Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Síða 20
20 13. september 2019FRÉTTIR Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is Óskum eftir bílum á söluskrá, höfum laus sölustæði, kíktu við! Hin mörgu andlit matarsóunar M ikið hefur verið rætt um núvitund þegar mat ber á góma og það predikað að fólk hugsi betur um hvað það lætur ofan í sig, ekki bara út frá heilsufarslegum sjón­ armiðum heldur einnig til að njóta matarins betur. Þá gleym­ ist hins vegar að spá í allan mat­ inn sem við borðum ekki, endar í ruslinu eða skemmist innst í ísskápnum. Samkvæmt nýrri skýrslu frá World Resources Institute, óhagnaðardrifins rann­ sóknarfyrirtækis, kemur fram að matarsóun sé einn stærsti þáttur í loftslagsbreytingum sem okkur mannfólkinu yfirsést. Á meðan ofuráhersla er lögð á að sporna við plastnotkun, bílaumferð og olíubruna þá gleymist matar­ sóunin. Þriðjungi sóað Samkvæmt skýrslunni mælist matarsóun sem átta prósent af árlegri losun gróðurhúsaloft­ tegunda. Nærri þriðjungi alls matar sem framleiddur er í heim­ inum á ári hverju er sóað, fjórð­ ungur alls vatns í heiminum er notaður til að framleiða matinn sem er sóað á hverju ári og til að rækta allan þennan mat sem end­ ar í ruslinu þarf ræktunarsvæði á stærð við Kína. Skýrsluhöfundar vara enn fremur við því að ef ekk­ ert sé gert til að sporna við mat­ arsóun á næstu þremur áratug­ um þurfi að breyta landi á stærð við Argentínu í eitt, stórt ræktun­ arsvæði til að mæta matarþörfum jarðarbúa. Ef við minnkum hins vegar matarsóun okkar um helm­ ing fyrir árið 2030 getum við enn fætt jarðarbúa án þess að eyði­ leggja jörðina. Skýrslan fer ítar­ lega yfir hvernig yfirvöld, fyrir­ tæki, endursöluaðilar, bændur og neytendur þurfa allir að leggjast á eitt til að ná þessum markmiðum. Matarsóun orðin að vana Fyrir okkur Evrópubúa er auð­ veld lausn á þessu vandamáli – einfaldlega að henda minna af afgöngunum okkar eða mat sem við viljum ekki borða. Sama má segja um íbúa Norður­Ameríku. Lausnin er hins vegar flóknari í þróunarlöndum og á öðrum stöðum í heiminum. Samtals er 1,3 milljörðum tonna af mat sóað á ári hverju, en þriðjung­ ur þess magns fer til spillis í þró­ unarlöndunum. Það orsakast af því að bændur ná ekki að koma vörum sínum nógu fljótt á mark­ að áður en þær skemmast vegna skorts á kælitækjum og slæms vegakerfis. Öðrum þriðjungi af þessum 1,3 milljörðum tonna er sóað í ríkum löndum þar sem neytendur klára einfaldlega ekki af diskunum. Restin er síðan vegna vandamála með vinnslu, pökkun og dreifingu á matvæl­ um. Neytendur bera ábyrgð á 60 prósentum matarsóunar í Norður­ Ameríku og rúmlega 40 prósentum í Evrópu. Við kaupum meiri mat en við notum og plön­ um ekki nógu vel hvað við ætlum að borða. Margir vinna mikið og kaupa oft í matinn. Innkaupalist­ ar eru á undanhaldi sem verð­ ur oft til þess að við fyllum ís­ skápinn af mat sem við þurfum ekki. Við eldum of mikið þannig að afgangar eru miklir. Þessir af­ gangar eru síðan ekki hitaðir aftur upp og borðaðir. Svo virðist sem matarsóun í Norður­Ameríku og Evrópu sé orðin daglegt brauð, eins konar vani. Meira endar í ruslinu en sýnist Matarsóun er mikið stærra vandamál en fólk heldur og oft hendum við miklu meira í ruslið en sýnist. Ef dæmi er tekið um eitt hamborgarabuff þá þarf 53 lítra af vatni, tæp sex kíló af nauta­ fóðri og tæplega sex fermetra af landi til að framleiða eitt buff, svo ekki sé minnst á kolefnafótspor­ ið við að ala, slátra, pakka, geyma og selja buffið. Ef þetta buff dagar uppi í frystinum og endar í ruslinu er allri þessari vinnu og hráefn­ um hent líka. Hins vegar er öll matarsóun ekki eins. Framleiðsla á nautakjöti og mjólkurvörum ber stærsta kolefnafótsporið en ávextir og grænmeti minnst. Hins vegar er engin lausn fólgin í því að henda miklu magni af ávöxtum en klára alltaf af diskinum þegar kjöt er í boði. Nú eða gerast græn­ keri. Nærtækt dæmi er eplahýði. Ef þú tekur hýðið af hverju epli og hendir því í ruslið jafngildir það því að henda tíunda hverju epli á heimilinu. Í stærra sam­ hengi væri það hrein hörmung ef tíu prósent allra epla í heiminum enduðu í ruslinu. Þannig að litlir hlutir og breyttar venjur geta haft stór áhrif. Nú þegar sjáum við á Íslandi að hægt er að kaupa útrunnar vörur, og vörur sem líta ekki vel út, á afslætti. Af þessu má gera meira, ef marka má skýrsluhöf­ unda. Einnig þarf þróun í betri pakkningum á matvælum að vera hraðari svo vörur endist lengur í verslunum. Það hvílir á fyrirtækj­ um og yfirvöldum að spýta í lóf­ ana þar. Veitingastaðaeigendur þurfa líka að hugsa sinn gang og minnka skammtastærðir og vera skynsamari í innkaupum. Það er allt í lagi þótt einhverjir réttir á matseðlinum klárist eða snúðarnir í bakaríinu. Skýrslu­ höfundar í raun impra á því að matarsóun sé ekki einkavanda­ mál fárra heldur alheimsátak sem þarf að ráðast í, helst strax í gær. n Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Mest sóun í Norður-Ameríku Hér má sjá matarsóun eftir heimsálfum. Margar ástæður Hér má sjá helstu ástæður matarsóunar í mismunandi löndum. Hræðileg þróun Matarsóun leikur stórt hlutverk þegar kemur að kolefnis- fótsporinu. Mynd: Getty Images

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.