Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 31
Íslenskar netverslanir08. nóvember 2019 KYNNINGARBLAÐ
Vinnur með þjóðararfinn og íslenska
náttúru í fallegri hönnunarlínu Krums
Krums er án efa með skemmtilegri hönnunarmerkjum sem finnast á Íslandi í dag.
Grafíski hönnuðurinn Hrafnhildur
hannar undir Krums-merkinu ýmsar
fallegar gersemar með innblæstri úr
íslenskri náttúru og þjóðararfinum
sem gaman er að skreyta heimilið
með og gefa ástvinum í jólagjöf.
„Nafnið Krums er komið af nafninu
Hrafnhildur, en ég er skírð eftir
ömmu minni, sem var alltaf kölluð
Krumma. Sjálf er ég líka stundum
kölluð Krumma litla. Krums fannst
mér skemmtileg tenging í Krummu-
nafnið og virkaði líka á alþjóðavísu.
Ég lærði að meta handverkið í
gegnum ömmu Krummu en hún
var alltaf með eitthvert handverk
í vinnslu. Það er mikið til af fallegu
handverki eftir hana og eru verk
hennar mér mikill innblástur í eigin
hönnun. Þá fæ ég líka hugmyndir
einfaldlega út frá því hvað mig
vantar og hvað mig langar í. Það
virðist vera nokkuð góður mælikvarði
á það hvað aðrir eru hrifnir af. Ég
er með góða aðstöðu til þess að
framleiða nýjar vörur og reyni ég
alltaf að gera eins mikið frá grunni
og ég get. Þá hef ég meðal annars
prentað mitt eigið mynstur á efni til
þess að sauma handtöskur o.fl.“
Sérpantanir velkomnar
Hrafnhildur tekur að sér að
framleiða, prenta og skera út vörur
fyrir viðskiptavini. „Þá sker ég út
fallega kökutoppa með skilaboðum
og nöfnum fyrir hin ýmsu tilefni. Svo
prenta ég líka á tau, keramikplatta,
álskilti og mdf-plötur fyrir fólk. Það
má endilega hafa samband við mig
í gegnum tölvupóst krumshonnun@
gmail.com eða í síma 842-1307.“
Hönnunarvara á íslensku fyrir
Íslendinga
Vörurnar frá Krums eru
fjölbreyttar og eiga það allar
sameiginlegt að vera sprottnar
úr hugskoti Hrafnhildar. „Ég
byrjaði að hanna undir Krums-
merkinu fyrir átta árum þegar
ég var að klára nám í grafískri
hönnun í Danmörku. Mig langaði
að nýta íslenska þjóðararfinn og
inniheldur merkið því strandlínur
Íslands. Þá er allur texti sem
prýða vörurnar á íslensku. Það
er mikið framboð af vörum sem
nýta enska tungu í hönnun sína,
en mig langaði að bjóða upp á
mótframlag af hönnunarvöru
á íslensku og fyrir Íslendinga.“
Hrafnhildur hefur nú búið á Íslandi
í fimm ár og heldur ótrauð áfram
að hanna nýjar og fallegar vörur
undir Krums-merkinu. Þá prentar
Hrafnhildur eigin hönnun á fallega
dúka, löbera og viskastykki úr
hágæða höri frá Litháen.
Drottinn blessi heimilið
Í hönnun sinni setur
Hrafnhildur gömlu útsaums- og
prjónamynstrin í nýtt samhengi.
„Ég vil gera mynstrin aðgengilegri
og nota þau í öðruvísi útgáfum.
Þá hef t.d. prentað gömlu
mynstrin á boli, púða, löbera og
fleira.“ Nýju keramikplattarnir frá
Krums með áletruninni „Drottinn
blessi heimilið“ er ný hönnun frá
Krums og gott dæmi um þetta.
„Áletrunina þekkja margir í sjón
enda klassískt útsaumsmynstur.
Áletrunin er prentuð með
nútímatækni á keramikplattann
sem er svo hengdur upp á vegg.“
Laserskorið jólaskraut
Hönnunarbækistöðvar Krums er að
finna í bílskúrnum heima hjá Hrafnhildi
í Grundarfirði á Snæfellsnesi. Þar
hannar hún og framleiðir allar
sínar vörur og notar til þess forláta
stórprentvél og önnur tæki og tól. „Ég
er eiginlega búin að sprengja utan
af mér húsnæðið enda sífellt meira
að gera hjá mér. Nýlega fjárfesti ég
í laserskurðartæki og hef verið að
hanna jólaskraut úr plexígleri.
Þá sker ég út hátíðarkransa,
servíettuhringi, jólakúlur, lítil
standjólatré og ýmislegt fleira.
Ég er mjög spennt fyrir þessari
viðbót í tækjalagerinn enda gefur
skurðarvélin mér nýja möguleika og
frelsi í notkun á efnivið og fleiru.“
Jólamarkaður í Víkingsheimilinu
Helgina 9.–10. nóvember mun
Hrafnhildur selja Krums-vörurnar
á Jóla Pop-up markaðinum í
Víkingsheimilinu. „Þar ætla ég
að vera með nýjustu vörurnar
mínar til sölu, svo sem laserskorna
jólaskrautið, Drottinn blessi
heimilið-keramikplattana, Vikuplan
og skipulagsplan með segli fyrir
ísskápa, kökutoppana og margt
fleira.“ Það er um að gera að
kíkja við um helgina og kynna
sér betur þessar skemmtilegu
hönnunarvörur frá Krums.
Vörurnar frá Krums fást á vef–
versluninni krums.is þar sem finna
má fullt af skemmtilegum jólagjafa–
hugmyndum fyrir heimilið og fleira.
Verkstæði Krums er á Eyrarvegi 20,
350 Grundarfirði.
Sími: 842-1307
Netfang: krumshonnun@gmail.com
Fylgstu með á facebook: Krums
Skemmtilegar hugmyndir fyrir aðventukransa.
Keramikbretti með mynd af Íslandi.
Fallegir hitaplattar með Íslandi.