Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Blaðsíða 68
68 FÓKUS 20. desember GODDI.IS Auðbrekku 19 - kópAvogi - S. 544 5550 Sauna- og gistitunnur ásamt viðarkyntum pottum Sjáðu úrvalið á goddi.is Margar gerðir Eigum fjórar stærðir af lokum á lager í gráum og brúnum litum Verð aðeins 58.500 kr. Eigum fjórar stærðir af lokum á lager í gráum og brúnum litum Verð frá 58.500 kr. Einn dagur í ísverksmiðju n Á aðventunni er mest aukning í boxaís n Ísblómið lifir sterkt í hjörtum Íslendinga E mmessís verður 60 ára á komandi ári og er það elsti starfandi ísframleiðandi á landinu. Pálmi Jónsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segist hafa það að leiðarljósi að láta aldrei staðar numið en nýverið var allur boxaís færður í umhverfisvænni umbúðir. DV fékk að vera fluga á vegg meðan fram- leiðsla á jólaísnum stóð sem hæst. Þrátt fyrir að verksmiðja Emmessíss þekki tímana tvenna fullyrðir Pálmi að ástríða starfsfólksins hafi alltaf einkennt fyrirtækið. „Metnaðurinn fyrir því að búa til góðan, íslenskan, ósvikinn, gæða rjómaís fyrir Ís- lendinga hefur ætíð verið í fyrirrúmi. Ég leyfi mér því að segja að mannauðurinn sé búinn að reynast Emmessís ómetanlegur og í raun megin ástæða þess að fyrirtækið standi jafn sterkt og það gerir í dag.“ Pálmi viðurkennir að jólin séu annasamur tími og enginn vafi leiki á því hvaða jólaís sé í uppáhaldi hjá ís- lensku þjóðinni. „Á aðventunni er mest aukning í boxa- ís hjá okkur en í byrjun mánaðarins breyttum við öllum boxaís í umhverfisvænni umbúðir. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og það er greinilegt að Íslendingar láta umhverfismál skipta sig miklu máli. Það endurspeglast í aukinni sölu á vörum sem eru í umhverfisvænni um- búðum. Enginn vafi leikur á því að ísblómið lifir sterkt í hjört- um Íslendinga og eru yngri kynslóðirnar að viðhalda blóminu sem hluta af jólunum. Svo er það Hnetu- toppurinn sem er elsti og vinsælasti ísinn okkar, Ís- lendingar virðast ekki fá neinn leiða á því að borða hann. Eitt af stóru áhersluatriðum hjá mér, eftir að ég tók við starfi framkvæmdastjóra, er að Emmessís eigi að vera leiðandi á sínum markaði og aldrei að láta staðar numið. Sem dæmi um það má nefna að í sumar hóf- um við framleiðslu á nýrri bragðtegund af Djæf, en eins komu á markaðinn nýir laktósafríir íspinnar hjá okkur. Í haust tókum við svo við sölu og dreifingu á Haagen Dazs en frá og með 1. janúar 2020 mun Emmessís sjá um sölu og dreifingu á Ben & Jerry’s- og Magnum-ís á Íslandi. Einnig eru fleiri nýjungar í pípunum en ekki tímabært að flagga þeim á þessum tímapunkti.“ Aðspurður hver sé hans eftirlætisís viðurkennir Pálmi að vera einn þeirra ótal mörgu sem hrífast af gæð- um ísblómsins. „Það er engin tilviljun að ísblómið njóti mestra vinsælda enda verður líklega vandfundinn sá ís sem neytendur hafa meiri skoðanir á. Þess vegna gefst ekki rými fyrir neinar breytingar þar. Fólk hefur meira að segja miklar skoðanir á því hvernig eigi að borða ís- inn, hvort það eigi að brjóta súkkulaðið í köntunum eða borða sultuna fyrst. Sumir vilja meina að það sé snið- ugt að hita botninn fyrst og ná því þannig út með því að hvolfa út úr skálinni en sjálfum finnst mér best að lygna aftur augunum og skófla því þannig í mig.“ n Íris Hauksdóttir iris@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.