Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Side 18
18 FÓKUS 8. nóvember
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is
LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS
n Margir greina sig sjálfir með sjúkdóma á netinu n Algengt meðal transfólks
Þ
að er mjög algengt núorðið
að fólk fari í sjálfsgrein-
ingu á sviðum sálfræðinn-
ar í stað þess að leita til
sérfræðinga og hefur þetta verið
sérstaklega algengt hjá transfólki.
Þetta staðfestir Óttar Guðmunds-
son geðlæknir en undanfarin ár
hafa sjálfsgreiningarpróf á netinu
verið mikið í umræðunni sem og
gagnleg áhrif þeirra.
Upplýsingavefurinn Ps-
hychology Today birti hér um
árið ítarlega úttekt á skaðsemi
sjálfsgreininga, þar sem áhersla
er lögð á villandi niðurstöður.
Fólk einblínir á vanda sem er að
öllum líkindum ekki til staðar.
Hið öfuga tíðkast einnig, þar sem
notendur þreyta sálfræðipróf á
netinu og meta niðurstöður sem
svo að enginn vandi sé til staðar
þegar raunin er önnur. Óttar seg-
ir neikvæða pólinn vera sá að fólk
getur orðið fullmeðvitað, jafnvel
getið sér til um ályktanir eða upp-
lifað meiri streitu.
„Fólk kannski þorir ekki að
taka lyfin sín vegna þess að list-
inn yfir aukaverkanir er svo lang-
ur og þvíumlíkt,“ segir Óttar. „Aft-
ur á móti er vissulega af hinu
góða að fólk sé orðið meira með-
vitað um sjálft sig heldur en það
var. Fólk vinnur heimavinnu sem
það gerði ekki áður. Þetta á sér-
staklega við um þessa transsjúk-
linga mína, þar eru allir að koma
undirbúnir og búnir að lifa með
netgreiningu í ákveðinn tíma
áður en leitað er hjálpar í opin-
bera geiranum. Þá eru í raun all-
ir löngu búnir að greina sig sjálfa
áður en þeir koma til mín.“
Heilmikil vinna á bakvið hvert
ferli
Um 350 börn voru á biðlista hjá
Þroska- og hegðunarstöðinni í
sumar. Biðlistar sem slíkir hafa
verið að lengjast frá árinu 2016.
Óttar segir það miður að bið-
tími sé langur eftir ADHD-grein-
ingu sérstaklega en fullyrðir að
gild ástæða liggi þar að baki. „Slík
greining er auðvitað flókin og
umfangsmikil. Það liggur heil-
mikil vinna þar á bakvið,“ segir
hann.
Óttar segir fólk vera miklu
meðvitaðra í dag um sjúkdóma,
greiningar og greiningarviðmið
heldur en áður var, að jafnframt
gildi hið sama um lyf og lyfjameð-
ferðir, sem að sögn geðlæknisins
sé allt internetinu að þakka.
„Yfirleitt er einhver glóra í
þessum prófum. Þetta er ekki
bara einhver della. Það er fylgt
ákveðinni línu. Ég hef ekkert illt
um sjálfsgreiningarpróf að segja.
Þetta er nauðsynleg viðbót og það
er auðvitað jákvætt að fólk verði
meðvitað um hina og þessa hluti
um sig sjálft, innan marka vissu-
lega,“ segir Óttar.
Góðar og rangar upplýsingar
Á hverri mínútu eru hátt í sjötíu
þúsund fyrirspurnir á Google um
heilsu og andlega líðan, tugir þús-
unda fyrirspurna á hverri mínútu
á YouTube. Í útvarpsþættinum
Í bítið á dögunum sagði Teitur
Guðmundsson, læknir og fram-
kvæmdastjóri Heilsuverndar, að
fólk sem leitar sér upplýsinga al-
mennt um heilsufar eða jafnvel
greiningar sé á hálum
ís sé heimildarvinn-
an ekki vönduð.
„Þegar á við
sjúkdóma er þetta
efni sem við höf-
um áhyggjur af.
Google er rosa-
lega flott tæki og
það er auðvelt að fá
góðar upplýsingar en
einnig rangar upp-
lýsingar,“ seg-
ir Teitur og
tekur
fram að upplýsingar sem fólk
leitar að á netinu séu líklegri til
að gera sjálfu sér illt, þótt upplýs-
ingavinna sjúklingsins sé yfirleitt
af hinu jákvæða.
„Ég held að enginn lækn-
ir muni viðurkenna það að
hann sé með minni þekk-
ingu en sjúklingurinn al-
mennt. Þetta er gríðarlega
fjölþætt og já, ég viður-
kenni það, það hefur kom-
ið fyrir að ég hafi hitt sjúk-
ling sem veit meira en ég um
ákveðna hluti. Þá þarf ég að
skoða hvort þekkingin
byggist á raunveru-
legum gögnum
eða bara
þvælu.“ n
„Þetta er
ekki bara
einhver
della“
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
Óttar Guðmundsson læknir.
Teitur Guðmundsson, læknir