Fréttablaðið - 12.11.2016, Qupperneq 10
Kjaramál „Staðan er vissulega
alvarleg. Það er alveg ljóst mál að
það er mikil ólga sem birtist meðal
annars í þessum tvífelldu samn
ingum hjá kennurum og svo eru
sjómenn í verkfalli,“ segir Bryndís
Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari.
Sjómenn fóru í verkfall í fyrrakvöld
og kjaradeilu kennara hefur verið
vísað til ríkissáttasemjara.
Bryndís ræddi nýtt íslenskt samn
ingslíkan að norrænni fyrirmynd á
málþingi sem fram fór í gær. Hún
sagði meðal annars að norrænu
líkönin héngu saman á einu hug
taki, trausti. Þar vísaði hún ann
ars vegar til trausts á milli aðila á
vinnumarkaði innbyrðis og svo
trausts milli vinnumarkaðarins og
stjórnvalda. „Og ef til vill má bæta
við trausti almennings á því að allir
séu að róa í sömu átt,“ segir hún.
Hún benti á nýjustu traustskönnun
Gallup sem bendir til þess að lykil
stofnanir og stjórnmál í landinu
eigi nokkuð í land með að endur
heimta það traust sem hefur tapast.
Aðspurð hvort nýr úrskurður kjara
ráðs, þar sem alþingismönnum var
úthlutuð 45 prósenta launahækkun,
ylli henni áhyggjum vísaði hún til
orða forystumanna aðila vinnu
markaðarins. „Það er viðfangsefni
stjórnmálanna að meta hvort það
sé ástæða til þess að gera eitthvað í
því máli,“ sagði hún um það hvort
breyta þyrfti úrskurðinum. „Ég ætla
ekki að hafa skoðun á því hvað
Alþingi á að gera. Það er ekki mitt
hlutverk.“
Í ræðu sinni vakti Bryndís athygli
á því að kjaramálum sem vísað er
til félagsdóms hafi fjölgað verulega,
en hlutverk dómstólsins er að leysa
úr réttarágreiningi á vinnumarkaði.
Bryndís segir fjöldann hafa náð
hámarki í fyrra sé horft aftur til árs
ins 2000. Þetta sé áhyggjuefni. „Það
Sáttasemjari segir ólgu
ríkja á vinnumarkaði
Ólga ríkir á vinnumarkaði, að mati ríkissáttasemjara. Hún segir traust vera
forsendu fyrir breyttu kjarasamningslíkani, en skortur er á trausti eftir banka-
hrunið. Segir of mörgum vinnudeilumálum vera vísað til félagsdóms.
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari bendir á að traust sé forsenda þess að
hægt sé að byggja upp nýtt samningsmódel á vinnumarkaði. FréttaBlaðið/Ernir
Samtök atvinnulífsins og Við-
skiptaráð hafa ályktað sameigin-
lega að ákvörðun kjararáðs stuðli
að upplausn á vinnumarkaði.
Ákvörðunin sé í engu samhengi
við almenna þróun á vinnumark-
aði, hvort sem horft sé til skemmri
eða lengri tíma. Þá hefur ASÍ bent
á að úrskurður kjararáðs hafi sett
viðræður kennara í hnút og ljóst sé
að mikil spenna sé í þjóðfélaginu
vegna úrskurðarins. Því sé for-
gangsmál að þingið grípi inn í.
Stuðlað að upplausn
komu 20 mál fyrir dóminn sem er
eins og þið vitið skipaður fólki sem
hefur dómsstörf þar sem auka
störf. Þetta ástand getur ekki verið
ásættanlegt,“ sagði hún og bætti við
að verkfallsboðanir og verkföll væru
mjög tíð hér miðað við Norður
löndin. jonhakon@frettabladid.is
Reykjavíkurborg
Umhverfis- og skipulagssvið
Hildur
Gunnlaugsdóttir
Hjálmar Sveinsson
Á fundinum verður skapandi Reykjavík skoðuð út frá
nokkrum sjónarhornum og spurningum. T.d. hvernig
eru svæði borgarinnar, torg, byggingar og garðar nýtt
sem rými til skapandi athafna? Hvernig skapast
töfrandi andrúmsloft á viðburðum og iðandi mannlíf
á götum borgarinnar? Gegna stjórnvöld mikilvægu
hlutverki við að virkja sköpunarkraft fólksins í borginni?
Fram koma, ásamt Hjálmari Sveinssyni, formanni
umhverfis- og skipulagsráðs, Sigrún Inga Hrólfsdóttir,
deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands,
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves
tónlistarhátíðarinnar og Hildur Gunnlaugsdóttir,
arkitekt og verkefnisstjóri borgarhönnunar hjá
Reykjavíkurborg.
Fundurinn er í kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum
þriðjudaginn 15. nóvember, kl. 20.
Allir velkomnir. Heitt á könnunni.
Grímur Atlason
Sigrún Inga
Hrólfsdóttir
Ríkir hugarfar sköpunar
í Reykjavík?
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar stendur fyrir fundaröðinni
BORGIN – HEIMKYNNI OKKAR um þróun og mótun borgarinnar.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Þriðjudagur 15. nóvember kl. 20 á Kjarvalsstöðum
Ég ætla ekki að hafa
skoðun á því hvað
Alþingi á að gera. Það er ekki
mitt hlutverk.
Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjari
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð