Póstkostnaður innifalin í verði.
Vasagrín
fyrir golfara og
guðhrætt fólk
Golfsögur, brandarar
heilræði og hrekkir
Eftirminnileg jólagjöf
í skugga skilnaðar
n Þekktir Íslendingar segja frá eftirminnilegum jólagjöfum
n Hallgrímur hélt að mamma ætlaði að eyðileggja jólin n Bónorð um jól
N
ú er orðið ansi stutt í jólin og þeim fylgja einlægar og fallegar
gjafir frá okkar nánustu. Gjafir geta verið alls konar og þurfa
ekki að kosta heilan handlegg. Bestar eru gjafirnar sem koma
beint frá hjartanu, eins og frásagnir viðmælenda DV bera vott.
„Jólin 1988. Eftir jólasteikina kallar mamma á mig og biður mig
að koma með sér inn í herbergi af því hún ætli að segja mér svo
lítið. Hún sest rólega á rúmið og ég verð alveg brjálaður og segi:
„Ég veit alveg hvað þú ert að fara að segja mér.“ Mamma skildi ekki
neitt og ég hélt áfram: „Heldurðu að ég viti það ekki, þú ert ólétt
eina ferðina enn. Á að eyðileggja fyrir manni jólin?“ Ég hafði nefni
lega eignast systkini tvö ár í röð 1987 og 1988. Mamma gjörsam
lega sturlaðist úr hlátri yfir öskrunum í mér og kom ekki upp orði.
En hún kallaði mig inn í herbergi svo pabbi gæti komið jólagjöfinni
minni fyrir undir trénu en það var risa hljómborð sem mig hafði
dreymt um.“
Hallgrímur Ólafsson leikari
„Besta jólagjöfin mín var á jólunum 1998 og kom frá dóttur
minni sem þá var 14 ára, nýflutt heim til Íslands frá Svíþjóð eftir
sjö góð ár þar sem hún elskaði lífið. Hún tókst á við breytingarn
ar og aðlagaðist íslensku skólakerfi hratt, en auðvitað saknaði
hún vina sinna úti í Svíþjóð. Foreldrarnir höfðu ákveðið að slíta
hjónabandi sínu og það vissi hún. Eins skelfilega erfitt og það er
að skilja fyrir hjón er það oftast martröð fyrir börnin, það sá ég
síðar betur og betur. En samt var skaðinn skeður og þessi síðustu
jól okkar saman gefur hún mér myndaalbúm sem hún hafði
búið til og týnt úr fjölskyldualbúmum myndir af okkur á öllum
yndislegu stundunum í fjölskyldulífinu. Yfir hverri mynd var fal
legur texti um hvað hún elskaði fjölskylduna sína, pabba sinn
og mömmu og bræður sína. Ég opnaði gjöfina en treysti mér
ekki í að lesa textann við allar myndirnar fyrr en ég hafði endan
lega skilið. Öll jól síðan les ég textana og þakka Guði fyrir börn
in mín og föður þeirra og bið hann að sýna krökkunum að þau
eru elskuð af öllu fólki en mest þó af hvert öðru og okkur pabba
og mömmu. Nú er ég með henni að pakka inn jólagjöf á fallegu
heimili hennar þar sem við ræðum það gamla og góða og leggj
um drög að jólunum saman með hennar börnum og yngri bróð
ur hennar. Ég hef þá skoðun að þegar fólk á börn ætti það að
reyna mikið og lengi að laga allar sprungur í hjónabandinu, því
sársaukinn er slíkur hjá börnum þótt hann komi seint, því í áfalli
deyfir fólk sársaukann. Börn eru alltaf blessun og nú þegar mín
eru öll í góðu starfi gáfu þau mér nú í jólagjöf nýjan síma, þar
sem minn var hættur að hringja, sú gjöf er líka fín en mynda
albúm dóttur minnar um hamingjudag fjölskyldunnar okkar
fyrir skilnaðinn mun alltaf standa uppúr.“
Jónína Ben, kennari og detox-drottning
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
„Ég var tekin í helgarferð til Brighton um jólin í fyrra og grunlaus
um hvað koma skyldi gekk ég um ströndina með kærastanum
mínum þegar hann óvænt féll á kné og poppaði upp stóru spurn
ingunni, bara um leið og sólin var að setjast. Já, ég er sko ekkert að
grínast með þetta. Mér leið alveg eins og prinsessu í rómantískustu
gamanmyndinni. Bíómyndaklisjan var tekin alla leið við mikinn
fögnuð míns og verður sú minning ávallt flokkuð sem uppáhalds
jólagjöfin mín. Annars finnst mér ofsalega gaman að fá tilbúnar
jólagjafir frá börnunum mínum, þær eru alltaf langskemmtileg
astar.“
Hildur Magnúsdóttir leikkona
Á að eyði-
leggja fyrir
manni jólin?
Hamingjudagur
fyrir skilnað
Bíómyndaklisjan alla leið