Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 21
1. nóvember 2019 FRÉTTIR 21
hægt væri að gefa út ákæru svo
þeim félögum var að lokum
sleppt. Framburður fyrrnefndra
vitna var ekki staðfestur. Hvarf
Valgeirs er enn óupplýst.
Dauðahúsin
Um áramótin 2005/2006 fjallaði
DV um svonefnd „dauðahús“ á
Hverfisgötu. Þrjú hús, þar sem
fjórir einstaklingar, sem allir
glímdu við fíkn, létust á innan við
ári. Tvö húsanna voru í eigu fyrir
tækisins Stafna á milli ehf., sem
var verktakafyrirtæki Engilberts.
Þriðja húsið var í eigu Frakkastígs
ehf., sem Engilbert virtist hafa
aðkomu að samkvæmt frásögn
vitna sem DV ræddi við. Engilbert
þvertók þó fyrir aðkomu sína en
þegar framburður vitnis var bor
inn undir hann fór hann undan í
flæming: „Ég vil ekki tala við ykk
ur,“ sagði Engilbert og skellti á
blaðamann.
DV greindi
jafnframt frá því að 30. desem
ber 2005 hafi Engilbert sent áð
urnefndan Ársæl Snorrason til
að hreinsa út úr dauðahúsunum.
Fullyrtu viðmælendur DV að út
burðaraðgerðir hafi verið harka
legar. Þegar fyrirhugaður útburð
ur á leigjendum dauðahúsanna
fréttist var haft samband við Eng
ilbert og var þá lítið um svör.
„Haltu kjafti,“ sagði Engilbert og
skellti á. Einnig var haft samband
við Ársæl sem sagði: „Ég vinn fyr
ir hann [Engilbert], ég var beðinn
um að sjá um þetta.“
Ársæll lést árið 2013.
Glaðheimaævintýrið
Aðeins þremur árum eftir að
hann losnaði úr gæsluvarðhaldi
vegna gruns um aðild að hvarfi
Valgeirs Víðissonar var Engilbert
orðinn umsvifamikill í íslensku
atvinnulífi og tók meðal annars
þátt í svonefndu Glaðheima
ævintýri í Kópa
vogi, braski með
lóðir undir hest
hús á svæði Gusts
sem endaði með
að kosta Kópa
vogsbæ fleiri millj
arða. Engilbert var
ítrekað bendlaður
við kaup á hest
húsum á svæðinu.
Árið 2006 reyndi
Fréttablaðið að
ná tali af Engilbert þegar grun
ur hafði vaknað um að kaup
verð kaupsamninga við hest
húsaeiganda væri skráð lægra en
raunverulega hefði verið greitt.
„Ég hef ekki tíma til að tala við
þig,“ sagði Engilbert við blaða
mann og skellti svo á.
Í maí 2006 greindi DV frá því
að Engilbert væri eigandi um 40
prósenta hesthúsanna og ætlaði
sér að kaupa þau öll til að þróa
þar íbúðabyggð.
Vatnsendamálið
Flestir Íslendingar hafa heyrt sög
ur af Vatnsendamálinu fræga. Mál
ið varðaði harðar deilur erfingja
Sigurðar Hjaltested um jörð á
Vatnsenda sem Þorsteinn Hjalte
sted hafði fengið í sinn hlut vegna
erfðaskrár frá árinu 1938. Aðrir
erfingjar Sigurðar hafa barist hart
fyrir því að fá viðurkennt að Þor
steinn væri ekki réttmætur erfingi
jarðarinnar og unnu mál sitt fyrir
Hæstarétti árið 2015. Kópavogsbær
hafði tekið stóra hluta jarðarinnar
eignarnámi í gegnum árin og greitt
eignarnámsbætur fyrir til Þorsteins
en eins hafði Þorsteinn selt hluta
jarðarinnar sjálfur. Meðal annars
til Engilberts. Engilbert hugðist þar
reisa fjögur einbýlishús en áform
in strönduðu þegar ekki fengust til
skilin leyfi hjá Kópavogsbæ. Kaup
verð jarðarhluta Engilberts nam
um 80 milljónum króna.
VBS fjárfestingarbanki
Engilbert fékk umfangsmiklar lán
veitingar frá VBS fjárfestingar
banka í gegnum eitt eða annað
af þeim fjölmörgu fyrirtækjum
sem hann hefur haft aðkomu að í
gegnum tíðina. Nokkur dæmi um
fyrirtæki sem Engilbert tengist eða
hefur tengst eru Ferjuholt ehf.,
Uppbygging ehf., JB byggingafé
lag., S23 ehf., Stafna á milli ehf.,
Eignasmári ehf., og Frakkastígur
ehf., en Engilbert fékk einmitt lán
frá VBS til að kaupa JB bygginga
félag, á fjóra milljarða króna árið
2007.
Í gegnum Ferjuholt ehf. fékk
Engilbert lán frá VBS upp á ríf
lega milljarð til kaupa á tæplega
200 hekturum úr landi í Flóanum
á Suðurlandi. Í samtali við Sunn
lenska fréttablaðið sagði Jón Þór
isson, þáverandi forstjóri VBS, að
menn innan bankans hefðu lík
lega vitað um fortíð Engilberts en
fremur horft á hugsanlega ávinn
ing af viðskiptunum.
Lánveitingar VBS til fasteigna
verkefna voru umtalsverðar eða
um 76 prósent af heildarútlán
um bankans. Einn af stórtækustu
viðskiptavinum VBS var Engilbert
og fyrirtæki hans Innova, með
al annars til verkefna sem sem
aldrei voruð kláruð. VBS fór í þrot
árið 2010 en ári fyrr hafði bankinn
þurft að afskrifa um sjö milljarða
króna vegna tapaðra útlána.
Uppbygging á Akranesi
Fyrirtæki Engilberts Uppbygging
ehf. greindi á síðasta ári frá áform
um um að reisa allt að 17 þúsund
fermetra húsnæði á Akranesi und
ir ýmiss konar atvinnustarfsemi.
Áætlaður kostnaður var um fimm
milljarðar króna. Bæjaryfirvöld
Akraness tóku, að sögn Engilberts,
vel í áformin. Nýlega var einnig
greint frá því að Uppbygging hafi
náð samningum um að byggja
Reebok Fitness líkamsræktarstöð
og heilsulind.
Ljóst er að litríkur sakaferill
hefur ekki valdið Engilbert telj
andi vandkvæðum í atvinnulíf
inu og miðað við þær upphæðir
sem fyrirtæki í hans eigu hafa far
ið með, eru þær 24 milljónir sem
honum er gert að sök að hafa svik
ið af skattinum, fremur smávægi
leg fjárhæð. n
Litrík saga grunaðs skattsvikara
n Sakfelldur fyrir ítrekuð umferðarlagabrot, fjársvik, hylmingu og fíkniefnabrot - Umfangsmikill í milljarðaviðskiptum
Valgeir Víðisson og Chevrolet