Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 29
Brot úr bók Ragnars Axelssonar,
Andlit norðursins
Kulusuk 1997
Víðast hvar á Grænlandi er svo lítill
jarðvegur að hinir látnu eru lagðir
til hinstu hvílu á klöppum og grjóti
hlaðið að. Finna má grjóthrúgur með
krossum, dysjar og leiði, jafnt inni
í miðjum þorpum sem úti á víða-
vangi. Oftar en ekki hafa hinir látnu
verið lagðir til hinstu hvílu þannig
að þeir horfi yfir landið sitt eða út á
hafið. Veiðimenn sögðu mér sögu af
fimm ára stúlku sem veiktist og lést í
sleðaferð. Hún var dysjuð uppi á fjalli
sem snýr að firði þar sem er einstök
náttúrufegurð. Sumum gæti þótt það
kaldlyndi að skilja lítið barn eftir fjarri
heimkynnum sínum en hugsunin er
falleg og full virðingar fyrir þeim sem
farnir eru á vit forfeðra sinna.
Kannski flýgur hrafn þar yfir, oftast
eina lífveran sem sést eða heyrist í
í einmanalegum kuldanum í mann-
lausum fjörðum Austur-Grænlands.
Ýmist er það napurt hljóð að hausti
eða ef til vill eilítið vonbjart að vori
þegar hafísinn fer að brotna upp og
daginn að lengja. Á síðustu árum er
eins og þessi hefðbundni sláttur árs-
tíðanna sé ekki sá sami og áður. Ísinn
heldur ekki lengur mönnum á vetrum
en er samt of mikill til að hægt sé að
sigla um hann. Veiðimenn í byggðum
Austur-Grænlands þurfa að glíma
við alveg nýjan veruleika. Sumir sjá í
þessum breytingum nýja von en aðrir
óttast afleiðingarnar fyrir allt mann-
kynið þegar ísinn bráðnar á norður-
slóðum.
En svo þEgar maður
kEmur mEð þEim út á
hafísinn þá stólar
maður á þá og sér hvað
þEir Eru í raun og vEru:
konungar og
stórmEnni.
skilaboðin eru önnur þegar það er
alltaf bara sýndir ísjakar og ekkert
annað og þess vegna mynda ég líka
fólkið. Lífið. Það þarf að sýna heim-
inum þetta fólk og þetta er flott fólk
sem á þarna sín heimili. Þegar ísinn
fer þá breytist allt.
Þetta eru okkar næstu nágrannar.
Við hugsum hins vegar ekki um þá
þannig og satt best að segja kemur
mér alltaf aðeins á óvart hve ófram-
færnir Grænlendingar eru þegar
þeir eru hér á ferð ég hitti þá. En
svo þegar maður kemur með þeim
út á hafísinn þá stólar maður á þá
og sér hvað þeir eru í raun og veru:
Konungar og stórmenni. Það kennir
manni að bera virðingu fyrir öllum
mönnum og ekki síst þeim sem vita
að maðurinn og náttúran eru eitt.“
Hinir látnu lagðir til hvílu á klöppum
sumum gæti þótt það
kaldlyndi að skilja
lítið barn eftir fjarri
heimkynnum sínum en
hugsunin er falleg og full
virðingar fyrir þeim sem
farnir eru á vit forfeðra
sinna.
Nú getum við boðið fyrirtækjum með spennandi
hugmyndir um nýsköpun og vaxtarmöguleika
hagstæð framkvæmdalán með stuðningi
Evrópska fjárfestingasjóðsins, EIF.
Ef þú sérð spennandi tækifæri framundan þá
skaltu kynna þér hvort við getum hjálpað þér
að grípa það.
Kynntu þér nýju lánin á arionbanki.is
Ný lán fyrir
fyrirtæki í vexti
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6
-2
8
4
0
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 29l A U g A R D A g U R 1 2 . n ó v e m B e R 2 0 1 6