Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Qupperneq 57
BLEIKT - VIÐTAL 5713. september 2019
stjörnurnar
Spáð í Afmælisbörn vikunnarn 15. september Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnukappi, 41
n 16. september Ómar Ragnarsson, sjónvarpsstjarna og aðgerðasinni, 79 ára
n 17. september Aldís Pálsdóttir ljósmyndari, 39 ára
n 18. september Annie Mist Þórisdóttir crossfit-stjarna, 30 ára
n 19. september Ása Margrét Sigurjónsdóttir gleðigjafi, 37 ára
n 20. september Björn Valur Gíslason þingmaður, 60 ára
n 21. september Jón Arnór Stefánsson körfuboltakappi, 37 ára
Naut - 20. apríl – 20. maí
Fiskur - 19. febrúar – 20. mars
Vatnsberi -
20. janúar – 18. febrúar
Steingeit -
22. desember – 19. janúar
Bogmaður -
22. nóvember – 21. desember
Sporðdreki -
23. október – 21. nóvember
Vog - 23. sept. – 22. október
Meyja - 23. ágúst – 22 .sept.
Ljón - 23. júlí – 22. ágúst
Krabbi - 22. júní – 22. júlí
Tvíburi - 21. maí – 21. júní
Stjörnuspá vikunnar
Gildir Gildir 15. – 21. september
Það er mikil togstreita innra með þér
og þú stendur frammi fyrir mjög erfiðri
ákvörðun sem þú þarft að taka. Hugsan-
lega þarft þú að brjóta odd af oflæti þínu
og fylgja hjörðinni, andstætt því sem þú
myndir gera vanalega. Þetta er tækifæri
fyrir þig til að prófa eitthvað nýtt og taka
smá áhættu í lífinu.
Þú ert að velta fyrir þér skyndiákvörðun
sem felst í ferðalagi. Þig langar að fara en
óttast að þú sért að vanrækja skuld-
bindingar þínar heima fyrir. Ekki hafa
áhyggjur af því – mundu að þú ert ekki
ómissandi á öllum vígstöðvum. Farðu í
ferðalag, hreinsaðu hugann og komdu
tvíefld/ur til baka.
Einkalífið og vinnan keppast um athygli
þína þessa dagana. Það er ofboðslega
mikið að gera hjá þér í alls kyns pappírs-
vinnu en þú mátt ekki gleyma ástinni. Þú
verður að ákveða hvað er mikilvægast
núna. Er mikilvægt að þjösnast áfram við
skrifborðið endalaust eða skiptir meira
máli að bjarga samböndunum í kringum
þig?
Hjarta þitt er í yfirstærð um þessar mund-
ir og þú þráir að gefa af þér eins mikið og
þú getur. Hjálpsemi einkennir þig þessa
vikuna og þó að fólkið í kringum þig taki
afar vel í þessa hlýju þá gætir þú orðið
búin/n á því tilfinningalega í lok vikunnar.
Hvíldu þig vel og horfðu stolt/ur yfir
afrakstur þessarar góðsemi.
Þér líður ekki vel, elsku ljón, og til að gera
illt verra þá segir þú engum frá því! Til-
finningar þínar eru sem eldfjall innra með
þér, sem býður eftir því að gjósa. Svoleiðis
tilfinningagos eru aldrei góð eða falleg og
því þarftu að láta þína nánustu vita strax
að deyfð umlykur þig, án þess að þú vitir í
raun af hverju.
Það eru erfiðleikar í vinnunni hjá þér og þér
líður eins og þú hafir sýnt ákveðinni mann-
eskju of mikið traust og veitt henni of mikla
ábyrgð. Mistökin eru til að læra af þeim
en þessi manneskja sér ekki eigin galla og
veldur þér miklu hugarangri. Persónulegar
árásir bætast ofan á það og ég held að það
sé kominn tími fyrir þig, kæra meyja, til að
hugsa þig tvisvar um hvort þú vilt vinna
áfram í þessu andrúmslofti.
Þú kynnist nýrri hlið á þér í þessari viku.
