Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 40
40 PRESSAN 8. nóvember Þ að hefur löngum vakið undrun margra af hverju lítill hluti fólks kýs að trúa einhverju sem ítarleg og margvísleg gögn sýna að ekki er rétt. Það virðist einfaldlega sem þetta fólki hafi engan áhuga á staðreyndum eða sönnunum, enda stendur það fast við sitt. Þetta á við um marga þá sem að- hyllast samsæriskenningar af ein- hverju tagi, þeir virðast hafa bitið í sig að ekkert annað geti verið rétt og skipta þá staðreyndir og jafn- vel vísindaleg gögn engu máli. En samsæriskenningar af ýmsu tagi lifa góðu lífi og ekkert virðist bíta á trú margra á þeim. Hér ætlum við að nefna til sögunnar nokkrar af undarlegustu samsæriskenn- ingum síðari tíma en samantekt- in er auðvitað engan veginn tæm- andi því af nógu er að taka. Paul McCartney er dáinn Þessi kenning snýst um að Paul McCartney hafi í raun látist 1966 en andláti hans hafi verið haldið leyndu því þá voru Bítlarnir á há- tindi frægðarinnar og máttu ekki við því að missa McCartney. Þeir eru því sagðir hafa ráðið tvífara hans til að taka stöðu hans og svo heppilega vildi til að tvífarinn gat einnig sungið svo hann passaði fullkomlega í hlutverkið. Þessu til sönnunar er bent á að hljóm- plötur frá síðari tíma Bítlanna vísi til þessa. Þar hefur til dæmis ver- ið nefnt að The Sgt. Pepper‘s Lon- ely Hearts Club Band-hljómplat- an fjalli um dauða McCartney, að minnsta kosti að hluta. Í laginu A Day in the Life segir til dæm- is á einum stað: „He blew his mind out in a car“. Einnig megi heyra sagt: „Paul is dead, miss him, miss him“ sem er þó aðeins hægt að heyra ef lagið er leikið afturábak. Lennon umlar einnig „I buried Paul“ í lok „Strawberry Fields Forever“, en hann neit- aði því síðar að einhver dulin meining væri í þessu og sagði að það sem hann hafi sungið væri: „cranberry sauce“. Einnig hefur myndin á umslagi Abbey Road- -plötunnar verið nefnd þessari kenningu til stuðnings. Það er sú fræga mynd þar sem John Lennon, hvítklæddur, er í farar- broddi fyrir „líkfylgd“ sem er að fara yfir götu. Ringo Starr kemur næstur og er hann svartklæddur eins og sá sem syrgir en George Harrison, sem er síðastur, er í gallabuxum er hann sagður tákna þann sem tók gröf McCartney. Á undan honum er McCartney sem gengur ekki í takt við hina og er berfættur sem er að mati sönnun sumra fyrir að þarna sé um stað- gengil hans að ræða þar sem hinn raunverulegi McCartney hafi ver- ið látinn og skóleysið sanni það því látnir þurfi enga skó þegar þeir komi á áfangastað sinn. Elvis er enn á lífi Konungur rokksins, Elvis Presley, lést 16. ágúst 1977, eða hvað? Ef samsæriskenningar eru réttar þá dó hann ekki þá. Hann er sagð- ur hafa sviðsett eiginn dauða og hann starfi nú sem verkamaður í Graceland. Til að styðja þessa kenningu hefur meðal annars verið birt óskýrt myndband á YouTube af einstaklingi sem nefnir sig „The Shadow“. Í mynd- bandinu sést skeggjaður mað- ur sem „The Shadow“ segir að sé Elvis 81 árs að aldri. Ekki eru allir sáttir við kenningar um að Elvis sé á lífi og vilja að hann fái „að hvíla í friði“ en samt sem áður er ósennilegt að trú á samsær- iskenningar um að hann sé enn á lífi lognist út af á næstunni. En Elvis er orðinn 84 ára ef svo ólík- lega vill til að hann sé enn á lífi. CIA og AIDS Allt frá því að fyrst var staðfest að veira, sem var nefnd HIV og orsakaði AIDS, væri til í Banda- ríkjunum 1981 hafa verið uppi samsæriskenningar um upp- runa hennar og ástæður fyrir því að hún varð til. Ein þeirra ótrú- legustu, sem nýtur mikillar hylli, gengur út á að bandaríska leyni- þjónustan CIA hafi búið hana til samkvæmt fyrirmælum Ric- hards Nixon Bandaríkjaforseta. Tilgangurinn með veirunni hafi verið að eyða samkynhneigðum og svörtu fólki af yfirborði jarðar- innar. Þekkt fólk hefur látið hafa eftir sér að það telji þessa kenn- ingu rétta. Þar má til dæmis nefna Thabo Mbeki, fyrrverandi for- seta Suður-Afríku, sem hampaði kenningunni eitt sinn og sagði hana „draga í efa vísindalegar staðhæfingar um að veiran væri upprunnin í Afríku“. Hann sakaði Bandaríkjastjórn um að hafa búið hana til í tilraunastofum hersins. Vistfræðingurinn og Nóbelsverð- launahafinn Wangari Maathahai studdi einnig þessa kenningu. Gögn liggja fyrir um að þessi tenging CIA við veiruna hafi ver- ið runnin undan rifjum sovésku leyniþjónustunnar KGB og hafi verið hluti af áætlun um að draga úr trúverðugleika Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi. Aðgerð KGB gekk undir heitinu „Aðgerð sýk- ing“. Allan níunda áratuginn birtu Sovétmenn bréf frá „nafnlausum bandarískum heimildarmönn- um“ sem staðhæfðu að veiran væri afleiðing tilraunar á vegum CIA sem hefði farið úrskeiðis. Þessi kenning náði góðri fótfestu og lifir góðu lífi enn þann dag í dag þrátt fyrir að flestir vísinda- menn og læknar séu sammála um að veiran hafi borist í menn úr öpum í Kongó á fjórða áratug síðustu aldar. Lyfjafyrirtækin leyna því að lækning sé til við krabbameini Langlíf samsæriskenning geng- ur út á að læknar og vísinda- menn með stór lyfjafyrirtæki í fararbroddi hafi fyrir löngu fund- ið lækningu við krabbameini en hafi haldi henni leyndri fyrir al- menningi. Rökin á bak við þessa kenningu eru að svo miklir pen- ingar séu í spilinu í tengslum við krabbameinsmeðferðir um allan heim að fyrirtækin vilji ekki fórna þeim. Ef lækningin væri kynnt til Nokkrar af undarlegustu samsæriskenningum síðari tíma – fyrri hluti n Leyniþjónustan bjó til AIDS n Eðluelítan og dauðdagi Pauls McCartney Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Langlíf samsæriskenning Margir halda því fram að Elvis lifi. Karl Bretaprins Hvar eru vampírutennurnar?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.