Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 53
FÓKUS 538. nóvember Þá sagði hann skólastjórnend- ur hafa brugðist honum. „Þetta var mjög niðurlægj- andi reynsla. Ég upplifði mig sem vandamál allra í kringum mig, vandamál sem ég átti sjálf- ur að leysa. En auðvitað gat ég það ekki, þar sem ég hafði hvorki næga innsýn, vitsmunalega getu eða andlegan þroska vegna aldurs. Ég þurfti á hjálp að halda og þið brugðust mér. Kennarar og skólastjórn.“ Þá tók Eyþór fram í bréfinu að í Foldaskóla hafi hann enga við- eigandi aðstoð fengið við ástandi hans eða rétt umhverfi til að geta sinnt náminu. „Kennarar sýndu mér engan skilning og með sinni óþolin- mæði létu þeir mér líða eins og ég væri heimskur og gjörsamlega vonlaus að geta ekki fylgst með eða verið rólegur í tímum,“ ritaði hann jafnframt og bætti við í lok- in að hann vonaði að ástandið í skólanum væri skárra í dag. Mismunandi þarfir Eyþór segist hafa fengið gríðar- leg viðbrögð við bréfinu á sín- um tíma. „Það sem ég hef helst gagnrýnt í minni sögu eru við- brögð fullorðinna einstaklinga sem áttu að vera stuðningur og leiðbeinendur og hvernig skóla- kerfið hefur brugðist börnum eins og ég var. Ég er svo sannar- lega ekki einn um þetta og eftir að ég skrifaði greinina í Stundinni þá fékk ég fjöldann allan af pósti frá fólki sem hafði lent í svipaðri reynslu eða átti einhvern nákom- inn sem hafði lent í því að vera brotinn niður af skólakerfi sem á að byggja þau upp. Mér finnst bara mikilvægt að það viti það all- ir að það eru ekki börnin sem eru vandamálið, það er umhverfið sem býður ekki upp á viðeigandi aðstæður til að börn með hinar ýmsu greiningar fái að blómstra. Við höfum öll mismunandi þarf- ir og skólakerfi sem gerir ekki ráð fyrir því að börn séu alls konar, með mismunandi styrkleika og þarfir, er bara skólakerfi sem er ekki að virka. Ég hef stundum hugsað til þess enn þann dag í dag, ef að kennararnir hefðu haft trú á mér og hvatt mig áfram, hvað það hefði skipt mig miklu máli á sín- um tíma og hvað það hefði gert mikið fyrir mig. Að vísu var einn kennari sem sýndi mér skiln- ing og ég er ennþá sambandi við hann í dag. Ég á henni mikið að þakka fyrir að hafa komið mér í gegnum 10. bekkinn.“ Öðlaðist frið Eyþór leiddist út í óreglu snemma á unglingsárunum og segir að á sínum tíma hafi það verið lausn- in. „Ég fékk frið fyrir hausnum á mér og gat einbeitt mér í fyrsta skiptið á ævinni. Einhvern veg- inn fóru næstu árin í það að eltast við þennan frið sem ég fékk í upp- hafi, en vandinn er sá að það þarf alltaf meira og meira. Fljótlega fór ég að missa tökin á lífi mínu og fór að fara í meðferðir til að ná einhverri stjórn. Það er rosalegt hvernig maður getur misst tökin og maður finnur það innst með sjálfum sér að það er ekki mað- ur sjálfur sem stjórnar ferðinni, heldur fíknin. Eitt af lögunum á plötunni ber heitið By The Tower en textinn varð til á erfiðum tíma í lífi Eyþórs. „Um 21 árs aldur samdi ég lag- ið By The Tower í yfirgefnu húsi sem stóð efst á Frakkastíg, rétt fyrir neðan Hallgrímskirkju, Þetta var einbýlishús sem augljóslega hafði ekki verið búið í í mörg ár. Veggirnir voru þaktir veggjakroti og íbúðin tóm. Ég hafði útskrifast úr meðferð nokkrum mánuðum áður en var dottinn í það enn eina ferðina og átti engan samastað. Ég leitaði oft í þetta hús ef mig vantaði skjól, lagið kom til mín eina nóttina, ég fékk þessa sterku löngun til að fá aðra til að upp- lifa það sama og ég var að upp- lifa, einmanaleikann og hvernig ég var lamaður af kvíða og búinn að missa trúna á sjálfum mér. Það hefur tekið mig mörg ár að byggja upp sjálfstraust. Þegar ég hugsa til baka, ætli ég hafi ekki bara þráð skilning eða samhug á þess- um tíma, ég þurfti svo sannarlega hjálp. En ég bý að þessari reynslu og hún gerir mig að þeim sem ég er í dag. Það er allavega gott að vera búinn að koma laginu frá sér,“ segir hann og bætir við að umrætt hús sé ekki lengur til staðar. „Það er búið að rífa húsið núna enda var það í mikilli niðurníðslu, síðast þegar ég kom þangað var búið að gróðursetja tré og setja upp bekki, svo er seldur matur úr einhverjum vagni.