Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 42
42 8. nóvember
Tímavélin Gamla auglýsingin10. júlí 1987
Á
fyrri hluta seinustu aldar
voru nokkrar bækur gefn-
ar út á Íslandi sem áttu það
sameiginlegt að höfða til
ungra stúlkna og kvenna og inni-
halda ýmis ráð varðandi fegurð,
snyrtingu og framkomu. Ein elsta
bókin sem blaðamaður DV komst
yfir er Fegrun og snyrting frá ár-
inu 1939, eftir norska lækninn
Alf Lorentz Örbeck í þýðingu frú
Kristínar Ólafsdóttur.
Óhætt er að fullyrða að sum af
þeim ráðum sem gefin voru kven-
þjóðinni á árum áður myndu
vekja hörð viðbrögð ef bækurnar
væru endurútgefnar í dag.
Aðlaðandi er konan ánægð
Aðlaðandi er konan ánægð eftir
bandarísku leikkonuna Joan
Bennet kom út í íslenskri þýð-
ingu árið 1945. Bókin seldist upp á
stuttum tíma og var endurútgefin
rúmlega ári síðar.
„Handbók um allar nýjungar,
sem lúta að fegrun, snyrtingu og
klæðnaði kvenna. Allar konur
og ungar stúlkur, sem vilja vera
snyrtilega búnar og nota fegurðar-
meðul af smekkvísi og kunnáttu,
ættu að kaupa þessa bók strax í
dag, því að á morgun verður hún
kanski uppseld,“ segir í auglýsingu
Tímans frá því í september árið
1946.
Í inngangi bókarinnar ritar Joan
Bennet að á síðustu þremur ára-
tugum hafi flestar af þeim dygðum
og siðvenjum sem kallaðar voru
kvenlegar farið veg allrar veraldar.
Rekja megi að til heimsstyrjaldar-
innar, þegar konur voru kallaðar
til starfa burt frá heimilinu.
„Áður fyrr fannst sumum það
dyggð hjá konunni ef hún var
ljót. Nú á dögum er það játað af
þeim sem vinna að velferð lík-
ama og sálar að það sé vart heil-
brigð kona sem hefur ekki rænu á
að hugsa um útlit sitt, reynir ekki
að vera aðlaðandi. Ef konan er
aðlaðandi er henni veitt eftirtekt,
og það er einmitt hollt sálarheill
hennar.“
Á öðrum stað stendur:
„Kona sem nú á tímum van-
rækir það að stuðla að vellíðan
sinni og heilbrigði er sek gagn- vart þjóðfélaginu. Hún er því jafn
hættuleg og skemmdarvargur,
vörður, sem sefur þegar hann á að
vaka, eða liðhlaupi og hún verð-
skuldar þá refsingu, sem verður
hennar hlutskipti, að vera ein og
yfirgefin. En það hlutskipti er ekki
öfundsvert.“
Í fyrstu málsgrein kaflans
Að geðjast karlmönnum tekur
Benett fram að karlmanninum sé
launung á því að konan vill geðjast
honum og honum „geðjist meira
að segja að því“.
„Hitt gremst honum, að við
vanmetum hann, er við reynum
að veiða hann í net okkar með
kænskubrögðum sem ekki byggj-
ast á tryggri undirstöðu.“
Á öðrum stað segir Bennett
karlmenn frekar hrífast af glaðlegu
andliti en mjög fríðu. Hún gefur
eftirfarandi ráð:
„Reisið upp brettar brúnirn-
ar, lyftið munnvikunum upp, rek-
ið deyfðina úr augunum. Látið
sírenurnar „filmunnar“ um ól-
undarsvipinn. Ánægja, sem karl-
menn hafa af því að horfa á ól-
undarleg andlit er aðeins fólgin
í vitneskjunni um það, að þeir
þurfti ekki að hafa þau fyrir aug-
unum alla daga.“
Þá segir Benett að karlmenn
kjósi heldur konu sem er kvenleg,
en hina sem er „áberandi fegurð
og nýtízkuleg“.
„Þegar maður sem lítur á yður
hefur virt fyrir sér andlit yðar og
klæðaburð veitir hann athygli
svipbrigðum yðar. Vitandi eða
óafvitandi athugar hann hvort
þér eruð „lifandi“ vera, röskleg á
að líta. Þau áhrif sem hann verð-
ur fyrir næst allra fyrstu sýn eru
undir fjöri yðar og röskleika kom-
in. Með fjöri á ég ekki við ung-
meyjaleg látalæti og fliss, heldur
lífsfjör, blátt áfram, frjálsmann-
lega framkomu, sem ber vott um
lífsþrótt, lifandi áhuga og greind.“
Ung og aðlaðandi
Ung og aðlaðandi – handbók fyrir
ungar stúlkur um líkamsrækt og
snyrtingu kom út á Íslandi árið
1957 en höfundur er hin danska
Olga Golbæk. Í bókinni má finna
ýmis fegurðar- og heilsuráð fyr-
ir unglingsstúlkur en mörg þeirra
hljóta að teljast úrelt.
Í kafla sem snýr að umhirðu
húðarinnar er stúlkum til að
mynda ráðlagt að auka fegurð
húðarinnar með „seyði af perlu-
grjónum til næringar, seyði af
altæa (læknastokkrósum) til að
mýkja, seyði af salathöfði til að
auka teygjandleik og seyði af ylli
til að hressa.“
Þá er einnig mælt með stúlku
smyrji á sig borðediki þegar þær
stundi sólböð þar sem það auki
brúna litinn.
Á öðrum stað í kaflanum má
finna uppskrift að sérstöku fegr-
unarkremi sem inniheldur meðal
annars rjóma, hunang og natron,
og einnig má sjá uppskrift að
svitameðali sem fæst með því að
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
info@reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177
Kona sem hirðir ekki um sig
er sek gagnvart þjóðfélaginu
n Gamlar kvennabækur innihalda skrautleg ráð n Ofuráhersla á útlitið
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is