Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 2
2 15. nóvember 2019FRÉTTIR
Á þessum degi,
15. nóvember
1859 – Ólympíuleikar Zappas voru
settir í Aþenu í fyrsta sinn.
1920 – Fyrsti fundur Þjóðabanda-
lagsins var haldinn í Genf í Sviss.
1978 – Farþegaþotan Leifur Eiríksson
í eigu Loftleiða fórst í aðflugi á
Colombo á Srí Lanka og fórust með
henni 197 manns.
1990 – Samþykkt var í borgarstjórn
Reykjavíkur að gefa afgreiðslutíma
verslana frjálsan.
2008 – Hátt í tíu þúsund manns
mótmæltu á Austurvelli vegna efna-
hagskreppunnar.
skemmtistaðir sem brunnu
Glaumbær – 1971
Glaumbær var stórvinsæll
skemmtistaður og heimastaður
margra íslenskra Bítlabanda.
Eldsupptök eru ókunn en staður-
inn var mannlaus þegar eldurinn
kom upp, en einhver hljóðfæri
fastra hljómsveita brunnu til
kaldra kola.
Tunglið – 1998
Einn af stærstu eldsvoðum í
sögu miðborgarinnar kom upp á
skemmtistaðnum Tunglinu við
Lækjargötu 2. Húsið gjöreyðilagð-
ist og var rifið í kjölfarið. Nýtt hús
var reist á reitnum sem hýsir nú
meðal annars Hard Rock Café og
Grillmarkaðinn.
Batteríið – 2010
Einn skammlífasti skemmtistaður
Reykjavíkur var Batteríið sem var
í Hafnarstræti 1 til 3, Staðurinn
var ekki ætlaður fyrir ungmenni
heldur var áherslan lögð á fólk á
fertugsaldri og upp úr, en hann
hafði aðeins starfað í ár þegar
hann brann.
Klúbburinn – 1992
Klúbburinn í Borgartúni 32 var
stofnaður sem veitingastaður
árið 1960 í þriggja hæða
skrifstofuhúsi með kjallara
Eftir miðnætti aðfaranótt
mánudagsins 3. febrúar árið
1992 fékk slökkviliðið tilkynn-
ingu um að eldur væri laus í
húsinu. Lögregla taldi að um
íkveikju hefði verið að ræða
þar sem eldur hafði blossað
upp á þremur stöðum.
Pravda – 2007
Um tvö leytið miðvikudaginn
18. apríl árið 2007 kom upp
eldur í húsum við Lækjargötu
og Austurstræti og breiddist
hratt út. Eldurinn er talinn
hafa blossað upp út frá
loftljósi í upplýsingamiðstöð
fyrir ferðamenn en síðan læst
klónum í nærliggjandi hús.
Fleyg orð
„Ef þú reynir stöðugt að
vera eðlilegur, munt þú
aldrei vita hversu frábær
þú getur orðið.“
– Maya Angelou
Icelandair kannar
áætlunarflug til Murcia
n Enn mikil óvissa um flugáætlun n Icelandair flýgur mest
til Spánar í leiguflugi
V
iðræður standa yfir
á milli Icelandair og
ferðamálayfirvalda í
Murcia um að hefja beint
flug til borgarinnar árið 2021.
Spænski fréttamiðilinn Murcia
Today greinir frá þessu.
Viðræður fóru fram á
ferðasýningunni World Travel
Market sem haldin var í London
dagana 4.–6. nóvember síðastliðinn.
Sýningin er haldin árlega og er
ein af stærstu sýningunum fyrir
fagaðila í ferðaþjónustu en þar
býðst fyrirtækjum í ferðaþjónustu
tækifæri til að kynna sig og koma á
viðskipta samböndum.
Fram kemur að Icelandair hafi
verið á meðal þeirra sem sýnt
hafi áhuga á því að bjóða upp á
áætlunarflug á milli Keflavíkur
og alþjóðaflugvallarins í Murcia.
Flugvöllurinn er staðsettur í bænum
Corvera sem er í rúmlega hálftíma
akstursfjarlægð frá Murcia.
Murcia er sjötta stærsta borg
Spánar en þar búa um 450 þúsund
manns. Borgin er í rúmlega
klukkustundar akstursfjarlægð frá
„Íslendinganýlendunni“ Torrevieja.
Fram kemur að íbúafjöldi Íslands
geti seint talist mikill og því er talið
ólíklegt að Íslandsflug muni hafa
mikill áhrif á ferðamannageirann
í borginni. Það sé engu að síður
kærkomin tilbreyting að fá
Íslendinga til borgarinnar, enda
hafi Bretlandsflug verið í algjörum
meirihluta hingað til. Þá fái
heimamenn einnig tækifæri til að
flýja hitamolluna á Costa Cálida
yfir sumartímann og komast í ögn
kaldara loftslag.
Óvissa með flugáætlun
Áætlunarflug Icelandair til Spán-
ar hefur takmarkast við sumar-
flug þótt Icelandair fljúgi mik-
ið til Spánar en þá fyrir íslenskar
ferðaskrifstofur. Ef flug til Murcia
gengur eftir verður því breyting
á. Ljóst er að norska lággjalda-
flugfélagið Norwegian hefur stig-
ið fast til jarðar í flugbransanum
á Íslandi með auknu áætlunar-
flugi frá Íslandi til Spánar. Hvort
það hafi áhrif á áætlanir Icelanda-
ir um flug til Murcia er ekki gott að
segja. Hins vegar hefur lítið verið
gefið upp um viðbætur við flugá-
ætlun Icelandair síðustu mánuði.
Einu nýjungarnar sem hafa ver-
ið kynntar að undanförnu er að
hætt verður flugi til San Francisco
og Kansas City næsta sumar. Það
er í raun margt óljóst um hvern-
ig flugáætlun Icelandair verður
háttað á næsta ári og yfir sumar-
tímann. Óvissa er um hvort sæta-
framboð dragist saman eða auk-
ist og helgast það kannski af þeirri
óvissu sem kyrrsetning MAX-þot-
anna hefur í för með sér. n
„Murcia er sjötta stærsta
borg Spánar en þar búa
um 450 þúsund manns
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is