Þú hefur ávallt verið ágætur stjórnandi,
en í þessari viku kemstu að listinni að
hvetja fólk áfram, fremur en að stjórna
því. Þú uppskerð eins og þú sáir og allt í
einu gengur allt í vinnunni eins og í sögu,
sem léttir talsvert andlega álagið.
Það kemur eitthvað upp á í vinahópnum,
sem er afar sjaldgæft. Vinahópurinn
skiptist í tvær fylkingar og þú stendur á
milli – veist ekki í hvorn fótinn þú átt að
stíga. Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú
gerir eitthvað bara til að ganga í augun á
einhverjum öðrum.
Það er mikið að gera hjá þér í vinnunni
en í þessari viku kemur smá dauður tími
sem þú skalt nýta vel í það sem veitir þér
ánægju. Hins vegar er einhver heimafyrir
sem hefur mikla þörf fyrir þína aðstoð og
öxl. Vissulega þarft þú að gefa af þér en
þú skalt gæta þess að vera hreinskilin/n,
hrein/n og bein/n svo að viðkomandi
detti ekki í vítahring volæðis.
Þú skalt passa þig á hvers kyns slúðri
þessa vikuna. Ekki kjafta einhverju sem
þú veist að á eftir að koma í bakið á þér
og almennt er hyggilegt að sleppa slúðri
alfarið. Þú ert yfirleitt mjög örugg/ur og
stabíl/l en í þessari viku kemur púki í þig
og þú vilt sleppa úr fjötrum hversdagsins.
Bara ekki gera það með slúðri heldur
finndu uppbyggilegri leiðir til að fá útrás.
Ástalífið er í blóma hjá vatnsberum – hef-
ur í raun aldrei verið betra. Þú lærir alls
kyns ný trix í svefnherberginu og lendur
þínar hafa sjaldan verið jafn sjóðandi
heitar. Allt annað er í öðru sæti í þessari
viku og þú finnur þá endurnæringu sem
þú hefur leitað að í svo langan tíma.
Dularfullt símtal í vinnunni kemur þér úr
jafnvægi. Þú færð orðsendingu um að
einhver vinnufélagi sé ekki allur þar sem
hann er séður og þú veist ekki hvernig
þú átt að takast á við það. Þú skalt samt
varast að ásaka fólk um eitthvað áður en
þú hefur kynnt þér allar staðreyndir.
Hrútur - 21. mars – 19. apríl
Lesið í tarot Áslaugar Örnu:
Von á barni hjá Margréti og Tómasi
– Svona eiga þau saman
Berst fyrir ljósi en verður
að viðurkenna myrkrið
Á
slaug Arna Sigurbjörns-
dóttir tók nýverið við emb-
ætti dómsmálaráðherra
og varð þá næstyngsti ráð-
herrann sem hefur nokkurn tím-
ann setið í ríkisstjórn. DV fannst
því tilvalið að leggja fyrir hana
tarotspil, en lesendur DV geta
sjálfir dregið sér spil á vefnum.
Erfiðleikar og missætti
Fyrsta spilið sem kemur upp hjá
Áslaugu Örnu er 3 sverð. Það spil
táknar þann gífurlega metnað
sem Áslaug Arna hefur og einnig
þau völd sem hún hefur nú feng-
ið. Þessum völdum fylgir oft mis-
sætti og gæti ráðherrann ver-
ið að finna fyrir því núna. Þegar
tekið er við nýju starfi koma upp
alls kyns erfiðleikar sem Áslaug
Arna kann illa að takast á við,
en með röggsemi sinni lær-
ir hún smátt og smátt að
verða betri stjórnandi. Þess-
ir erfiðleikar og missætti eru
nauðsynlegur fylgifiskur
þess að taka við nýju starfi
en heyrir fljótt sögunni til.
Þá tekur við nýr kafli í
ráðherratíð Áslaugar
Örnu þar sem hún er í
góðu jafnvægi og með
eindæmum bjartsýn.
