Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 40

Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 40
P. Karlsson ehf. hefur um langt skeið rekið ferðavagnasölu en árið 2013 gekk fyrirtækið til samstarfs við stærstu húsbílaleigu Evrópu, þýska fyrirtækið McRent sem rekur 69 leigustöðvar víðsvegar í Evrópu. Fyrirtækin stofnuðu í sameiningu félagið McRent Ice­ land sem er í eigu beggja aðila og heldur úti einni stærstu einstöku húsbílaleigu landsins. „Í þessi fjögur ár höfum við sérhæft okkur í leigu og sölu á húsbílum og telur leigubílafloti okkar nú 85 húsbíla. Þeim mun fjölga jafnt og þétt á komandi árum en við áætlum að bílafloti í útleigu muni samanstanda af 98 bílum næsta sumar. Af þeim verða 49 nýir,“ segir Geir Bachmann, annar eigenda P. Karlsson. Þrúð­ mar Karlsson, meðeigandi hans, bendir á að allt árið um kring sé einnig fjöldi bifreiða til sölu og sýnis en markmið fyrirtækisins sé að geta boðið viðskiptavinum nýlega húsbíla til sölu á mjög góðu verði. „Bílarnir okkar eru allir frá framleiðendum hjá Erwin Hymer Group en undir hatti fyrirtækis­ ins eru framleidd hin vel þekktu vörumerki Dethleffs og Sunlight sem eru uppistaðan í okkar flota.“ P. Karlsson nýtur að sögn Þrúð­ mars góðs af því að vera í sam­ starfi við þetta stóra þýska fyrir­ tæki sem endur speglast í endur­ söluverði bifreiðanna. „Við erum að kaupa inn allt að 50 bíla í einu og fáum þar af leiðandi allt önnur verð en almennt þekkist. Við­ skiptavinir okkar njóta góðs af því.“ Mikið lagt upp úr góðri þjónustu Þeir Geir og Þrúðmar segja að sambland af húsbílaleigu og sölu hafi gefist afskaplega vel. „Leigu­ stöð McRent Iceland er þegar orðin með stærri leigum McRent­ keðjunnar. Salan hefur auk þess tekið verulega við sér á síðustu árum, en í ár seldust 33 bílar.“ Að sögn Geirs er mikið lagt upp úr góðri þjónustu og góðri vöru á hvorum tveggja vígstöðvum. „Við viðhöldum og þjónustum nú er tíMinn til að gera góð húsbílakaup P. Karlsson heldur húsbílasýningu að Smiðjuvöllum 5a í Reykjanesbæ um helgina. Þeir sem hafa í hyggju að fjárfesta í húsbíl ættu ekki að láta sýninguna fram hjá sér fara enda úrval leigutækja gott og á verði sem kemur á óvart. Bílarnir eru allir mjög vel útbúnir Þeir Þrúðmar og Geir hlakka til að taka á móti gestum um helgina. Á sýningunni verða ellefu mismunandi útfærslur af húsbílum til sýnis.Færst hefur í vöxt að fólk fjárfesti í húsbílum á haustin enda mun meira framboð þá en yfir sumartímann. Þægindin eru í fyrirrúmi. Salan á tækjunum sjálfum hefur tekið tals- verðan kipp á síðustu árum og því ljóst að það eru ekki bara erlendir ferðamenn sem hafa áhuga á því að skoða landið og upplifa frelsið og þægindin sem fylgja því að ferðast um í húsbíl á Íslandi. Þrúðmar Karlsson stóran flota af bílum sem eru í út­ leigu og við leggjum gríðarlega mikla áherslu á gott viðhald tækj­ anna. Þeir sem kaupa bílana geta svo að sjálfsögðu sótt alla þjónustu er viðkemur húsunum til okkar enda höldum við úti stórum vara­ hlutalager og eigum yfirleitt þá varahluti sem vantar, ef eitthvað kemur upp á,“ segir Geir. salan tekur kipp Húsbílaleiga er í blóma enda hefur ferðamannastraumurinn til landsins stóraukist vegna sívax­ andi áhuga á Íslandi. Húsbílainn­ flutningur dróst verulega saman eftir hrun en nú hefur orðið mikil endur nýjun í flotanum. „Salan á tækjunum sjálfum hefur tekið talsverðan kipp á síðustu árum og því ljóst að það eru ekki bara er­ lendir ferðamenn sem hafa áhuga á því að skoða landið og upplifa frelsið og þægindin sem fylgja því að ferðast um í húsbíl á Íslandi,“ segir Þrúðmar. Geir og Þrúðmar segja gríðar­ lega vinnu hafa fylgt því að koma á fót fyrirtæki sem standi þeim stærstu og bestu í Evrópu fyllilega á sporði en sérhæfingin hjálpi þar mikið til og ekki síst gott starfs­ fólk. „Það að sérhæfa sig í ákveð­ inni vöru hefur tvímælalaust þann kost að við þekkjum það sem við bjóðum upp á mjög vel. Þessir bílar verða eins og börnin manns. Við búum að mjög langri reynslu í bæði leigu og sölu á þessum tækj­ um og vitum nákvæmlega hvað þarf til að ná árangri. Eins höfum við verið afskaplega lánsamir með starfsfólk. Það er viðskipta­ vinurinn sem skiptir mestu máli og leggja starfsmenn okkar allan metnað í að þjónusta alla okkar kúnna eins og best verður á kosið.“ stórsýning uM helgina Um helgina verður stórsýning á húsbílum P. Karlsson ehf. en hún er jafnan mjög vel sótt. „Við verðum með 11 mismunandi útfærslur til sýnis og hlökkum til að fá til okkar fólk í heimsókn að skoða. Þeir eru allir mjög vel útbúnir og þægindin í fyrirrúmi. Við vorum með 31 bíl á sölulista en sjö eru þegar seldir og það einungis af afspurn,“ segir Þrúðmar. Hann og Geir benda á að það hafi færst mikið í vöxt að fólk fjárfesti í húsbílum á haustin enda mun meira framboð þá en yfir sum­ artímann. „Við munum hins vegar hafa til sýnis gott úrval af tækjum sem eru ekki í leigunni allt árið.“ Aðspurðir segja þeir Þrúðmar og Geir að þrátt fyrir að mesta salan sé í notuðum tækjum þá sé ekkert mál að flytja inn nýja bíla fyrir þá sem það vilja. Á sýningunni nú um helgina verða tæki úr leigunni til sölu. Opið er laugardaginn 12. nóvember frá kl. 10­16 og sunnudaginn 13. nóv­ ember frá kl. 11­16. „Við skellum auðvitað ekkert í lás eftir það. Hér er opið alla virka daga og allir að sjálfsögðu velkomnir til okkar eftir helgina.“ Nánari upplýsingar má finna á www.pkarlsson.is 1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r4 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.