Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Qupperneq 31
KYNNING LINDARFISKUR - Ferskasti fiskurinn á landinu Lindarfiskur er lítið fjölskyldufyrirtæki staðsett í Meðallandinu rétt austan við Vík. „Móðir mín er frá þessari jörð og er staðurinn algerlega einangraður. Aðalverðmætin á jörðinni er allt þetta tæra lindarvatn sem streymir hér beint úr eldhrauninu og því er staðurinn fullkominn fyrir bleikjueldi,” segir Drífa Bjarnadóttir, einn eigandi Lindarfisks. „Við fjölskyldan eigum og rekum Lindarfisk saman. Það eru ég og maðurinn minn, Árni Jóhannsson, systir mín, Sigrún Bjarnadóttir, og foreldrar okkar, þau Helga Ólafsdóttir og Bjarni Jón Finnsson,” segir Drífa. Alger sjálfbærni Fyrstu bleikjuhrognin voru tekin hjá fyrirtækinu árið 2011 og síðan þá hefur Lindarfiski svo sannarlega vaxið fiskur um hrygg. „Við stefnum að algerri sjálfbærni og gerum því allt sjálf. Nýlega fengum við okkur svín sem éta nánast allan afskurðinn af bleikjunum og afgangurinn er svo notaður í áburð. Fiskinn vinnum við alfarið á svæðinu. Það hefur gengið hægt en örugglega að koma fyrirtækinu á þann stað sem það er í dag og munum við von bráðar selja vörur okkar í stórmarkaði. Við höfum meðal annars hannað neytendaumbúðir sem eru svartar og nær ógegnsæjar til þess að stuðla að ferskari og betri vöru. Að auki höfum við hugsað okkur að fara í útflutning á eldisbleikju, enda erum við með ótrúlega ferska vöru í höndunum.” Tærasta vatnið, ferskasti fiskurinn „Við leggjum mjög mikið upp úr ferskleika, það er eitthvað sem við getum bara alls ekki slegið af hérna hjá Lindarfiski. Hrognin fáum við frá kynbótastöðinni á Hólum í Hjaltadal sem framleiðir fyrsta flokks hrogn. Þau ölum við svo hér í Meðallandinu í kerjum og svokölluðum lengdarstraumsrennum. Hér rennur ferskt og tært vatn beint úr lindaruppsprettum og fiskurinn er eins ferskur og getur orðið.” Hafðu samband „Við erum aðallega að selja bleikju til veitingastaða sem undantekningalaust lofa bleikjuna okkar í hástert,” segir Drífa. Enn sem komið er selur Lindarfiskur ekki vörur í stórmörkuðum en til þess að versla beint við Lindarfisk er hægt að hringja í Drífu í síma 663-4528 eða senda henni netpóst á drifa@ lindarfiskur.com. Nánari upplýsingar má nálgast á lindarfiskur.com eða Facebook: Lindarfiskur. Einnig heldur Lindarfiskur úti síðu á Instagram: lindarfiskur, sem er stórskemmtilegt að fylgjast með. Drífa Bjarnadóttir og Bjarni Jón Finnsson. Bleikja er alltaf góð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.