Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 17
8. nóvember FRÉTTIR 17
og við höfum gefið honum jóla-
gjöf og afmælisgjöf. Ég skrifaði
meira að segja bréf. Hann fékk af-
mæliskort með pakkanum sínum
og svo skrifaði ég annað bréf um
okkur og allt sem gerðist á þessu
ári sem ég hef bara lokað uppi í
skáp sem hann fær þegar hann
verður eldri. Þetta sagði ég fóstur-
foreldrum hans, að mér þætti
leiðinlegt að hann fái ekki að vita
af okkur.“
Verst þykir Guðbjörgu þó að
barnaverndarnefnd hafi ekki
gefið dóttur hennar tækifæri á
að bæta ráð sitt. Hún hafi farið í
meðferð eftir tilmælum barna-
verndarnefndar, en þrátt fyr-
ir það var barnið tekið meðan
á meðferð hennar stóð. Þar fyr-
ir utan var ljóst að hún ætti bak-
land, bakland sem var meira en
tilbúið að taka við litla drengn-
um, tímabundið eða varanlega.
„Hún fékk ekki einu sinni tíma til
að sanna sig.“ n
Sundaborg 1
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
BANNER-UP STANDAR
Ódýr
og einföld
leið l að
kynna
þína vöru.
„Í skjóli nætur var hann tekinn af okkur og settur í fóstur“
n Guðbjörg fær dótturson sinn ekki í fóstur þrátt fyrir fósturleyfi n Barnaverndarnefnd segir hana ekki hafa viljað drenginn n Geymir bréf inni í skáp sem drengurinn fær að lesa þegar hann verður eldri„Af hverju mátti ég
ekki fá drenginn
til mín tímabundið?
Guðbjörg Sigurðardóttir Fær ekki
ömmubarn sitt í fóstur, þrátt fyrir að
vera með fósturleyfi.
Guðbjörg og
eiginmaður hennar,
Víglundur, eru
hraust á besta aldri.