Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Síða 52
52 FÓKUS 1. nóvember 2019 www.gilbert.is Vínland Gmt VIÐ KYNNUM NÝTT ÚR FRÁ JS WATCH CO. REYKJAVIK Umhverfið sveik þá n Heimildamyndin Tell Me Who I Am er skylduáhorf n Getur eitthvað réttlætt þessa blekkingu? M innisleysi er vinsælt stef í heimi kvikmynda og sjónvarpsþátta, hvort sem það er notað á gam­ ansaman hátt eins og í teikni­ myndinni Finding Nemo og 50 First Dates, eða á dramatísk­ an hátt líkt og gert er í Eternal Sunshine of the Spotless Mind og Memento. Það er engin furða enda þarf drama, vandamál og árekstra til að drífa áfram sögu á hvíta tjaldinu og minnisleysi býð­ ur upp á ógrynni af slíkum andar­ tökum – bæði sorglegum og gam­ ansömum. En hvaða byrði hvílir á herðum ættingja og vina í að upplýsa ein­ hvern nákominn sér sem skyndi­ lega missir minnið, ef fortíðin er nánast of dökk og drungaleg til að tala um? Þetta er siðferðis­ lega spurningin sem velt er upp í heimildamyndinni Tell Me Who I Am sem frumsýnd var á Netflix um miðjan október. Í myndinni er sögðu saga tvíburabræðranna Alex og Marcus Lewis, sem í dag eru á miðjum aldri. Þegar þeir voru átján ára lenti Alex í mótor­ hjólaslysi. Þegar hann vaknaði í sjúkrarúmi mundi hann ekkert sem hafði gerst fram að þeirri stundu. Alls ekki neitt. Eina manneskjan sem hann þekkti var tvíburabróðir hans, Marcus. Hann treysti Marcus til að segja sér allt, rifja upp gamla tíma, sýna sér gamlar myndir og kenna sér á lífið upp á nýtt. Erfið áhorfs Alex tók þá meðvituðu ákvörðun að fegra sannleikann vegna þess að uppvöxtur þeirra bræðra var hryllilegri en orð fá lýst. Hann vildi að bróðir sinn fengi stærstu gjöf sem hann gat veitt honum – að fá að byrja upp á nýtt með hreinan skjöld og hreinan huga. Í hans huga var þetta góðverk. Þegar að Alex hins vegar komst meira og meira á snoðir um að Marcus væri ekki að segja satt upplifði hann svik af hálfu bróð­ ur síns. Hér verð­ ur ekki farið yfir hvað nákvæmlega einkenndi upp­ vöxt þeirra bræðra, enda myndi það eyðileggja fyrir þeim sem eiga eftir að horfa á myndina. Myndin er væg­ ast sagt átakanleg og oft á tíðum er hún erfið áhorfs. Þótt hin rétta fortíð taki ekki á sig skýra mynd fyrr en nokkuð er liðið á myndina liggur ein­ hver hryllileg mara yfir framvindunni og kvíðir mað­ ur nánast fyrir því hver sannleik­ urinn er. Það sem myndin nær að gera listilega vel er að velta upp fyrrnefndri spurningu um siðferði – var það rétt af Marcus að „blekkja“ bróður sinn? Gerði hann það í nafni bróðurástar eða var það hans eigingjarna ákvörðun til að þurfa ekki að endurupplifa sársaukann? Það áhugaverða og góða við slíkar spurn­ ingar er að það er ekkert rétt svar. Ég sveifl­ aðist á milli þess að finnast Alex vera kjáni að vera gram­ ur út í Marcus fyrir að segja ekki satt. Síðan fannst mér algjörlega fáránlegt að Marcus hefði leynt þessu. Þegar sífellt meira af for­ tíðinni kemur í ljós átti sér síð­ an stað viss uppgjöf innra með mér. Ég fann til með þeim báð­ um, bræðrunum. Þetta risastóra leyndarmál og þessi barnæska sem ekkert barn ætti að þurfa að eiga hefur eyðilagt hálft líf þeirra. Þeir eru enn að vinna úr áföllum og enn að reyna að tala saman um hvað gerðist. Þeir gerðu ekk­ ert rangt. Þeir gerðu sitt besta til að lifa af. Það var umhverfið sem sveik þá. Sannleikurinn alltof sár Frásögn bræðranna er ekki ný af nálinni þar sem þeir gáfu sögu sína út sem bók með sama nafni og myndin árið 2013. Saga þeirra hefur hins vegar vakið talsvert meiri athygli í heimildamyndar­ formi, en myndin fór fyrst reisu­ legan hring um kvikmyndahátíðir áður en hún endaði loks hjá Net­ flix. Ég er mjög þakklát fyrir að þessi mynd sé komin í svo mikla og góða umferð um allan heim. Ég mæli hiklaust með henni því hún skilur svo mikið eftir sig. Svo mikið af spurningum og vanga­ veltum. Ég varð oft svo agn­ dofa að ég meira að segja fór að draga í efa að þetta vær satt. Það er líklegast vegna þess að sann­ leikurinn er alltof oft svo sár. Einhverjir gagnrýnendur hafa lastað myndina fyrir þær sakir að aðeins eru tveir viðmælend­ ur til frásagnar – bræðurnir tveir. Mér finnst það hins vegar henn­ ar helsti kostur því stundirnar á milli bræðranna tveggja og nær­ mynd af þeirra sambandi býður áhorfandanum upp á nokkrar af áhrifamestu stundum sem sést hafa í sjónvarpi í langan tíma. n Í stuttu máli: Virkilega vel uppbyggð mynd hjá leikstjóranum Ed Perkins en það er hugrekki bræðranna tveggja, þeirra reynsluheimur og þeirra samband sem gerir myndina einstaka – að algjöru skylduáhorfi. Einkunnir: Metacritic: 69/100 IMDb: 7,8/10 Rotten Tomatoes: 95/100 Ef þú kunnir að meta Tell Me Who I Am, kíktu á þessar … …The Imposter …Extreme Love: Autism …Abducted in Plain Sight …Banaz A Love Story…Deliver Us From Evil Aðgengileg á Netflix Myndin var frumsýnd á streymisveitunni þann 18. október síðastliðinn. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.