Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Qupperneq 36
36 15. nóvember 2019
SAKAMÁL
É
g mun verða frægur,“ sagði
Bretinn Derek Brown við
vinkonu sína. „Þú munt
heyra af mér.“ Vinkona Der-
eks lét þessi orð sem vind um
eyru þjóta, því Derek var 47 ára
gamall sendibílstjóri sem sá sér
farborða með því sendast með
dagblöð á sölustaði um nætur.
Óskhyggja, hugsaði vinkonan.
Nú, hvað sem óskhyggju leið,
þá fór Derek ekki með fleipur, en
frægð hans varð ekki af jákvæð-
um toga því tveimur morðum
síðar varð hann tilefni öskrandi
fyrir sagna í fjölmiðlum.
Tvær ungar mæður
Síðar meir neitaði Derek allri að-
ild að morðunum, en við rétt-
arhöldin, 4. september 2008, kom
fram að fórnarlömbin voru tvær
ungar mæður, en lík þeirra höfðu
þó ekki fundist.
Xiao-Mei Guo, 29 ára, hvarf
fyrst. Hún og eiginmaður henn-
ar, Jin, voru ólöglegir innflytjend-
ur frá Kína og framfleyttu sér með
því að selja sjóræningjaútgáfur
af DVD-myndum á strætum í
Whitechapel í East End í London.
Xiao-Mei hvarf 29. ágúst árið
2007.
Auðveldar bráðir
Þremur vikum síðar hvarf Bonnie
Barrett, 24 ára kókaínfíkill, í
Whitechapel.
Sem fyrr segir þvertók Derek
fyrir að hafa komið nálægt um-
ræddum konum. Talið var að
hann hefði lokkað þær heim til
sín, ráðist þar á þær með ban-
vænum afleiðingum og síðan los-
að sig við líkin.
Báðar konurnar lifðu á jaðri
samfélagsins og unnu fyrir sér á
götum úti. Sækjandi sagði að þær
hefðu verið „auðveld bráð fyrir
morðingja sem áliti að þeirra yrði
ekki saknað.“ Morðingja sem teldi
að fórnarlambanna yrði ekki leit-
að, eða saknað. „Hann fór villur
vegar,“ sagði sækjandinn, Brian
Altman.
Eiginmaðurinn saklaus
Við réttarhöldin var sagt að
Derek hefði hitt Xiao-Mei á
Whitechapel-markaðnum og
hún hefði farið með honum í íbúð
hans í Laburnum Court í suð-
austurhluta London. Derek fékk
hana til þess undir því yfirskini
að hann vildi sannreyna gæði
DVD-diskanna sem hún hafði á
boðstólum.
Xiao-Mei Guo sást ekki, lifandi
eða látin, eftir þessa heimsókn.
Oft eru eiginmenn myrtra eða
horfinna kvenna grunaðir um
græsku, en sá möguleiki var ekki
fyrir hendi í þetta skipti því eigin-
maður Xiao-Mei var á bak við lás
og slá þegar hún hvarf. Jin Guo
losnaði ekki úr grjótinu fyrr en
hálfum mánuði síðar. Reyndar
vakti hvarf Xiao-Mei ekki athygli
fyrr en sex dögum eftir að hún
hvarf og vinur hennar vakti
athygli lögreglunnar á því.
Fjármögnun fíknar
Lifibrauð Bonnie Barrett var af
öðrum toga en hjá Xiao-Mei, þótt
báðar ynnu á götum úti. Bonnie
seldi sig til að fjármagna kókaín-
fíkn sína. Í bransanum var hún
þekkt sem „clipper“, hugtak not-
að yfir vændiskonur sem tóku
við greiðslu en létu sig svo hverfa
áður en viðskiptin komust á
næsta stig.
Bonnie deildi íbúð í Newham
með vini sínum, en samband
hennar og barnsföður hennar
hafði, þegar þarna var komið við
sögu, runnið sitt skeið. Með þeim
manni hafði hún eignast son,
sem þá var sex ára.
Fátt sameiginlegt
Það lá ljóst fyrir að Bonnie og
Xiao-Mei áttu fátt sameiginlegt;
þær þekktust ekki og leiðir þeirra
höfðu aldrei legið saman svo vit-
að væri. Þó áttu þær það óum-
deilanlega sameiginlegt að þær
voru báðar horfnar og ekkert hafði
spurst til þeirra og af þeim hafði
hvorki fundist tangur né tetur.
Einnig áttu konurnar það sam-
eiginlegt að vísbendingar, bein-
ar og óbeinar, sýndu svo ekki varð
um villst að hvarf þeirra mátti að
einhverju leyti rekja til Dereks
Brown.
Iðinn vændisnotandi
Derek Brown sem vildi verða
frægur myndi fá ósk sína upp-
fyllta. Derek hafði þá nýlega sagt
skilið við sambýliskonu sína til
langs tíma. Hann átti sjö börn
með fjórum konum og nýtti
sér í miklum mæli þjónustu
vændiskvenna.
Upptökur úr eftirlitsmynda-
vélum staðfestu að Xiao-Mei
hafði síðast sést á lífi í fylgd Der-
eks og þá í aðeins 800 metra fjar-
lægð frá þeim stað sem Bonnie
hvarf frá þremur vikum síðar.
Mýgrútur af vísbendingum
Í íbúð Dereks fundust leifar af
65 aðskildum blóðtaumum á
veggjum, í lofti og á gólfi. Þar
fann lögreglan einnig kvittanir
fyrir bogasög, vinnuvettlingum,
hreinsiefnum og ruslapokum.
Gólfteppi höfðu verið rifin upp
og veggfóður fjarlægt, fata full af
vatni stóð reiðubúin til notkun-
ar og blóðblettir á baðherbergi
gáfu til kynna að þar hefði eitt-
hvað miður hugnanlegt átt sér
stað. Að auki fannst bókin Killers
FÓRNAÐ Á ALTARI FRÆGÐAR FÚLMENNIS
n Tvær ungar konur hurfu með skömmu millibili í London n Áttu það eitt sameiginlegt að vinna á götum úti n Derek Brown vildi verða frægur n Honum varð að ósk sinni, um sinn„Ég
mun
verða fræg-
ur. Þú munt
heyra af mér.
Átti frægðardrauma
Derek Brown átti vafa-
sama fortíð.