Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 6
6 8. nóvemberFRÉTTIR √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjón t Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga √ Bókhald og fjármál √ Húsfélagafundir √ MÍNAR SÍÐUR √ Þjónustusaga húss √ Önnur þjónusta Húsfélagaþjónusta Leiðandi í hagkvæmni og rekstri húsfélaga www.eignaumsjon.is Suðurlandsbraut 30 • Sími 585 4800 PROCAR-MENN REKA BÍLA- SÖLU Í LINDAHVERFINU n Blekktu kaupendur með breyttum kílómetramælum n Til rannsóknar hjá héraðssaksóknara B ílaleigan  Carson hóf ný- lega starfsemi í Akralind í Kópavogi. Að baki henni standa sömu aðilar og stóðu að baki bílaleigunni um- deildu Procar. Uppljóstrun Kveiks Fréttaskýringaþátturinn Kveik- ur upplýsti í febrúar um að bíla- leigan  Procar  hefði átt við kíló- metrastöðu notaðs bílaflota síns til að fá fyrir þá hærra söluverð. Dæmi voru um að kílómetrastaða hefði verið lækkuð um allt að 105 þúsund kílómetra. Gunnar Björn Gunnarsson, forstjóri  Procar, af- þakkaði viðtal við fréttamenn Kveiks en kvaðst ekkert kann- ast við að átt hefði verið við kíló- metramæla. Gögn sem Kveikur hafði undir höndum bentu þó á hið gagnstæða þar sem aðgang- ur Gunnars að tölvukerfi bíla- leigunnar hafði verið notaður til að skrá lækkaða kílómetrastöðu. Einnig sýndu gögn fram á að annar starfsmaður Procar, Smári Hreiðarsson, hafi í tug tilfella hið minnsta breytt stöðu kílómetra- mæla. Í kjölfar  Kveiksþáttar- ins  gaf  Procar frá sér yfirlýsingu þar sem beðist var afsökunar á hátterninu en sömuleiðis fullyrt að fyrrverandi starfsmaður bæri ábyrgð á málinu og ekkert hefði verið átt við kílómetramæla síðan 2015. Einnig var fullyrt að mæl- ar hefðu aðeins verið niðurfærð- ir um 15 til 30 þúsund kílómetra. Í framhaldi af yfirlýsingunni fór Stundin yfir gögn tuttugu bíla Procar þar sem mælunum hafði verið breytt á árinu 2016 og komst að því að mælar voru jafnvel færðir niður um allt að 105 þús- und kílómetra. Yfirlýsing Proc- ar var því í megindráttum röng. Í kjölfar fréttaflutnings ákváðu nokkrir einstaklingar, sem höfðu keypt bifreiðar af Procar með niðurfærða kílómetramæla, að leita réttar síns. Ný bílasala Eigendur Procar eru Gunnar Björn Gunnarsson og Haraldur Sveinn Gunnarsson. Þeir eru nú skráðir eigendur að bílasölu sem hefur hafið starfsemi í Akralind í Kópavogi, Carson ehf. Ekki þurftu þeir að leita langt eftir fram- kvæmdastjóra, en það er áður- nefndur Smári Heiðarsson. Hann er jafnframt sölustjóri og pró- kúruhafi hjá félaginu. Samkvæmt fyrirtækjaskrá var fyrirtækið Carson ehf. stofn- að á árinu 2013. Þá var tilgang- ur félagsins innflutningur,  heild- sala og smásala á hjólbörðum og varahlutum í bifreiðar.  Carson ehf. hafði í upprunalegri mynd hætt starfsemi, en samkvæmt árs- reikningi fyrir árið 2017 var starf- semin engin á því ári. Í september á þessu ári barst Fyrirtækjaskrá þó aukatilkynning og ný sam- þykkt fyrir félagið. Þá höfðu átt sér stað eigendaskipti og skipuð ný stjórn. Nýr tilgangur félagsins er kaup og sala bifreiða, rekstur fasteigna og lánastarfsemi. Procar hélt leyfinu Harðlega var gagnrýnt í júní að Samgöngustofa hafi ekki svipt Procar leyfi, þrátt fyrir að hafa blekkt viðskiptavini sína með breyttri kílómetrastöðu. Stóðu brotin yfir í minnst fimm ár. Hér- aðssaksóknari hefur nú málið til rannsóknar og þykir það mikið að umfangi.  Í rökstuðningi Sam- göngustofu fyrir ákvörðuninni er bent á greinarmun þess að leigja út bifreið og að selja þær. Sam- göngustofa hafi ekki valdheim- ildir gagnvart bílasölu, en við bílasölu hafi brotin átt sér stað. Það sé því lögreglunnar að rann- saka. Hagnaður Procar var 200 millj- ónir á árunum 2015 og 2016 fyr- ir utan fjármagnsliði og rekstr- artekjur 2,2 milljarðar árið 2016. Eignir leigunnar voru metnar á um milljarð í lok árs 2016 og nam þá eigið fé 23 milljónum. Haraldur Sveinn og Fasteigna- félag Austurlands Annar eigenda Procar og Car- son, Haraldur Sveinn, var einn stofnenda Fasteignafélags Aust- urlands ehf. Félagið fékk milljarð að láni frá Íbúðalánasjóði til upp- bygginga á Austurlandi þrátt fyr- ir að eiginhlutafé félagsins væri langt undir því lágmarki sem regl- ur Íbúðalánasjóðs gerðu kröfu um. Þegar félagið var úrskurðað gjaldþrota árið 2011 sat Íbúða- lánasjóður eftir með sárt ennið, 2,2 milljarða skuld og ósöluvæn- ar íbúðir. n Erla Dóra erladora@dv.is M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.