Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Blaðsíða 4
4 13. september 2019FRÉTTIR
Lilja „nagli“ Alfreðsdóttir
L
ilja Alfreðsdóttir varpaði
sprengju á dögunum,
sprengju sem Svarthöfði
var búinn að bíða óþreyju-
fullur eftir. RÚV af auglýsinga-
markaði. Var þetta í alvörunni
satt? Svarthöfði þurfti að marg-
smella á fréttir af þessum tíðind-
um og flakkaði á milli virtustu
vefmiðla landsins til að athuga
hvort þetta væri ekki örugglega
satt.
Eins og óður maður hrópaði
Svarthöfði upp svo skalf í tré-
bitunum í loftinu þegar hann
komst að raun um að þetta væri
satt. Lilja „nagli“ Alfreðsdóttir
ætlaði að gera það sem hefur ver-
ið karpað um svo lengi sem elstu
menn muna. Svarthöfði hélt að
það næðist almenn og breið sátt
um þessar pælingar sem hafa
verið svo lengi í farvatninu. Ann-
að kom hins vegar á daginn.
Allt í einu poppuðu upp gel-
greiddir auglýsingagerðarmenn
í flauelsjökkum og kveinkuðu
sér mjög yfir fregnunum. Þessi
aðgerð Lilju myndi þýða fall ís-
lenskrar kvikmyndagerðar, þar
sem svo margir kvikmynda-
gerðarmenn drýgja tekjurnar
með auglýsingagerð. Það væri
auðvitað ekki hægt að birta dýrar
og fínar auglýsingar nema á RÚV.
Nú spyr Svarthöfði eins og algjört
flón: Hvar voru þessar gagnrýn-
israddir í öll þessi ár sem talað
hefur verið um að taka RÚV af
auglýsingamarkaði. Það eru ekki
eins og þetta séu nýjar fréttir. Get-
ur verið að þessi bomba Lilju hafi
verið gullið tækifæri fyrir auglýs-
ingastofumógúla til að halda sér
í umræðunni í skugga uppsagna
og taprekstrar íslenskra auglýs-
ingastofa? Svarthöfði spyr sig.
Aðrar raddir sem Svarthöfða
finnst svolítið kostulegar eru
þær sem halda því fram að RÚV
tapi sjálfstæði sínu ef stofnun-
in er tekin af auglýsingamark-
aði. Sama fólk kvartar yfir einka-
reknum fjölmiðlum og þeirra
meinta ósjálfstæði sem sé of-
urselt fjármagnsöflum. Hvaða
endemis bull er þetta? Þeir sem
þekkja fjölmiðlaumhverfi vita
hve heftandi það getur verið, ef
eigendur eru þöngulhausar, að
vera á auglýsingamarkaði. Og
þeir sem þekkja fyrrnefnt um-
hverfi vita að ríkis sjónvörp í
löndunum í kringum okkur eru
einmitt ekki á auglýsingamark-
aði til að tryggja ritstjórnarlegt
sjálfstæði.
Svarthöfði horfir reyndar
lítið á RÚV þar sem hann er lítið
fyrir sinfóníutónleika, heilalausa
spurn-
ingaleiki
um mál-
far og
fréttir af tveimur frænkum á Súg-
andafirði sem fundu sjaldgæfa
skel í fjörunni. Svarthöfði telur
að dagskrá RÚV geti ekki orðið
mikið verri og telur það frábæra
hugmynd að taka stofnunina af
auglýsingamarkaði. Þá myndu
stjórnendur kannski hugsa sig
tvisvar um áður en þeir eyða al-
mannafé í vitleysu og búa til alvöru
gæðaefni. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Forn-egypskir prestar plokkuðu öll hár
af líkamanum, líka augnbrúnirnar og
augnhárin.
Stærsti heili í dýraríkinu er heili búr-
hvalsins en hann vegur hátt í 8 kíló.
Á undanförnum árum hafa fleiri
látist við að taka sjálfsmyndir en af
völdum hákarlaárása.
Hóll er algengasta bæjarnafn á
Íslandi, 31 bær ber það. Á eftir koma
Hvammur og Bakki.
Hver er
hún
n Hún er fædd 8.
febrúar árið 1977.
n Hún er tónlistarkona
og á ekki langt að
sækja hæfileikana.
n Hún gaf út sína fyrstu plötu árið
2001 og hefur vakið mikla lukku
með hljómsveitunum Steed Lord
og Blissfull.
n Hún hefur verið búsett í Los
Angeles í tæpan áratug.
n Hún gerði samning í fyrra við
útgáfurisann Sony um dreifingu á
nýrri plötu.
SVAR: SVALA BJÖRGVINSDÓTTIR
Netþrjótar kúga Íslendinga með klámi
n Netglæpir mismunandi eftir árstíðum n Hótað að birta mynd-
bönd af einstaklingum að fróa sér n „Rómantísk-svik“ algeng
N
etglæpir hafa aukist mjög
á heimsvísu og hér á landi
fær lögregla talsvert af slík-
um málum inn á sitt borð.
