Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Síða 37
Allt fyrir bílinn 19. september 2019 KYNNINGARBLAÐ
Ávinningur fyrir umhverfið
og bankareikninginn að
kaupa notaða bílaparta
Bílapartasalan Japanskar Vélar hefur verið starfrækt í tæp 30 ár. „Við erum þrjú sem störfum
hjá Japönskum Vélum, það er ég,
dóttir mín Dagrún og svo Damian
sem er mikill þúsundþjalasmiður.
Við erum aðallega í því að kaupa
tjónabíla af tryggingafélögunum,
einstaklingum og á bílauppboðum
eins og hjá Króki og rífa niður í
bílaparta. Aðallega kaupum við
bíltegundir frá Asíu og Evrópu,“ segir
Hlöðver Hjálmarsson.
Stór og góður lager
Alla jafna eru um 150–200 bílar í
umferð hjá Japönskum Vélum og
því góður möguleiki á að partasalan
eigi nákvæmlega varahlutinn sem
þig vantar. „Ferlið er einfalt og virkar
þannig að viðskiptavinur hefur
samband við okkur í síma 565-
3400, tölvupósti: japvel@carparts.
is eða gegnum Facebook messenger
og telur fram hvaða varahlut vantar.
Þá förum við í gegnum lagerinn
okkar og leitum að viðeigandi
bílapart. Við reynum að svara eins
fljótt og auðið er hvort við eigum það
sem vantar eður ei.“
Sparaðu tíma, flutning og
endsneyti
Það felst gríðarlegur ávinningur
fyrir bæði budduna og umhverfið
í að endurnýta varahluti frekar
en að flytja þá inn glænýja úr
verksmiðjunni. „Í langflestum
tilfellum gerir notaður bílapartur
nákvæmlega það sama og
nýr varahlutur. Það er ótrúleg
sóun að henda bara gömlum
bílum og kaupa allt glænýtt
og ónotað. Svo ég tali nú
ekki um sparnað í tíma,
flutningi og eldsneyti. Nýjan
varahlut þarf að smíða
og flytja, oftar en ekki á
milli landa sem getur
tekið langan tíma. Það
jarðeldsneyti sem fer
í bæði framleiðslu
og flutning sparast
við það að nota
einfaldlega
notaðan bílapart.
Hvers vegna ekki
að athuga fyrst
hvort við eigum
varahlutinn?“
segir
Hlöðver.
Japanskar
Vélar ehf.
Dalshraun 26,
220 Hafnarfjörður,
Sími: 565-3400
japvel@carparts.is
Fylgstu með
á Facebook:
Japanskar vélar ehf