Hlustar með
hjartanu
Næsta spil er Bik-
argosi, sem seg-
ir margt um hvaða mann Ás-
laug Arna hefur að geyma. Hún
er rólyndismanneskja og góður
námsmaður. Þótt hún sé oft inni
í boxinu starfs síns vegna er hún
einnig mjög listræn. Hún er vinur
í raun og alltaf til staðar. Jafnframt
er hún frekar hlédræg og hleypir
ekki hverjum sem er að sér. Það er
gott skref fram á við fyrir Áslaugu
Örnu að gegna ráðherraemb-
ætti. Í embætti eflir hún eigin
þroska og leyfir sköp-
unarhæfileik-
um sín-
um
að njóta sín. Hún hlustar með
hjartanu og tekur ákvarðanir með
huga og hjarta í bland. Samhliða
nýrri vinnu finnur hún sér nýtt
áhugamál sem tengist mjög and-
legri heilsu.
Ætlar alla leið á toppinn
Loks er það Hangandi maður.
Þótt spilið sé ógnvænlegt þá er
það gott fyrir ráðherrann. Áslaug
Arna er reiðubúin til að leggja
sig alla fram í þessu stóra verk-
efni. Hún þráir að setja sitt mark
á ráðuneytið og telur að góð störf
innan þess muni opna fyrir hana
aðrar og stærri pólitískar dyr.
Hún ætlar sér alla leið á topp-
inn og telur að vera henn-
ar í dómsmála-
ráðuneyti muni
greiða leið henn-
ar að forsætisráð-
herrastólnum. Hins
vegar telja margir að
Áslaug Arna sé bara í
þessu starfi fyrir pening-
ana, en það er alls ekki svo.
Hún er með ákveðinn mál-
stað og hugsjónir sem hún
heldur fyrir sig þar til réttur
tímapunktur kemur. Áslaug Arna
berst fyrir ljósi, en er ekki fær
um það fyrr en hún viðurkenn-
ir myrkrið. Hún þarf að vera sátt
í eigin skinni og muna að ef hún
afneitar eðli sínu og innstu þrám
verður hún háð þeirri afneitun. n
K
ærustuparið Margrét Erla
Maack og Tómas Stein-
dórsson eiga von á sínu
fyrsta barni saman hvað
úr hverju. Margrét og Tómas eru
búin að vera saman í rúm tvö ár
og hamingjan geislar af þeim. Því
ákvað DV að lesa í stjörnuspek-
ina og sjá hvernig tilvonandi for-
eldrarnir eiga saman.
Það er gaman að segja frá því
að Margrét og Tómas eiga af-
mæli með eins dags millibili og
eru bæði í stjörnumerki nauts-
ins. Þegar tvö naut koma saman
í ástarsambandi er sambandið
munúðarfullt og stabílt – eitthvað
sem nautin dýrka. Naut leggja
nefnilega mikið upp úr kynlífi og
öryggi, sem og einkvæni, góðum
mat og alls kyns öðrum nautnum
lífsins. Þegar tvö naut fella hugi
saman getur það samband hæg-
lega enst ævina á enda.
Naut virða langanir annarra
nauta og reyna sitt besta til að
uppfylla allar þeirrar þrár og
drauma. Margrét og Tómas eru
bæði mjög heillandi, sjarmerandi
og þokkafull að eðlisfari en geta
hins vegar verið mjög þrjósk og
liggja ekki á skoðunum sínum. Þá
er einnig hætta á að afbrýðisemi
sé mikil hjá nautum.
Margrét og Tómas þurfa að
læra að vera sammála um að vera
ósammála og gera sér grein fyrir
að þetta samband sé of gott til
að kasta því fyrir róða út af smá-
vægilegu rifrildi og skoðana-
skiptum. Þegar tvö naut koma
saman heimta þau einkvæni og
það kemur nautum ekkert meira
í uppnám en framhjáhald. Hins
vegar er það afar sjaldgæft þegar
tvö naut koma saman þar sem
þau eru svo áreiðanleg, staðföst
og umfram allt, elska maka sinn
alltof mikið til að rústa því öryggi
og hlýju sem hann veitir. n
Tómas
Fæddur
24. apríl 1991
Naut
n tryggur
n praktískur
n flippaður
n stöðugur
n ekki til í
málamiðlanir
n þrjóskur
Margrét
Fædd 25. apríl
1984
Naut
n þolinmóð
n áreiðanleg
n traust
n ábyrg
n þrjósk
n þolir ekki
breytingar án
fyrirvara