Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2019, Page 38
38 PRESSAN 15. nóvember 2019
Hér höldum við áfram umfjöllun um nokkrar af undarlegustu sam-særiskenningum síðari tíma en fyrri hlutinn var birtur í síðasta tölublaði DV.
Breska konungsfjölskyldan er vinsæl hjá sam-
særiskenningasmiðum og kannski ekki að furða
því meðlimir hennar eru mikið í fréttum og
ýmis mál hafa komið upp tengd fjölskyldunni.
Segja má að samsæriskenningasmiðir hafi ver-
ið í essinu sínu í kjölfar andláts Díönu prinsessu
sem lést í bílslysi í París í ágúst 1997. Þá fóru
strax á kreik kenningar um að hún hefði verið
myrt. Fjölmargar rannsóknir hafa farið fram á
atburðarásinni sem leiddi til andláts Díönu og
fjölmargir sérfræðingar hafa komið að þeim.
Niðurstaða þeirra allra er á þá leið að það hafi
verið bílstjóra hennar, Henri Paul, að kenna að
slysið átti sér stað því hann hafði neytt áfengis
fyrir aksturinn. Þetta hefur þó ekki dugað til að
halda aftur af samsæriskenningasmiðum sem
eru margir sannfærðir um að hér hafi verið um
samsæri á vegum breskra stjórnvalda að ræða.
Það hefur styrkt þá í sannfæringu sinni að Mo-
hamed al-Fayed, faðir Dodi al-Fayed sem einnig
lést í slysinu, hefur haldið því fram að skötuhjúin
hafi verið myrt að skipan bresku konungsfjöl-
skyldunnar sem gat ekki hugsað sér að móð-
ir verðandi konungs, Vilhjálms prins, ætti barn
með syni hans því hann væri múslimi. Þessar
samsæriskenningar komust á svo mikið flug,
ekki dró úr dreifingu þeirra að dagblaðið Daily
Express fjallaði mikið um þær, að Lundúnalög-
reglan sá sig tilneydda til hefja sérstaka rann-
sókn á sannleiksgildi þessara kenninga. Rann-
sóknin kostaði milljónir punda. Niðurstaða
hennar var að ekkert væri hæft í þessum sam-
særiskenningum.
Flest ef ekki öll vitum við að Finnland er eitt norrænu ríkjanna og að þar búa að mestu Finnar. En sam-
kvæmt kenningu sem fór af stað á samfélagsmiðlinum Reddit árið 2016 þá er Finnland bara ekki til!
Samkvæmt kenningunni þá er Finnland bara hluti af Eystrasalti og fólk sem segist búa þar býr í raun í
austurhluta Svíþjóðar, vesturhluta Rússlands eða norðurhluta Eistlands. Þetta fór af stað sem brandari
en vatt fljótt upp á sig og hefur verið á nokkru flugi um netheima síðan. Út frá þessari kenningu spunn-
ust margar aðrar tengdar þessu máli. Þar á meðal ein sem útskýrði af hverju Rússar og Japanir hefðu
ákveðið árið 1918 að skálda upp tilvist Finnlands. Samkvæmt þeirri kenningu ákváðu Rússar og Japan-
ir að „búa“ Finnland til svo Japanir gætu stundað fiskveiðar á hafsvæði sem væri í raun og veru til án
þess að þurfa að sæta kvörtunum umhverfissinna vegna veiðanna. Fiskurinn sem veiðist þarna er að
sögn síðan sendur með járnbrautalest í gegnum Rússland og Síberíu til Japan undir þeim formerkjum
að verið sé að flytja vörur frá Nokia. En hefðu önnur ríki ekki tekið eftir þessu? Jú, segja samsæriskenn-
ingasmiðir en þau hafa að þeirra sögn ákveðið að halda þessu leyndu og leyfa „Finnlandi“ að vera til og
gegna einhvers konar hlutverki fyrirmyndar betri heims. Ekkert ríki getur að þeirra mati náð svo góðum
árangri í menntakerfinu, heilbrigðismálum, jafnrétti kynjanna, hlutfalli læsra landsmanna, pólitískum
stöðugleika, lítilli spillingu, frelsi fjölmiðla og fleiru að mati samsæriskenningasmiða. Hér sé því um að
ræða ríki, sem ekki er til sem ríki og fólk getur sótt hvatningu til.
Meghan Markle, eiginkona Harrys Bretaprins, er umdeild og
mikið í kastljósi fjölmiðla og almennings. Í júni birtist mynd-
skeið sem sýndi hana og Harry horfa á úrslitakvöld Britain‘s Got
Talent. Á upptökunni sjást hjónin sitja meðal almennra áhorf-
enda og klappa og fagna eins og aðrir en þau sýna að sögn engin
svipbrigði, blikka ekki einu sinni augunum. Þetta hratt af stað
samsæriskenningum um að hjónin séu bæði vélmenni eða eigi
vélmenni sem þau geti látið sinna opinberum skyldum sínum.
En það sem samsæriskenningasmiðir hafa ekki látið trufla sig
við smíðar sínar er að hér var um auglýsingu að ræða á vegum
Madame Tussauds-vaxmyndasafnsins í Lundúnum. Rétt er að
hjónin voru ekki til staðar á sýningunni. Hér var einfaldlega um
tvo leikara að ræða og voru þeir með grímur til að líkjast her-
togahjónunum sem mest.
Því hefur lengi verið haldið fram að geimfar frá annarri plánetu
hafi brotlent í Roswell í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum 1947.
Bandaríkjaher hefur vísað þessu á bug og segir að hér hafi verið um
veðurloftbelg að ræða. Sú skýring hefur ekki hugnast samsæris-
kenningasmiðum sem hafa lengi haldið því fram að geimfarið hafi
verið flutt á Svæði 51 (Area 51) í Nevadaeyðimörkinni og þar sé
það geymt. Einnig hafa þeir haldið því fram að lifandi geimverur
og fleiri geimför séu þar og að Bandaríkjaher hafi stundað um-
fangsmiklar rannsóknir á geimverum og fararskjótum þeirra. Með-
al annars hefur verið birt myndskeið af „krufningu á geimveru“
en sýnt hefur verið fram á að það er falsað. Það eykur auðvitað á
dulúðina og samsæriskenningar að Svæði 51 er harðlokað og vel
gætt af hermönnum.
Nokkrar af undarlegustu samsæriskenningum síðari tíma – Seinni hluti
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
n Finnland er ekki til n Morðið á John F. Kennedy og vélræna Meghan Markle
Díana prinsessa var myrt
Finnland
er ekki til
Meghan
Markle er
vélmenni
Svæði 51
Díana og Karl á brúðkaupsdaginn.
Meghan Markle Getur
verið að hún sé vélmenni?