Fréttablaðið - 12.11.2016, Síða 90
Ástkær sambýlismaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Ólafur Ingi Ingimundarson
(Hlerinn)
(1950-2016)
rafveituvirki,
Vindakór 1, Kópavogi,
andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans þann
9. nóvember. Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
krabbameinsdeildar Landspítalans. Þeim sem vilja
minnast hans er vinsamlegast bent á Ljósið.
Soffía Amanda T. Jóhannesdóttir
Inga Björk Færseth Ólafsdóttir
Gunnar Bachmann Færseth Ólafsson
Lilja Dögg Færseth Ólafsdóttir
Sæmundur Þór Guðmundsson
Ármann Freyr Hermannsson
Ingiberg Ólafur Jónsson
Guðmundur Oliver Sæmundsson
stjúpbörn og stjúpbarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Lúðvík Björnsson
dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést þriðjudaginn 8. nóvember.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 16. nóvember kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Höfða eða
Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis.
Björn Lúðvíksson Jenna Gottlieb
Fjóla Lúðvíksdóttir Jóhann Þór Sigurðsson
Þorsteinn Jóhannesson
og afabörn.
Ástkær eiginmaður, faðir, fósturfaðir,
tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
Hrafn Pálsson
skrifstofustjóri og
hljómlistarmaður í Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
2. nóvember sl. Útförin verður gerð frá
Neskirkju þriðjudaginn 15. nóvember kl. 13. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Vilborg G. Kristjánsdóttir
Halldór Hrafnsson
Jóhann Gísli Jóhannsson Guðrún Aldís Jóhannsdóttir
Heiða Elín Jóhannsdóttir Guðjón Guðmundsson
Guðrún Jóhannsdóttir Kolbeinn Pálsson
Kristján Jóhannsson Ingibjörg Sigurðardóttir
Margrét Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar hjartfólgna
Elín Ragna Ottesen
(Gagga)
er látin.
Útför hennar fer fram í kyrrþey.
Fyrir hönd fjölskyldunnar allrar,
Sigríður María Bragadóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Valberg
Sigurjónsson
vélfræðingur, Katrínarlind 4,
lést á Borgarspítalanum 30. október.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 16. nóvember kl. 13.00.
Steinþórunn Karólína Steinþórsdóttir
Ólafur Fáfnir Sigurgeirsson
Guðrún Heiða Sigurgeirsdóttir Bjarni Hrafnsson
og barnabörn.
Yndislega móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Helga Óskarsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
lést á Sóltúni, 8. nóvember. Útförin fer
fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn
16. nóvember kl. 15. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á líknarfélög.
Alfreð S. Jóhannsson Magdalena Sigurðardóttir
Ingibjörg Ósk Jónsdóttir Ólafur Gunnarsson
Eiríkur Jónsson Oddný Sigurðardóttir
Ferdinand Jónsson Ishaiga Jalloh
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg mamma okkar,
tengdamamma, amma og langamma,
Anna Jónsdóttir
Skólavegi 24, Keflavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi,
laugardaginn 5. nóvember. Útför hennar
fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
15. nóvember kl. 13.00.
Sighvatur Svan Skúlason Valorie Skúlason
Ása Skúladóttir Karl Taylor
Guðfinna Sesselja Skúladóttir Sigurður T. Garðarsson
Bryndís Skúladóttir Magnús S. Björnsson
Svanhildur Skúladóttir Hörður J. Geirsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug vegna andláts og
útfarar ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður og afa,
Reynis Ragnarssonar
löggilts endurskoðanda, Staðarseli 5.
Sérstakar þakkir fær líknardeild LSH fyrir
góða umönnun og stuðning við fjölskylduna.
Halldóra Gísladóttir
Guðrún R. Kilian Robert J. Kilian
Gísli Reynisson Sigríður Bryndís Stefánsdóttir
Arnar Gauti Reynisson Sigríður Vala Halldórsdóttir
og barnabörn.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands,
opnar ráðstefnu klukkan 13 í dag í Þjóð-
skjalasafninu að Laugavegi 162 um
skjöl landsnefndarinnar fyrri. Að sögn
Hrefnu Róbertsdóttur sagnfræðings er í
þeim skjölum fjallað um allt sem snýr að
íslensku samfélagi á seinni hluta 18. aldar,
heilbrigðismál, vegi, hafnir, landbúnað,
verslun, samskipti við kaupmenn og emb-
ættismenn, handverk og allt mögulegt.
„Þarna koma fram ábendingar og
upplýsingar frá almenningi sem alla
jafna hafði ekki rödd. Sumar eru skrif-
aðar í orðastað vinnufólks og lýsa lélegum
aðbúnaði þess,“ segir hún.
Ráðstefnan er haldin í tilefni af útkomu
annars bindisins af sex í heildarútgáfu
skjalanna, á vegum Sögufélags, Þjóð-
skjalasafnsins og Ríkisskjalasafns Dan-
merkur. Þær Hrefna og Jóhanna Guð-
mundsdóttir hjá Þjóðskjalasafninu hafa
unnið að útgáfunni. Hrefna segir ekki hafa
verið mikið fjallað um þessi skjöl áður en
þeirra hafi verið aflað í upphafi af þriggja
manna nefnd sem danski konungurinn
sendi til Íslands. „Þessir menn dvöldu hér
frá vorinu 1770 til haustsins 1771 og voru
fyrstu íbúar tukthússins við Arnarhól sem
nú hýsir Stjórnarráðið.
Það sem þeir gerðu var að skrifa til-
skipun sem lesa átti upp í öllum kirkjum
og á öllum manntalsþingum þar sem
óskað var eftir ábendingum og skrifum frá
prestum og almenningi. Einnig skrifuðu
þeir embættismönnum og lögðu fyrir þá
spurningar.
Upp úr þessu kemur 4.000 síðna heim-
ildasafn. Það er skrifað með 18. aldar skrift
og hefur verið frekar óaðgengilegt fyrir
aðra en nokkra sagnfræðinga sem hafa
getað lesið það.“ gun@frettabladid.is
Ástandið á Íslandi um 1770
Norræni skjaladagurinn er í dag. Ráðstefna um skjöl landsnefndar sem safnaði upplýs-
ingum um aðstæður á Íslandi á árunum 1770 til 1771 verður haldin í Þjóðskjalasafninu.
Þær Hrefna og Jóhanna eru ritstjórar útgáfu á skjölum landsnefndarinnar fyrri. Nýlega kom
út 2. bindið af sex. Fréttablaðið/GVa
Bréf:
Séra Jón Hannesson í Marteinstungu skrifar um húsaga og leiðir til
viðreisnar landinu 11.5.1771.
„Það er hryggilegt að vita hvað mikið peningatjón og heilsuspill-
ing brennivín gjörir íslenskum auk stórrar óvirðingar oftlega þar af
rísandi. Ég vildi óska brennivín flyttist ei til Íslands nema af skornasta
skammti og til öngra seljast utan læknara, er framvísa kunna rigtugu
atteste að vit og leyfi hafi að höndla með læknisdóma. Síðst vildi
ég brennivín mætti brúkast til brúðlaupa og erfisdrykkju.“ (Lands-
nefndin fyrri II, Rvk. 2016, bls. 528).
Þarna koma fram
ábendingar og upp-
lýsingar frá almenningi sem alla
jafna hafði ekki rödd. Sumar eru
skrifaðar í orðastað vinnufólks
og lýsa lélegum aðbúnaði þess.
Hrefna Róbertsdóttir, sagnfræðingur
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r42 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót