Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 32
Íslenskar netverslanir 08. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ HEILSAN MÍN: Andleg og líkamleg vellíðan og heilbrigt útlit Heilsan mín býður upp á fjölbreytt úval af heilsu- og fegrunarmeðferðum. Irena Auður Pétursdóttir, eigandi stofunnar, er sérfræðingur í ristilmeðferðum og hefur veitt slíkar meðferðir í sjö ár. Fyrst starfaði hún hjá Heilsuhóteli (Detox) á Ásbrú en nú hefur Irena opnað Heilsan mín í Hafnarfirðinum. „Ég hef orðið vitni að gríðarlegum árangri hjá meðferðaraðilum mínum. Fólk finnur jafnvel ótrúlegan mun á sér eftir fyrsta skiptið í ristilhreinsun. Það talar um aukna orku, léttleika og almennt betra skap.“ Ótrúlegur árangur af ristilmeðferðum Ristillinn leikur stórt hlutverk í bæði meltingar- og ónæmiskerfinu. Hlutverk örvera í þörmunum er fjölþætt og taka þær þátt í efnaskiptum, ónæmisviðbrögðum og brjóta niður eiturefni í líkamanum. Þessi ferli eru stór hluti af því að húð, lifur og önnur líffæri og líkamskerfi starfi á heilbrigðan hátt. Ristilmeðferðir eru hannaðar til þess að hreinsa út öll eiturefni sem safnast upp í líkamanum og gefa honum nýtt upphaf. „Við erum ekki bara að hreinsa ristilinn heldur hefur meðferðin töluvert víðfeðmari áhrif á líkamann allan. Við ristilmeðferð hreinsast ekki bara ristillinn heldur líkaminn allur sem og blóðrásin og önnur kerfi líkamans.“ Afrakstur ristilmeðferða er marþættur: • bætir virkni ónæmiskerfsins, ristilsins og annarra líffæra líkamans • minnkar kólesterol í hjarta- og æðakerfinu • gefur húðinni ljóma • hjálpar til við þyngdartap • hjálpar til við að vinna gegn orkuleysi og ofþreytu, þunglyndi og fleiru sem getur stafað af illa ræstum líkama Heilsan mín er eina stofan á landinu sem býður upp á þessar afar áhrifaríku og einstöku ristilmeðferðir. HIFU Andlitslyfting án skurðaðgerðar HIFU stendur fyrir „high intensity focused ultrasound“. HIFU er ómbylgjumeðferð þar sem notuð er sérhönnuð vél til að skjóta samþjöppuðum ómbylgjum djúpt niður í húðina sem hefur áhrif á húðlög og andlitsvöðva. HIFU eykur framleiðslu á kollageni og elastíni í húðinni og því afar áhrifarík meðferð í baráttunni gegn hrukkum og fínum línum í andliti. Meðferðin er svokölluð andlitslyfting án skurðaðgerðar og í mörgum tilfellum getur hún veitt fólki allt að 3–5 ára yngra útlit. Andlitið lyftist og andlitsdrættir skerpast, húðin verður sléttari og stinnari, hægt er að vinna á signum augnalokum sem og siginni höku. Nudd gegn kvíða og stressi Heilsan mín býður upp á nokkrar gerðir af nuddmeðferðum, en nudd eykur blóðflæði í líkamanum, lagar efnaskipti og gefur aukna orku og ferskleika. Nudd getur hjálpað til við að vinna á stress- og kvíðavandamálum sem hjálpar til gegn svefnvandamálum. Heilsan mín státar af frábærum nuddara, henni Sangwan, sem kemur frá Taílandi. „Hún er sérfræðingur í taílensku og klassísku nuddi. Þeir sem hafa komið til hennar í nudd hafa verið himinlifandi enda veitir hún nuddmeðferð sem er sérsniðin að hverjum og einum. Þá greinir hún hvaða vandamál hrjá hvern og einn og nýtir þekkingu sína sem og taílenskar jurtir og olíur til þess að vinna á þeim í gegnum nuddið.“ Reiki er aldagömul óhefðbundin lækningameðferð sem japanski búddamunkurinn Mikao Usuie fann upp og fullkomnaði. Meðferðin byggir á orkuheilun og reikimeistarar notast við tækni sem kallast handaheilun. Þá miðlar heilarinn alheimsorkunni gegnum hendur sér til þeirra staða í líkama meðferðaraðila þar sem orkunnar er þörf. Í reikispekinni er sársauka og kvillum lýst sem stíflaðri orku eða ójafnvægi. Þá vinna reikimeistarar í því að opna fyrir orkuna, afstífla og koma á jafnvægi til þess að heila meðferðaraðilann. Innrauð sána fyrir alla Að stunda innrauð sánaböð hefur heilmikinn heilsufarslegan ávinning. Í innrauðri sánu hitnar líkaminn af völdum innrauðra hitageisla sem hita líkamann upp á þægilegan máta. Bylgjurnar hita ekki upp rýmið í kringum heldur eingöngu líkamann og auka svitamyndun sem hjálpar líkamanum að losa sig við skaðleg eiturefni. Einnig hafa innrauðu geislarnir jákvæð áhrif á blóðþrýsting og getur í sumum tilfellum hjálpað í baráttunni gegn svefnleysi. Geislarnir ná um fjóra sentimetra ofan í húðina, sem er töluvert meiri og dýpri virkni en hefðbundin sána, sem nær eingöngu um fimm millimetra ofan í húðina. Pantaðu tíma í einhverja af þeim fjölmörgu heilsu- og fegrunarmeðferðum sem Heilsan mín býður upp á, á vefsíðunni heilsanmin.com Bæjarhraun 2, 220 Hafnarfjörður Sími: 852-2777 Fylgstu með á Facebook: Heilsan mín Myndir: Eyþór Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.