Þórir Ingvarsson, lögreglufulltrúi
hjá Lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu, segir glæpina viðvar-
andi og birtingarmyndir þeirra
fjölbreyttar. „Við sjáum töluvert
af netglæpum, en leiðirnar sem
eru notaðar eru mismunandi eft-
ir árstíðum. Í sumar er mikið um
glæpi tengda leiguíbúðum en ég
reikna með að þeim fari fækk-
andi á næstu vikum. Talsvert er
um að fólk fái tölvupóst eða skila-
boð á Facebook þar sem viðkom-
andi einstaklingi er sendur póst-
ur. Hann er settur þannig upp að
sendandi segist hafa undir hönd-
um myndband, tekið úr tölvu eða
snjallsíma og viðkomandi hafi þá
verið inni á klámsíðu og hafi ver-
ið að fróa sér. Manneskjunni eru
þá settir afarkostir; að leggja inn
tiltekna upphæð því annars fari
myndbandið í almenna dreifingu.
Þetta er ákveðin tegund af svindli
sem hefur gengið í áratugi, en
mikilvægt er að fólk átti sig á að
svikahrappar hafa ekki aðgang að
myndavélum fólks nema það hafi
sjálft samþykkt það.“
Þórir segir einnig að netglæpa-
menn svífist einskis og hiki ekki
við að spila inn á tilfinningar
fólks.
„Eflaust verða margir hrædd-
ir um slíkar myndbirtingar en
það sanna er að þessir óprúttnu
einstaklingar hafa ekkert und-
ir höndum. Við vitum hins vegar
ekki hversu margir falla fyrir slíku,
en kannski leita þeir sem verst
fara aldrei til lögreglunnar. Við
sjáum töluvert um þessa glæpi en
þeir birtast í líka í alls konar öðr-
um formum. Svikatilraunir hafa
alltaf fylgt okkur og eru í grunninn
alltaf mjög svipaðar. Svokölluð
„rómantísk-svik“ eru líka töluvert
algeng þar sem óprúttnir einstak-
lingar stofna til gerviaðganga og
senda vinabeiðnir á ókunnugt
fólk í gegnum Facebook. Mark-
miðið er alltaf það sama: að kúga
fé út úr fólki. Annars er hægt að
sjá svona svikatilraunir með ótrú-
lega mörgum leiðum og ólíku
yfir bragði.“
Mikilvægt að vera gagnrýnin á
þau gögn sem berast
Þórir segir engan einn þjóðfélags-
hóp líklegri en annan til að verða
fyrir barðinu á netglæpastarfsemi.
„Svik sem þessi fylgja netinu og
því er enginn sérstakur hópur
sem herjað er á heldur allir sem
hafa ýmist tölvupóst eða aðgang
á Facebook. Með öðrum orðum,
um það bil allir. Og þetta á auð-
vitað líka við þegar kemur að alls
konar fyrirtækjum sem mörg hver
hafa lent illa í því.“
Spurður hvort hann telji
ákveðinn hóp líklegri til að glepjast
en annan vefst Þóri tunga um tönn
enda sé erfitt að áætla slíkt út frá
tilfinningu. „Við þyrftum í raun að
gera línulega rannsókn um það
en auðvitað óttast maður mest
um þá sem hafa ekki mikla þekk-
ingu á internetinu. Ég held þó að
það geti verið hver sem er og á
hvaða aldri sem er. Mín ráð eru
fyrst og fremst þau að brýna fyrir
fólki mikilvægi þess að vera vak-
andi fyrir öllu svona og gæta þess
að vera gagnrýnið á þau gögn sem
berast. Leggja alls ekki inn pen-
inga á einhvern reikning nema
að vel ígrunduðu máli og ef það
á að greiða fjármuni að greiða þá
með viðurkenndum leiðum. Mik-
ið af svikum tengdum leiguíbúð-
um ganga einmitt út á þetta og þá
er lykilatriði að greiða aldrei utan
hefðbundinna greiðsluleiða held-
ur nota viðurkenndar aðgerðir til
þess. Í fæstum tilfellum er verið
að finna upp hjólið heldur halda
þessir þrjótar sig við þær leiðir
sem hafa virkað nú þegar.“
Alltaf einhverjir sem láta
blekkjast og borga
Spurður hvernig gangi að hafa
hendur í hári svikahrappa segir
Þórir að í langflestum tilfellum sé
um erlenda einstaklinga að ræða,
einkum og sér í lagi frá löndum
sem erfitt sé að nálgast upplýs-
ingar frá. „Fólk leitar talsvert til
okkar, bæði til þess að fá upp-
lýsingar eða leita ráða varðandi
áhyggjur sínar. Svo eru alltaf ein-
hverjir sem hafa látið blekkjast og
borgað, þeir koma þá til okkar og
vilja kæra, það er allur gangur á
þessu.“
En hvað er fólk að greiða háar
upphæðir? „Það getur líka ver-
ið mjög misjafnt, alveg frá því að
vera tiltölulega lágar fjárhæðir
yfir í gríðarlega háar og allt þar á
milli. Það er auðvitað ekki okk-
ar að meta hversu varanleg áhrif
svona lagað getur haft á líðan
fólks, en eins og með öll brot sem
fólk verður fyrir hafa þau alltaf
einhver áhrif.“ n
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is „Mark-
miðið
er alltaf það
sama: að kúga
fé út úr fólki.
Aldrei er góð vísa of oft
kveðin Lögreglan biður fólk
að vera á varðbergi gagnvart
tölvuþrjótum.