Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Page 36
Ferðafélag Íslands
Allt frá því að félagið fór af stað með 52 fjalla verkefnið fyrir mörgum árum en það verkefni
hefur stundum verið nefnt móðir
allra verkefna af þeim sem hafa verið
með frá upphafi. Í byrjun hausts voru
kynnt verkefni sem fengu mjög góðar
viðtökur og seldust upp á skömmum
tíma, FÍ Alla leið, FÍ næsta skrefið og
FÍ Landvættir sem er á miklu skriði
um þessar mundir. Tvö önnur verkefni
voru einnig kynnt og enn er laust í þau:
FÍ hálfur Landvættur
Í ár bjóðum við upp á nýjung í
Landvættaverkefni FÍ sem kallast
hálfur Landvættur. Verkefnið
miðar að því að taka styttri
vegalengdir í Landvættaþrautunum
sem eru Fossavatnsgangan,
Bláalónsþrautin, Urriðavatnssundið
og svo Þorvaldsdalsskokkið eða
Jökulsárshlaupið. Þetta er kjörið
tækifæri fyrir þau sem vilja komast
í frábært form í náttúru Íslands
í skemmtilegum og styðjandi
félagsskap með æfingum,
æfingabúðum, keppnum og að öllum
líkindum nýjum vinum.
FÍ Ungvættur
Þá verður einnig boðið upp á FÍ
ungvætti en það verkefni var sett á
laggirnar til að þátttakendur í heilum
og hálfum Landvætti gætu skráð
unglingana sína í sömu þrautir og gert
þetta þannig að fjölskylduverkefni.
Það er fyrir unglinga á aldrinum
12-18 ára og taka þau þá stystu
vegalengdirnar í öllum þrautunum.
Fjallaverkefni Ferðafélags Íslands
Hafa fengið frábærar viðtökur