“ Úr ótta í kærleika Andleg iðkun og hugleiðsla er það sem bjargaði Eyþóri á sínum tíma. „Í gegnum andlega iðkun og hugleiðslu náði ég betur tökum á hugsunum mínum og tilfinn- ingum, ég náði loksins tökum á óttanum sem hefur fylgt mér alla ævi, en það tók rosalega á og ég þurfti að aga mig lengi, bara til að ná að sitja í fimm mínútna hug- leiðslu. En með tímanum fann ég hvað hugleiðsla og ýmiss kon- ar andleg iðkun eins og jóga, að kyrja möntrur, syngja möntr- ur, dansa, biðja og svo framveg- is hafði rosalega góð áhrif á mig. Ég fann hvernig óttinn breyttist í kærleika og allt í einu var ég kom- in með drifkraft í líf mitt sem var ekki lengur ótti og kvíði, heldur ást og umhyggja. En ég þarf að viðhalda þessu með því að iðka á hverjum degi og gefa það áfram. Ég eignaðist líf og það er skylda mín að gefa það áfram til annarra sem þurfa á hjálp að halda, hvort sem um er að ræða fíkla eða einstaklinga með ADHD eða bara hvern sem er. Ég er tilbúinn að hjálpa hverjum sem er að öðlast það sem ég hef öðlast. Ég held utan um hugleiðsluhelgar sem kallast Andvari og margir óvirk- ir fíklar sem eru leitandi, koma til okkar en auðvitað eru allir vel- komnir. Það er mín innsta von að fólk fái að upplifa það hvað hug- leiðsla getur gert magnaða hluti í lífi fólks.“ Platan Above The Lights er persónulegt uppgjör Eyþórs við fortíðina. „Það eru svo margar til- finningar sem eru búnar að vera að brjótast um í mér þessi ár sem ég hef fengið að vera edrú, mörg þessara laga eru samin í upphafi edrúmennskunar þar sem ég er einhvern veginn að fara yfir for- tíðina, samskipti mín við aðra, gömul sár, söknuð og svo fram- vegis. Eins og til dæmis lagið Over the horizon samdi ég ásamt vini mínum Jóni Hafdal og sömd- um við lagið til að heiðra minn- ingu æskuvinar sem svipti sig lífi. Þetta er ótrúlega sorglegt lag en á sama tíma fullt af hlýju og ást til hans og von um að við hittu- mst aftur í næsta lífi. Safe Inside, sem er sungið af Kolbrúnu, fjallar um einstakling sem þráir ekkert heitar en að hlúa að þeim sem er veikur á geði en gengur á sjálfan sig í leiðinni. Quiet and peaceful er bréf til minna nánustu og ein- hvers konar staðfesting á því að ég sé komin á betri stað. Þetta er svo rosalega þung plata, en ég bara varð að koma þessu frá mér og ég er rosalega þakklátur þeim sem nenna að hlusta,“ segir Eyþór jafnframt en hann stefnir að útgáfu plötu númer tvö árið með Above The Lights árið 2020. „En ég er eig- inlega að lofa því hér og nú að næsta plata, sem við erum að vinna í, verður talsvert léttari, samt ekkert gleðipopp. Bara ör- lítið léttari.“ Og hann er þakklátur fyrir líf- ið sem hann á í dag. Hjónin eiga fimm ára brúðkaupsafmæli nú ár en þau eiga saman fjögurra ára dóttur. Fyrir á Eyþór sex ára dóttur og þá á hann fjórtán ára stjúpdóttur og níu ára stjúpson. „Í öll þessi ár sem ég hef ver- ið edrú hef ég fengið allt sem mig hefur dreymt um, en hef samt þurft að leggja rosalega mik- ið á mig til ná því, en sumt hef- ur einhvern veginn bara komið af sjálfu sér. Ég stundum trúi því ekki hvað líf mitt er orðið fallegt og gleymi að vera þakklátur fyr- ir það á hvaða stað ég er kominn. Ég yndislegustu konu í heimi, fal- legt heimili og dásamleg börn. Ég stunda nám og starfa við það sem mig langar til.“ n OnePortal er vefgátt sem gerir fyrirtækjum og sveitar- félögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólahringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir Gæða- stjórnun á stóra þátt í góðum árangri fyrirtækja. OneQuality er lausn sem OneSystems bjóða heildarlausn í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra Hagkvæmar lausnir með áherslu á rekjanleika, auðveldan aðgang og gagnsæi. OneRecords er öug lausn sem auðveldar fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan um mál sem eru í gangi á hverjum tíma. Stjórnendur hafa yrsýn yr ga g mála innan fyrirtækisins og notendur geta á einfaldan máta sótt lista yr þau mál sem þeir bera ábyrgð á. Vilt þú koma skjalamálunum í lag? VELJUM ÍSLENST - VELJUM ÍS LE NS KT -V EL JUM ÍSLENSKT - Records Mála- o skjalakerfi Self-Service www.one.is OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is www.one.is . one@one.is sími: 660 8551 . fax: 588 1057 „Það er ekkert grín að vera barn með ADHD“ Eyþór var snemma greindur með mikinn athyglisbrest og ofvirkni en mætti engum skilningi í skólakerfinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.