Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 62
62 FÓKUS 8. nóvember
YFIRHEYRSLAN
Hlynur
Þorsteinsson
Mín mesta áhætta
er örugglega að
taka íbúðalán
Hlynur Þorsteinsson útskrifaðist nýverið sem leik-
ari frá Listaháskóla Íslands en hann fagnaði á dögun-
um eins árs afmæli frumburðar síns og segir því síð-
asta ár hafa verið bæði magnað og spennandi. Hlynur
hlustar mikið á Dr. Footboll og viðurkennir að hann sé
í grunninn fótboltabulla þrátt fyrir langa afneitun.
Hvar líður þér best?
Þegar ég er að keyra. Ég næ alltaf góðum fókus og að
hreinsa hugann. Geri mikið af minni vinnu á rúntinum. Er oft
að æfa texta á ferðinni. Svolítið pínlegt á löngu rauðu ljósi
þegar ég gleymi mér aðeins.
Hvað óttastu mest?
Eftir að ég eignaðist strákinn minn áttaði ég mig á því hversu
stutt er á milli lífs og dauða. Hef aldrei hugsað jafn mikið út í
andardráttinn og mikilvægi hans eftir að ég varð pabbi.
Hvert er þitt mesta afrek?
Ég hef í raun og veru ekki afrekað eitthvað eitt sem er ótrú-
lega merkilegt. Ég lít frekar svo á að ég hafi átt mjög marga
litla sigra í gegnum ævina sem saman mynda eitt risaafrek.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið
að þér?
Það var að leika draug á Árbæjarsafni. Mjög einmana-
legt starf sem gekk út á það að hræða börn. Skrýtið
að manni sé að ganga vel þegar börnin eru byrjuð
að gráta.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Komið, sjáið, upplifið og farið. Líf eins manns án
kaflaskila.
Hvernig væri bjórinn Hlynur?
Hann væri alveg ótrúlega góður.
Besta ráð sem þú hefur
fengið?
Að nota neföndun þegar ég er að lesa
upphátt texta sem ég hef aldrei lesið
áður.
Hvert er leiðinlegasta
húsverkið?
Ég þoli ekki að vaska upp og er
sparireikningurinn núna notaður
með það að markmiði að safna fyrir
uppþvottavél.
Besta bíómynd allra
tíma?
Ég held mikið upp á Steve Martin og
ég get ekki valið á milli Lonely Guy
eða The Jerk.
Hvaða hæfileika myndir þú
vilja búa yfir?
Ég væri til í að vera rosalega góður í stærð-
fræði. Það tengist aðallega áhugasviði mínu
en stærðfræði er eitthvað sem ég vildi alltaf vera
miklu betri í þegar ég var yngri.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur
tekið?
Mín mesta áhætta er örugglega að taka íbúðalán hjá Lands-
bankanum. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér
þegar maður er með eitt svoleiðis á bakinu.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á
þér?
Það fer rosalega í taugarnar á mér þegar fólk er að reyna að
útskýra eitthvað og það notar „skilurðu“ á eftir útskýr-
ingunni. Endar oftast á því að það segir „skilurðu“ eftir
hverja einustu setningu og ég hætti að hlusta og hætti því
að skilja.
Hvað geturðu sjaldnast staðist eða ert
góður í að réttlæta að veita þér?
Það hlýtur að vera brúnkakan hennar ömmu. Hún notar svo
mikið smjör í kremið að það er alveg fáránlegt.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Ég er sem stendur í Íslensku óperunni, Brúðkaupi Fígarós, en
annars er ég í tökum á Netflix-mynd sem kemur vonandi út
á næsta ári.
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is