Fréttablaðið - 12.11.2016, Síða 12
BÍLALAND BÝÐUR BÍLA Á FRÁBÆRUM
KJÖRUM! KOMDU STRAX Í DAG OG TRYGGÐU
ÞÉR GÓÐAN BÍL FRÁ BÍLALANDI
ÚRVAL
NOTAÐRA BÍLA
DACIA Duster 4x4.
Nýskr.05/2015, ekinn 80 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.690 þús. kr.
Staðsetning: IB, Selfossi
DACIA Duster 4x4.
Nýskr.05/2015, ekinn 73 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.570 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
DACIA Duster 4x4.
Nýskr.02/2015, ekinn 113 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.490 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
DACIA Duster 4x4.
Nýskr.06/2015, ekinn 80 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.590 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
DACIA Duster 4x4.
Nýskr.05/2015, ekinn 84 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.550 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
DACIA Duster 4x4.
Nýskr.06/2013, ekinn 83 þ.km,
dísil, beinskiptur.
VERÐ 2.390 þús. kr.
Staðsetning: Klettháls 11
Rnr. 370255
Rnr. 370270
Rnr. 370274
Rnr. 370246
Rnr. 370251
Rnr. 330425
www.bilaland.is
NÝ HEIMASÍÐA – STÆRRI BÍLAMYNDIR
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og
Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími: 525 8000 - bilaland@bilaland.is
Opið frá kl. 9–18 og á laugardögum frá kl. 12–16.
www.facebook.com/bilaland.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
7
8
3
2
7
„Jæja Marianne, þá er komið að því
að við erum orðin svo gömul að lík
amar okkar láta undan, og ég held
að ég muni fylgja þér mjög bráðlega.
Vittu til að ég er rétt á eftir þér og ef
þú teygir út höndina held ég að þú
náir mér.“
Þessi hógværu en undurfögru orð
sendi Leonard Cohen í bréfi til músu
sinnar og fyrrverandi ástkonu Mari
anne Ihlen í júlí síðastliðnum. Hans
hinsta kveðja á dánarbeði hennar.
„Þú veist að ég hef alltaf elskað þig
fyrir fegurð þína og visku, en ég þarf
ekki að tala meira um það því auðvit
að veistu það. Mig langar að óska þér
góðrar ferðar. Vertu sæl, gamli vinur.
Endalaus ást, sjáumst á förnum vegi.“
Þremur mánuðum og tveimur
vikum síðar hefur hann lagt í ferða
lagið á eftir henni, ljóðskáldið og
tónskáldið sem hefur snert svo
marga. Cohen er þriðji tónlistarmað
urinn, af þessum virkilega stóru, sem
hefur dáið á árinu. Fyrst fóru David
Bowie og Prince. Þrefaldur harm
dauði fyrir heimsbyggðina.
Leonard Cohen var 82 ára gamall
og það var í ljósi þess sem ég leitaði
að tónleikamiðum þann fyrsta þessa
mánaðar, í þeirri veiku von að ég
gæti kannski boðið pabba á Cohen
og við feðginin séð stjörnuna áður en
hans síðasti sjens rynni upp. En þá
var það orðið of seint.
Trúin alltumlykjandi
Leonard Cohen fæddist í Montreal
í Kanada árið 1934. Afi hans var
rabbíi og stofnandi kanadíska gyð
ingasöfnuðsins. Cohen hefur sjálfur
sagst hafa fengið mjög trúarlegt
uppeldi og verið sagt að hann væri
beinn afkomandi Arons, spámanns
gyðinga.
Söngvum hans hefur enda verið
líkt við bænir. Djúp röddin sem
tónar lögin, ýmist ástarlög, lög losta,
eða texta þrungna pólitískri mein
ingu – stundum allt í senn – með
mjög sterkri nærveru söngvarans;
ekki ósvipað rödd prests sem berst
fram steinsteypta kirkjubyggingu.
Eins og köld forsæla kirkjunnar eftir
sjóðheitan sólardag við Miðjarðar
hafið. Bakraddirnar raula bjarta tóna
eins og barnakór.
Það tók Cohen fimm ár að koma
einu af hans þekktustu lögum, Hall
elujah, saman. Hann laug því að Bob
Dylan að lagasmíðin hefði aðeins
tekið tvö ár. Lagið er fullt tilvísana
til Biblíunnar en er á sama tíma
lostafullt. Sagan segir að Cohen hafi
skrifað áttatíu drög að laginu og að
endingu setið fáklæddur á hótelher
bergi í New York og barið höfðinu í
gólfið.
„Well your faith was strong but you
needed proof
You saw her bathing on the roof
Her beauty and the moonlight over
threw ya
She tied you to her kitchen chair
And she broke your throne and she
cut your hair
And from your lips she drew the
Hallelujah“
Kvennagullið Cohen
„Hvað veldur því að konur hafa
verið svona blíðar við þig, af hverju
vilja þær sýna þér nekt sína?“
spurði sænski blaðamaðurinn Stína
Dabrowski í viðtali árið 2001. „Ja, ég
er ekki eini karlmaðurinn sem hefur
reynslu af því. Þetta er það sem geng
ur á milli karla og kvenna. Ég vona að
ég sé ekki að segja þér nein tíðindi,
Stína,“ svaraði Cohen kíminn.
Konur eru gullni þráðurinn í gegn
um feril Cohens. Karlmenn sem taka
viðtöl við skáldið sjá þessa kvenhylli
í hillingum en konur virðast vera
þeirrar skoðunar að hann skilji þær
í öðrum hæðum en aðrir karlmenn.
Marianne lýsti fyrsta skiptinu sem
hún hitti Cohen á grísku eyjunni
Hýdru í viðtali við blaðamanni Kari
Hesthamar árið 2005.
„Það var eins og hann hefði strax
alveg ótrúlega samúð með mér og
barninu mínu. Ég man vel eftir því
þegar augu okkar mættust fyrst
,hvernig ég fann það í gegnum allan
líkamann. Þú veist hvernig það er.
Það er ótrúleg tilfinning.“
Konurnar í lífi Cohen hafa samt
fengið að kynnast því að hann var
þeim ótrúr, eða kannski voru lög
málin önnur og frjálslyndið meira
hjá hópnum sem lifði og hrærðist í
kringum Hótel Chelsea í New York
á sjöunda áratugnum. Það er að
minnsta kosti ýmislegt sem bendir
til þess í texta lagsins Chelsea Hotel
#2 þar sem Cohen lýsir skyndikynn
um með söngkonunni Janis Joplin.
„You were talking so brave and so
sweet,
Giving me head on the unmade bed,
While the limousines wait in the
street.“
Fyrsta lagið sem ég heyrði með
Cohen var lagið I’m your man. Lík
lega hef ég verið tólf ára og það var
eins og það dýpkaði skilning minn á
einhverju sem er í ljósárafjarlægð frá
börnum á þessum aldri. Það er eigin
lega hægt að segja að texti Leonards
Cohen hafi sett upp staðalinn fyrir
öll ástarsambönd sem eftir áttu að
koma. Fyrir það er ég afskaplega
þakklát.
Hinsta kveðja Cohens
Tónlistarmaðurinn og ljóðskáldið Leonard Cohen er allur tæplega þremur
vikum eftir útgáfu sinnar síðustu plötu. Hans er nú minnst um heim allan.
Leonard Cohen á sínu síðasta tónleikaferðalagi í Valensía á Spáni. FréTTabLaðið/EPa
Marienne ihlen, sonur hennar axel Jensen og Leonard Cohen á grísku eyjunnu
Hýdru þar sem þau kynntust. NordiCPHoToS/GETTy
Leonard Cohen
Fæddur 21. september 1934
Hefur gefið út 14 stúdíóplötur
2 skáldsögur
13 ljóðabækur
Nýjasta plata Cohen, You want it
darker, kom út 21. október 2016
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A b L A ð i ð