Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Side 32
Vetur 15. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ VIP DEKK: Eru dekkin tilbúin fyrir veturinn? Nú líður að vetri og Reykvíkingar þegar byrjaðir að skafa bílrúðurnar. Við vitum öll hvað það þýðir, því nú er kominn tími til þess að huga að vetrardekkjunum. VIP Dekk býður upp á faglega þjónustu þegar kemur að hjólbörðum og öllu sem þeim fylgir. Fyrirtækið sér meðal annars um umfelgun, ballanseringu, dekkjaviðgerðir og býður upp á dekkjahótel fyrir sumar- eða vetrardekkin. „Við seljum einnig allt sem tengist hjólbörðum á bílum, hvort sem það eru hjólbarðar, felgur, hristiskynjarar, felgurær, felgumiðjur eða annað, við erum með þetta allt í glæsilegu húsnæði okkar að Fosshálsi 7,“ segir Vlad Lavrenov hjá VIP Dekk. Öryggi í færðinni Vlad mælir eindregið með að fólk drífi sig á verkstæðið að láta skoða ástandið á dekkjunum. „Það er ekki seinna vænna enda er veturinn handan við hornið hér á Suðurlandi og nú þegar hafinn víðs vegar um landið. Það er fyrir öllu að vera öruggur í færðinni. Við hjá VIP Dekk veitum fyrsta flokks þjónustu og metum ástandið á hjólbörðum og felgum fljótt og örugglega. Svo erum við ráðleggjandi um framhaldið,“ segir Vlad. VIP Dekk ehf. býður faglega hjólbarðaþjónustu fyrir fólksbíla og jeppa og selur nýja hjólbarða frá GoodYear, Dunlop, Fulda, Sava, Toyo, Pirelli, BFGoodrich og Sailun. „Að auki bjóðum við felgur til sérpöntunar á góðu verði frá Gmp Italia og CMS Wheels. Við höfum verið að selja sífellt meira af hjólbörðum frá GoodYear og GoodYear-fjölskyldunni. Einnig hefur Gmp Italia verið að koma sterkt inn upp á síðkastið. Enda eru þetta fyrsta flokks dekk á frábæru verði.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni vipdekk.is og á Facebook- síðunni vipdekkiceland. VIP Dekk ehf. er staðsett að Fosshálsi 7, 110 Reykjavík. Endilega hafðu samband við okkur í síma: 571-9111 eða 690-9111 Netpóstur: vipdekk@internet.is. Opið er virka daga frá 08–18 og laugardaga frá 10–13.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.