Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 44

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 44
Allt fyrir bílinn 19. september 2019KYNNINGARBLAÐKYNNING KitchenAid – Ástríða og nýjungar í 100 ár Síðan hin heimsþekkta hrærivél var fyrst kynnt til sögunnar árið 1919 og fyrsta uppþvottavélin 1949, hefur KitchenAid byggt á grunni þessara goðsagnakenndu tækja til þess að þróa heilu vörulínurnar, sérstaklega gerðar fyrir fólk með ástríðu fyrir matargerð. Ástríðurauður Fyrr á þessu ári kom út sérstök 100 ára afmælislína, Queen of Hearts, þar sem rauður einkennislitur KitchenAid var heiðraður. Þessi nýi, rauði litur hlaut nafnið „passion red“, eða ástríðurauður. Það sem einkennir þessa einstöku 100 ára afmælislínu er rauður borði skreyttur með hundruðum örsmárra hjartna, fyrir allar þær minningar sem fjöldi ástríðufullra heimakokka hefur skapað síðustu 100 ár. Ekki bara hrærivélar Flestir þekkja hrærivélina, sem er stolt og prýði í eldhúsum margra landsmanna. En stóru heimilistækin frá KitchenAid eru einnig hönnuð með þægindi í huga og til að auðvelda handtökin í eldhúsinu. Við hönnun tækjanna er tekið tillit til athugasemda fagfólks. Fylgst er með kokkum við störf og þannig má greina þarfir þeirra sem elda mikið. Með þessu móti er hægt að hanna tæki sem bæta eldhúsið og matargerðina fyrir alla. Heimilistækin frá KitchenAid eru hönnuð til að endast, bæði hvað varðar útlit og gæði. Í dag býður KitchenAid upp á nærri því öll möguleg tæki sem þarf í vel útbúið nútímaeldhús. Vörulína KitchenAid inniheldur allt frá hrærivélum, búsáhöldum og vínskápum til eldunartækja og kæliskápa. KitchenAid í þvottahúsið Vörulínan nær meira að segja alla leið í þvottahúsið! Núna er þessi glæsilega og öfluga, 10 kílóa stálþvottavél frá KitchenAid fáanleg í Raflandi. Hún er með ZEN hljóðlátum beindrifnum mótor, íslensku skjáborði og Wave Motion tækni sem tryggir betri þvottagæði á öllum kerfum. Tímastýrð ræsing, fimmtán mismunandi þvottakerfi og sérstakt 30 mínútna hraðkerfi auðveldar húsverkin fyrir annasamt heimilislífið. Rafland er stærsti söluaðili KitchenAid á Íslandi – í heimilistækjadeild Raflands, Síðumúla 4, má skoða úrvalið af KitchenAid hrærivélum og heimilistækjum og starfsfólk þar getur svarað öllum spurningum varðandi meðhöndlun og notkun KitchenAid. Einnig má skoða úrvalið á rafland.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.