Fréttablaðið - 12.11.2016, Side 29

Fréttablaðið - 12.11.2016, Side 29
Brot úr bók Ragnars Axelssonar, Andlit norðursins Kulusuk 1997 Víðast hvar á Grænlandi er svo lítill jarðvegur að hinir látnu eru lagðir til hinstu hvílu á klöppum og grjóti hlaðið að. Finna má grjóthrúgur með krossum, dysjar og leiði, jafnt inni í miðjum þorpum sem úti á víða- vangi. Oftar en ekki hafa hinir látnu verið lagðir til hinstu hvílu þannig að þeir horfi yfir landið sitt eða út á hafið. Veiðimenn sögðu mér sögu af fimm ára stúlku sem veiktist og lést í sleðaferð. Hún var dysjuð uppi á fjalli sem snýr að firði þar sem er einstök náttúrufegurð. Sumum gæti þótt það kaldlyndi að skilja lítið barn eftir fjarri heimkynnum sínum en hugsunin er falleg og full virðingar fyrir þeim sem farnir eru á vit forfeðra sinna. Kannski flýgur hrafn þar yfir, oftast eina lífveran sem sést eða heyrist í í einmanalegum kuldanum í mann- lausum fjörðum Austur-Grænlands. Ýmist er það napurt hljóð að hausti eða ef til vill eilítið vonbjart að vori þegar hafísinn fer að brotna upp og daginn að lengja. Á síðustu árum er eins og þessi hefðbundni sláttur árs- tíðanna sé ekki sá sami og áður. Ísinn heldur ekki lengur mönnum á vetrum en er samt of mikill til að hægt sé að sigla um hann. Veiðimenn í byggðum Austur-Grænlands þurfa að glíma við alveg nýjan veruleika. Sumir sjá í þessum breytingum nýja von en aðrir óttast afleiðingarnar fyrir allt mann- kynið þegar ísinn bráðnar á norður- slóðum. En svo þEgar maður kEmur mEð þEim út á hafísinn þá stólar maður á þá og sér hvað þEir Eru í raun og vEru: konungar og stórmEnni. skilaboðin eru önnur þegar það er alltaf bara sýndir ísjakar og ekkert annað og þess vegna mynda ég líka fólkið. Lífið. Það þarf að sýna heim- inum þetta fólk og þetta er flott fólk sem á þarna sín heimili. Þegar ísinn fer þá breytist allt. Þetta eru okkar næstu nágrannar. Við hugsum hins vegar ekki um þá þannig og satt best að segja kemur mér alltaf aðeins á óvart hve ófram- færnir Grænlendingar eru þegar þeir eru hér á ferð ég hitti þá. En svo þegar maður kemur með þeim út á hafísinn þá stólar maður á þá og sér hvað þeir eru í raun og veru: Konungar og stórmenni. Það kennir manni að bera virðingu fyrir öllum mönnum og ekki síst þeim sem vita að maðurinn og náttúran eru eitt.“ Hinir látnu lagðir til hvílu á klöppum sumum gæti þótt það kaldlyndi að skilja lítið barn eftir fjarri heimkynnum sínum en hugsunin er falleg og full virðingar fyrir þeim sem farnir eru á vit forfeðra sinna. Nú getum við boðið fyrirtækjum með spennandi hugmyndir um nýsköpun og vaxtarmöguleika hagstæð framkvæmdalán með stuðningi Evrópska fjárfestingasjóðsins, EIF. Ef þú sérð spennandi tækifæri framundan þá skaltu kynna þér hvort við getum hjálpað þér að grípa það. Kynntu þér nýju lánin á arionbanki.is Ný lán fyrir fyrirtæki í vexti H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 6 -2 8 4 0 h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 29l A U g A R D A g U R 1 2 . n ó v e m B e R 2 0 1 6
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.