Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 28
28 8. nóvemberFRÉTTIR Íslendingur keyrir þvert yfir Bandaríkin og til baka á 80 dögum n 14.500 kílómetrar á vespu n Takmarkað ráðstöfunarfé n „Ég hef þurft að endurforrita hugann“ „Markmiðið er að deila sögum fólks“ Íslenskur fjallaleiðsögumaður, Michael Reid, og ísraelskur félagi hans, Yonatan Belik, hyggjast slá heimsmet með því að keyra þvert yfir Bandaríkin og til baka á 80 dögum. Fararskjóti þeirra félaga er 50cc Honda vespa. Bandaríski fréttamiðillinn Durango Herald ræddi við þá félaga nú á dögunum, en þá voru þeir staddir í Mesa Verde- þjóðgarðinum í Colorado-ríki. Hinn 3. nóvember síðastliðinn höfðu félagarnir keyrt rúmlega 10 þúsund kílómetra á 50 dögum. Keyrðu þeir þvert yfir norðurhluta Bandaríkjanna og tóku síðan U-beygju í San Francisco og héldu þaðan yfir til suðurríkjanna. Markmiðið er að keyra alls níu þúsund mílur, rúmlega 14.500 kílómetra á 80 dögum, í gegnum 48 ríki Bandaríkjanna, og slá þannig heimsmet í lengstu ferð sem farin hefur verið á 50cc vespu. Þurfti að endurforrita hugann Á ferðalaginu hafa þeir verið að taka viðtöl og mynda fólkið sem verður á vegi þeirra, í von um að ýta undir samkennd og skilning á milli fólks, sem er ekki síst nauðsynlegt nú á tímum, þar sem hraðinn er mikill og samskipti fólks eftir því. Hafa þeir meðal annars hitt listafólk, iðnaðarmenn, fjölskyldur, heimilislausa auk ótal annarra sem hafa deilt með þeim sögum úr hverdagslífinu, draumum og vonum. „Markmiðið er að deila sögum fólks, til að mynda á samfélagsmiðlum, og gefa fólki tækifæri á að kynnast samlöndum sínum,“ segir Michael og bætir við að innihaldsrík samtöl við ókunnuga geti hjálpað fólki að sjá í gegnum hinar ýmsu staðalímyndir sem til eru í samfélaginu. „Við ættum öll að venja okkur á að tengjast fólkinu í kringum okkur á jákvæðan hátt,“ segir hann jafnframt en hann kveðst hafa alist upp við þann hugsunarhátt að hann ætti að vara sig á ókunnugum, þeir gætu verið vafasamir. „Ég hef þurft að endurforrita hugann, og við viljum koma þessum skilaboðum áfram.“ Þá segjast þeir yfirleitt hafa fengið bestu viðtökurnar frá fólki á þeim svæðum sem teljast fátæk. Þannig hafa bláókunnugir boðið þeim gistingu, mat og fatnað. Fram kemur að vinirnir hafi lagt upp í ferðina með afar takmarkað ráðstöfunarfé. Þeir hafa sparað pening með því að gista í tjaldi, meira að segja þegar þeir heimsóttu Klettafjöllin frægu (Rocky Mountains) í snjókomu og nístingsfrosti. Í lok ferðarinnar hyggjast þeir setja upp sýningu í Washington- borg með ljósmyndum og viðtölum sem þeir hafa sankað að sér undanfarnar vikur. En þeir láta ekki staðar numið þar, en næst hyggjast þeir reyna að slá heimsmet með því að hjóla rúmlega 1.000 kílómetra á einhjólum yfir Ísrael, og rétt eins og fyrr, hitta og skrásetja kynni sín af heimamönnum. Ljósmynd/Durango Herald Ljósmynd/Durango Herald Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.