Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Qupperneq 52
52 PRESSAN 13. september 2019
Í
tæpan áratug var morðmál,
tengt hinni ríku Oland-fjöl-
skyldu, í New Brunswick í
Kanada, eitt heitasta málið
þar í landi. Sumir hafa líkt því
við söguþráð í sápuóperu, svo
ótrúlegt er málið. Það hófst að
morgni 7. júlí 2011 þegar Ric-
hard Oland, 69 ára, fannst látinn.
Hann lá á grúfu með andlitið
ofan í blóðpolli, hans eigin blóði.
Niðurstaða rannsóknar réttar-
meinafræðinga var að hann
hefði verið drepinn kvöldið áður
með 45 höggum í höfuð, háls og
útlimi. Rolex-úrið hans var enn á
honum en farsími hans var horf-
inn og morðvopnið einnig.
Tveimur árum síðar var son-
ur hans, Dennis Oland, sem er
nú 51 árs, handtekinn og ákærð-
ur fyrir að hafa myrt föður sinn.
Hann var fundinn sekur um
morð af tólf manna kviðdómi
2015. En það var aðeins upphaf
málsins því eftir það varð það
uppspretta margra frétta og um-
ræðu meðal almennings.
Dennis áfrýjaði dómsniður-
stöðunni og hafði betur, mál
hans var tekið fyrir af hæstarétti
og réttarhöldin voru úrskurðuð
ógild.
Eins og léleg sápuópera
Íbúar í New Brunswick hafa fylgst
vel með málinu allt frá upphafi
og hafa margir hverjir skoðun á
því, en hver sem skoðun þeirra er
þá eru flestir sammála um að það
líkist einna helst lélegri sápu-
óperu. Svo lélegri að sápuróper-
ur, sem sýndar eru í sjónvarp-
inu, séu eiginlega betri þrátt
fyrir að vera ansi lélegar.
Það var hjákona Ric-
hards, Diana Sedlacek, sem
tók fyrst manna eftir því
að eitthvað var að. Í átta ár
hafði Diana átt í ástarsam-
bandi við auðjöfurinn. Svo
virðist sem samband þeirra
hafi verið leyndarmál sem
allir vissu um. Þegar Richard
svaraði ekki hringingu henn-
ar um kvöldið, en þau voru
vön að ræða saman á hverju
kvöldi, hringdi hún í eiginkonu
hans, Connie, til að spyrja hvar
hann væri. Connie varð síðan
lykilmanneskja í málinu því hún
stóð staðföst við hlið sonar síns
og sagði hann „nærgætinn“ og
„umhyggjusaman“ en Richard
hafi hins vegar haft tilhneigingu
til að efna til átaka við aðra fjöl-
skyldumeðlimi.
Richard Oland var áberandi
í samfélaginu en það þýðir ekki
að öllum hafi líkað við hann. Al-
menningur skiptist því í hópa
hvað varðar skoðanir á mál-
inu. Richard á samúð sumra
en Dennis á samúð annarra.
Oland-fjölskyldan var ekki aðeins
efnuð heldur einnig valdamik-
il. Hún var ein fárra fjölskyldna
í NorðurAmeríku sem hafði ára-
tugum saman, í um eina öld,
stjórnað efnahag héraðsins eins
og Rockefeller- og Vanderbilt-
fjölskyldurnar gerðu í New York
á sínum tíma. Oland-fjölskyld-
an var þó ekki ein um hituna
í héraðinu því fyrir ofan hana
hvað varðar völd og auð var
Irving-fjölskyldan, sem er um-
svifamikil í rekstri bensínstöðva,
olíuhreinsistöðva, skipasmíða-
stöðva og timburvinnu. Sú fjöl-
skylda var í umræðunni hér á
landi fyrir margt löngu í tengsl-
um við opnun bensínstöðva. Á
eftir Irving-fjölskyldunni kemur
síðan McCain-fjölskyldan sem
stýrir samnefndu matvælafyrir-
tæki sem sérhæfir sig í frosnum
matvælum.
Því næst kemur Oland-fjöl-
skyldan, en grunnurinn að auði
hennar var lagður í Saint John
1867 þegar Susannah Oland
stofnaði Moosehead-bruggverk-
smiðjuna sem framleiðir sam-
nefndan bjór. Verksmiðjan er
í dag stærsta bjórverksmiðjan
sem er í eigu Kanadamanna.
Oland-fjölskyldan er sögð hafa
hafnað mörgum kauptilboðum
í verksmiðjuna. Sú staðfesta hef-
ur aflað fjölskyldunni ákveðinn-
ar virðingar í Saint John sem
hefur glímt við mikla fólksfækk-
un samhliða samdrætti í stór-
um iðngreinum á borð við skipa-
smíðar. Nú búa tæplega 70.000
manns í borginni en voru um
90.000 á áttunda áratugnum. En
auður fjölskyldunnar og áhrif
hafa einnig orðið til þess að hún
hefur verið á milli tannanna á
fólki og ekki dró úr því eftir að
Richard var myrtur. Innri mál-
efni fjölskyldunnar, deilur og
fjármál hennar hafi verið mikið
til umræðu meðal almennings.
Sumum stuðningsmönnum
Dennis fannst sem hann hefði
verið dæmdur af kviðdómi sem
vildi eingöngu hefna sín á hon-
um. Að í kviðdóminum hafi setið
fólk úr lægri stéttum þjóðfélags-
ins og hafi það viljað hefna sín á
ríka manninum.
Leyndi ekki auð sínum
Þegar Richard lést átti hann
eignir upp á sem svarar til mörg
hundruð milljóna íslenskra
króna og hann fór ekki leynt með
auð sinn. Hann tók þátt í kapp-
siglingum, tók mikinn þátt í starfi
mannvina á svæðinu og bjó í
glæsilegu húsi ekki fjarri heim-
ili sonar síns, Dennis. Þeir voru
Milljónamæringurinn og dularfulli morðinginn
n Ótrúlegt morðmál sem minnti á lélega sápuóperu n Efnuð og valdamikil fjölskylda sem stjórnaði viðskiptalífinu
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Skelfilegt mál
Richard var mikill
viðskiptajöfur.
Mynd: Getty
Images
Mikið veldi Oland-fjölskyldan stendur til að mynda á bak við Moosehead-bjórfram-
leiðsluna.
Vellauðug Oland-fjölskyldan er
með puttana í alls kyns flutninga-
starfsemi. Mynd: Getty Images