Fréttablaðið - 12.11.2016, Side 40
P. Karlsson ehf. hefur um langt
skeið rekið ferðavagnasölu en árið
2013 gekk fyrirtækið til samstarfs
við stærstu húsbílaleigu Evrópu,
þýska fyrirtækið McRent sem
rekur 69 leigustöðvar víðsvegar
í Evrópu. Fyrirtækin stofnuðu í
sameiningu félagið McRent Ice
land sem er í eigu beggja aðila og
heldur úti einni stærstu einstöku
húsbílaleigu landsins.
„Í þessi fjögur ár höfum við
sérhæft okkur í leigu og sölu á
húsbílum og telur leigubílafloti
okkar nú 85 húsbíla. Þeim mun
fjölga jafnt og þétt á komandi
árum en við áætlum að bílafloti
í útleigu muni samanstanda af 98
bílum næsta sumar. Af þeim verða
49 nýir,“ segir Geir Bachmann,
annar eigenda P. Karlsson. Þrúð
mar Karlsson, meðeigandi hans,
bendir á að allt árið um kring sé
einnig fjöldi bifreiða til sölu og
sýnis en markmið fyrirtækisins
sé að geta boðið viðskiptavinum
nýlega húsbíla til sölu á mjög góðu
verði. „Bílarnir okkar eru allir frá
framleiðendum hjá Erwin Hymer
Group en undir hatti fyrirtækis
ins eru framleidd hin vel þekktu
vörumerki Dethleffs og Sunlight
sem eru uppistaðan í okkar flota.“
P. Karlsson nýtur að sögn Þrúð
mars góðs af því að vera í sam
starfi við þetta stóra þýska fyrir
tæki sem endur speglast í endur
söluverði bifreiðanna. „Við erum
að kaupa inn allt að 50 bíla í einu
og fáum þar af leiðandi allt önnur
verð en almennt þekkist. Við
skiptavinir okkar njóta góðs af
því.“
Mikið lagt upp úr góðri
þjónustu
Þeir Geir og Þrúðmar segja að
sambland af húsbílaleigu og sölu
hafi gefist afskaplega vel. „Leigu
stöð McRent Iceland er þegar
orðin með stærri leigum McRent
keðjunnar. Salan hefur auk þess
tekið verulega við sér á síðustu
árum, en í ár seldust 33 bílar.“
Að sögn Geirs er mikið lagt upp
úr góðri þjónustu og góðri vöru á
hvorum tveggja vígstöðvum.
„Við viðhöldum og þjónustum
nú er tíMinn til að
gera góð húsbílakaup
P. Karlsson heldur húsbílasýningu að Smiðjuvöllum 5a í Reykjanesbæ um helgina. Þeir sem hafa í hyggju að fjárfesta í
húsbíl ættu ekki að láta sýninguna fram hjá sér fara enda úrval leigutækja gott og á verði sem kemur á óvart.
Bílarnir eru allir mjög vel útbúnir
Þeir Þrúðmar og Geir hlakka til að taka á móti gestum um helgina.
Á sýningunni verða ellefu mismunandi útfærslur af húsbílum til sýnis.Færst hefur í vöxt að fólk fjárfesti í húsbílum á haustin enda mun meira framboð þá
en yfir sumartímann.
Þægindin eru í fyrirrúmi.
Salan á tækjunum sjálfum hefur tekið tals-
verðan kipp á síðustu árum og því ljóst að það
eru ekki bara erlendir ferðamenn sem hafa áhuga á því
að skoða landið og upplifa frelsið og þægindin sem
fylgja því að ferðast um í húsbíl á Íslandi.
Þrúðmar Karlsson
stóran flota af bílum sem eru í út
leigu og við leggjum gríðarlega
mikla áherslu á gott viðhald tækj
anna. Þeir sem kaupa bílana geta
svo að sjálfsögðu sótt alla þjónustu
er viðkemur húsunum til okkar
enda höldum við úti stórum vara
hlutalager og eigum yfirleitt þá
varahluti sem vantar, ef eitthvað
kemur upp á,“ segir Geir.
salan tekur kipp
Húsbílaleiga er í blóma enda
hefur ferðamannastraumurinn til
landsins stóraukist vegna sívax
andi áhuga á Íslandi. Húsbílainn
flutningur dróst verulega saman
eftir hrun en nú hefur orðið mikil
endur nýjun í flotanum. „Salan
á tækjunum sjálfum hefur tekið
talsverðan kipp á síðustu árum og
því ljóst að það eru ekki bara er
lendir ferðamenn sem hafa áhuga
á því að skoða landið og upplifa
frelsið og þægindin sem fylgja því
að ferðast um í húsbíl á Íslandi,“
segir Þrúðmar.
Geir og Þrúðmar segja gríðar
lega vinnu hafa fylgt því að koma
á fót fyrirtæki sem standi þeim
stærstu og bestu í Evrópu fyllilega
á sporði en sérhæfingin hjálpi þar
mikið til og ekki síst gott starfs
fólk. „Það að sérhæfa sig í ákveð
inni vöru hefur tvímælalaust þann
kost að við þekkjum það sem við
bjóðum upp á mjög vel. Þessir
bílar verða eins og börnin manns.
Við búum að mjög langri reynslu í
bæði leigu og sölu á þessum tækj
um og vitum nákvæmlega hvað
þarf til að ná árangri. Eins höfum
við verið afskaplega lánsamir
með starfsfólk. Það er viðskipta
vinurinn sem skiptir mestu máli
og leggja starfsmenn okkar allan
metnað í að þjónusta alla okkar
kúnna eins og best verður á kosið.“
stórsýning uM helgina
Um helgina verður stórsýning á
húsbílum P. Karlsson ehf. en hún er
jafnan mjög vel sótt. „Við verðum
með 11 mismunandi útfærslur til
sýnis og hlökkum til að fá til okkar
fólk í heimsókn að skoða. Þeir eru
allir mjög vel útbúnir og þægindin
í fyrirrúmi. Við vorum með 31 bíl
á sölulista en sjö eru þegar seldir
og það einungis af afspurn,“ segir
Þrúðmar. Hann og Geir benda á að
það hafi færst mikið í vöxt að fólk
fjárfesti í húsbílum á haustin enda
mun meira framboð þá en yfir sum
artímann. „Við munum hins vegar
hafa til sýnis gott úrval af tækjum
sem eru ekki í leigunni allt árið.“
Aðspurðir segja þeir Þrúðmar og
Geir að þrátt fyrir að mesta salan
sé í notuðum tækjum þá sé ekkert
mál að flytja inn nýja bíla fyrir þá
sem það vilja.
Á sýningunni nú um helgina
verða tæki úr leigunni til sölu. Opið
er laugardaginn 12. nóvember frá
kl. 1016 og sunnudaginn 13. nóv
ember frá kl. 1116. „Við skellum
auðvitað ekkert í lás eftir það. Hér
er opið alla virka daga og allir að
sjálfsögðu velkomnir til okkar eftir
helgina.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.pkarlsson.is
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r4 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n