Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Blaðsíða 32
Vetur 15. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
VIP DEKK:
Eru dekkin tilbúin fyrir veturinn?
Nú líður að vetri og Reykvíkingar þegar byrjaðir að skafa bílrúðurnar. Við
vitum öll hvað það þýðir, því nú
er kominn tími til þess að huga að
vetrardekkjunum.
VIP Dekk býður upp á faglega
þjónustu þegar kemur að hjólbörðum
og öllu sem þeim fylgir. Fyrirtækið
sér meðal annars um umfelgun,
ballanseringu, dekkjaviðgerðir og
býður upp á dekkjahótel fyrir sumar-
eða vetrardekkin. „Við seljum einnig
allt sem tengist hjólbörðum á bílum,
hvort sem það eru hjólbarðar, felgur,
hristiskynjarar, felgurær, felgumiðjur
eða annað, við erum með þetta
allt í glæsilegu húsnæði okkar að
Fosshálsi 7,“ segir Vlad Lavrenov hjá
VIP Dekk.
Öryggi í færðinni
Vlad mælir eindregið með að fólk
drífi sig á verkstæðið að láta skoða
ástandið á dekkjunum. „Það er ekki
seinna vænna enda er veturinn
handan við hornið hér á Suðurlandi
og nú þegar hafinn víðs vegar um
landið. Það er fyrir öllu að vera
öruggur í færðinni. Við hjá VIP Dekk
veitum fyrsta flokks þjónustu og
metum ástandið á hjólbörðum og
felgum fljótt og örugglega. Svo erum
við ráðleggjandi um framhaldið,“
segir Vlad.
VIP Dekk ehf. býður faglega
hjólbarðaþjónustu fyrir fólksbíla og
jeppa og selur nýja hjólbarða frá
GoodYear, Dunlop, Fulda, Sava,
Toyo, Pirelli, BFGoodrich og Sailun.
„Að auki bjóðum við felgur til
sérpöntunar á góðu verði frá
Gmp Italia og CMS Wheels. Við
höfum verið að selja sífellt meira
af hjólbörðum frá GoodYear og
GoodYear-fjölskyldunni. Einnig hefur
Gmp Italia verið að koma sterkt inn
upp á síðkastið. Enda eru þetta
fyrsta flokks dekk á frábæru verði.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni vipdekk.is og á Facebook-
síðunni vipdekkiceland.
VIP Dekk ehf. er staðsett að
Fosshálsi 7, 110 Reykjavík.
Endilega hafðu samband við okkur í
síma: 571-9111 eða 690-9111
Netpóstur: vipdekk@internet.is.
Opið er virka daga frá 08–18 og
laugardaga frá 10–13.