Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 18
18 FÓKUS 8. nóvember Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS n Margir greina sig sjálfir með sjúkdóma á netinu n Algengt meðal transfólks Þ að er mjög algengt núorðið að fólk fari í sjálfsgrein- ingu á sviðum sálfræðinn- ar í stað þess að leita til sérfræðinga og hefur þetta verið sérstaklega algengt hjá transfólki. Þetta staðfestir Óttar Guðmunds- son geðlæknir en undanfarin ár hafa sjálfsgreiningarpróf á netinu verið mikið í umræðunni sem og gagnleg áhrif þeirra. Upplýsingavefurinn Ps- hychology Today birti hér um árið ítarlega úttekt á skaðsemi sjálfsgreininga, þar sem áhersla er lögð á villandi niðurstöður. Fólk einblínir á vanda sem er að öllum líkindum ekki til staðar. Hið öfuga tíðkast einnig, þar sem notendur þreyta sálfræðipróf á netinu og meta niðurstöður sem svo að enginn vandi sé til staðar þegar raunin er önnur. Óttar seg- ir neikvæða pólinn vera sá að fólk getur orðið fullmeðvitað, jafnvel getið sér til um ályktanir eða upp- lifað meiri streitu. „Fólk kannski þorir ekki að taka lyfin sín vegna þess að list- inn yfir aukaverkanir er svo lang- ur og þvíumlíkt,“ segir Óttar. „Aft- ur á móti er vissulega af hinu góða að fólk sé orðið meira með- vitað um sjálft sig heldur en það var. Fólk vinnur heimavinnu sem það gerði ekki áður. Þetta á sér- staklega við um þessa transsjúk- linga mína, þar eru allir að koma undirbúnir og búnir að lifa með netgreiningu í ákveðinn tíma áður en leitað er hjálpar í opin- bera geiranum. Þá eru í raun all- ir löngu búnir að greina sig sjálfa áður en þeir koma til mín.“ Heilmikil vinna á bakvið hvert ferli Um 350 börn voru á biðlista hjá Þroska- og hegðunarstöðinni í sumar. Biðlistar sem slíkir hafa verið að lengjast frá árinu 2016. Óttar segir það miður að bið- tími sé langur eftir ADHD-grein- ingu sérstaklega en fullyrðir að gild ástæða liggi þar að baki. „Slík greining er auðvitað flókin og umfangsmikil. Það liggur heil- mikil vinna þar á bakvið,“ segir hann. Óttar segir fólk vera miklu meðvitaðra í dag um sjúkdóma, greiningar og greiningarviðmið heldur en áður var, að jafnframt gildi hið sama um lyf og lyfjameð- ferðir, sem að sögn geðlæknisins sé allt internetinu að þakka. „Yfirleitt er einhver glóra í þessum prófum. Þetta er ekki bara einhver della. Það er fylgt ákveðinni línu. Ég hef ekkert illt um sjálfsgreiningarpróf að segja. Þetta er nauðsynleg viðbót og það er auðvitað jákvætt að fólk verði meðvitað um hina og þessa hluti um sig sjálft, innan marka vissu- lega,“ segir Óttar. Góðar og rangar upplýsingar Á hverri mínútu eru hátt í sjötíu þúsund fyrirspurnir á Google um heilsu og andlega líðan, tugir þús- unda fyrirspurna á hverri mínútu á YouTube. Í útvarpsþættinum Í bítið á dögunum sagði Teitur Guðmundsson, læknir og fram- kvæmdastjóri Heilsuverndar, að fólk sem leitar sér upplýsinga al- mennt um heilsufar eða jafnvel greiningar sé á hálum ís sé heimildarvinn- an ekki vönduð. „Þegar á við sjúkdóma er þetta efni sem við höf- um áhyggjur af. Google er rosa- lega flott tæki og það er auðvelt að fá góðar upplýsingar en einnig rangar upp- lýsingar,“ seg- ir Teitur og tekur fram að upplýsingar sem fólk leitar að á netinu séu líklegri til að gera sjálfu sér illt, þótt upplýs- ingavinna sjúklingsins sé yfirleitt af hinu jákvæða. „Ég held að enginn lækn- ir muni viðurkenna það að hann sé með minni þekk- ingu en sjúklingurinn al- mennt. Þetta er gríðarlega fjölþætt og já, ég viður- kenni það, það hefur kom- ið fyrir að ég hafi hitt sjúk- ling sem veit meira en ég um ákveðna hluti. Þá þarf ég að skoða hvort þekkingin byggist á raunveru- legum gögnum eða bara þvælu.“ n „Þetta er ekki bara einhver della“ Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Óttar Guðmundsson læknir. Teitur Guðmundsson, læknir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.