Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 24
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐ BÍLARÉTTINGAR SÆVARS: Gamalgróið fyrirtæki sem býr að áratuga reynslu Bílaréttingar Sævars er gam-algróið bifreiðaverkstæði sem sér meðal annars um bíla- sprautun, bílaréttingar og tjónamat á vegum tryggingafélaganna. „Við höfum verið starfandi frá árinu 1985 og má segja að það sé hálfgerður fjölskyldubragur yfir starfseminni. Hann Gestur, eiginmaður minn, keypti fyrirtækið af honum Sævari árið 2014 og sonur hans Sævars starfar svo hjá okkur á verkstæðinu,“ segir Eyrún Gísladóttir. „Flestir viðskiptavinir okkar eru bílaeigendur sem hafa lent í tjóni og fengið það bætt hjá sínu trygginga- félagi. Fyrst er byrjað á tjónamati og svo er gefinn tími fyrir viðgerðir á bílnum. Oft þarf að panta inn varahluti, sem getur tekið sinn tíma. Við sjáum um alla þá vinnu sem þarf til þess koma bílnum í gott form. Hér starfa tíu reyndir og menntaðir starfsmenn og getum við því boðið viðskiptavinum okkar upp á snögga þjónustu þar sem gæði og skilvirkni er í fyrirrúmi. Einnig reynum við eftir fremsta megni að vera eins um- hverfisvæn og hægt er.“ Þjónusta líka einstaklinga „Auðvitað fáum við einnig til okkar viðskiptavini sem koma til okkar á eig- in vegum. Margir hverjir eru að láta laga rispur eða láta rétta. Aðrir eru með stærri verkefni eins og vörubílaviðgerðir, eða eigend- ur fólksbifreiða sem vilja láta endur- sprauta bílana og fleira. Hingað hafa líka í gegnum tíðina komið fjölmargir eigendur fornbíla til þess að setja bíl- inn í allsherjar yfirhalningu. Þá hlakkar í okkar mönnum við að fá glæsilegar drossíur að handleika. Við tökum glöð á móti öllum gerðum verkefna, stór- um sem smáum.“ Hágæðaefni fyrir hámarksárangur „Við notum ætíð hágæða efni í alla okkar vinnu. Þá notum við t.d. Spies Hecker málningu í alla okkar bíla- sprautun, en málningin er talin ein sú allra besta á markaðnum. Auk þess erum við með tvo öfluga sprautuklefa sem ganga fyrir vatni, en fyrir okkur skiptir máli að vera eins umhverfissinnuð og hægt er. Við erum einnig með tvo full- komna tölvustýrða réttingarbekki. Til að bæta við þjónustuna þá þrífum við einnig alla bíla vel og vandlega sem koma í gegn hjá okkur og því fá viðskiptavinir okkar bílana sína í toppstandi til baka.“ Nánari upplýsingar á bilarettingar.is Skútuvogi 12h, Reykjavík Sími 568-9620 bilarettingar@bilarettingar.is Fylgstu með á Facebook: Bílaréttingar Sævars

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.