Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2019, Side 59
FÓKUS 5913. september 2019
leikkona, ég get ekkert gert þegar
allt springur. Þannig að auðvitað
vil ég gera allt sem ég get til að
fyrirbyggja að allt endi í hörm-
ungum.“
Gagnrýnin nauðsynleg
Leikkonan segir það mikilvægt
að almenningur gagnrýni stjórn-
völd og hið opinbera. „Auðvitað
eigum við að gagnrýna opinberar
stofnanir og einstaklinga ef þeir
koma fram hatri og skaða fólk,“
segir hún og vísar í heimsókn
Mikes Pence, varaforseta Banda-
ríkjanna, til Íslands á dögunum,
en Pence er á meðal þeirra sem
vísar umhverfismálum á bug.
„Auðvitað eigum við að gagn-
rýna það, að það sé einhver upp-
bygging NATO á Keflavíkurflug-
velli og hann að verða einhver
vígstöð fyrir Bandaríkjaher. Auð-
vitað eigum við að gagnrýna það,
þegar við státum okkur af því að
vera herlaust land. Ef við gagn-
rýnum ekki svona hluti erum við
búin. Fyrir nokkrum árum voru
umhverfisverndarsinnar taldir
vera hippar og lúðar. Síðan höfðu
þeir bara rétt fyrir sér og þeir voru
stöðugt að krítísera,“ segir hún.
„Ef ég lifði í fullkomnum heimi
þá myndi ég vilja að allir legðu
niður öll vopn og berðust gegn
þessum sameiginlega sjálfskap-
aða fjanda. Ég ólst upp í heimi
sem var ævintýri. Mér leið eins og
ég gæti gert hvað sem er, ferðast
og gert alls konar. En núna pæli
ég stundum í því hvernig sé að
vera barn í dag. Oft þegar talað
er um framtíðina í dag er ekki
horft lengra inn í framtíðina en til
ársins 2050.“
Telma nefnir þá Gretu Thun-
berg frá Svíþjóð, sem vakti heims-
athygli fyrir baráttu sína fyrir
umhverfismálum, fimmtán ára
gömul. Bandaríska tímaritið
Times setti hana á lista yfir tuttugu
og fimm áhrifamestu ungmenni
heims undir tuttugu ára aldri.
„Eins og Greta sagði: „Til hvers
að fara í skóla og læra fyrir framtíð
sem ég veit ekki hvort að verði?“
Það er svo oft talað um að við
séum að drepa plánetuna, en það
er ekki rétt, við erum að drepa
okkur sjálf. Plánetan verður hérna
og hún var hérna löngu áður en
við komum hingað. Hún hefur lif-
að af loftsteina,“ segir Telma.
„Við fundum upp á alls konar
frábærum hlutum og slæmum
hlutum; plasti, peningum, hverju
sem er. En við fundum ekki upp
á vatninu, súrefninu og jörðinni –
þessu þrennu sem við þurfum á
að halda til að komast lífs af. Við
erum svo upptekin í okkar ímynd-
aða heimi, heimi peningana og
veggjanna, að við gleymum því.“ n
Nú er það blátt Telma í hlutverki Agú í gamanmyndinni Eden.
Telma við tökur á Eden. Peningar eru aðeins uppfinning.
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stó an þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQual ty er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnend r hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057