Fréttablaðið - 12.11.2016, Síða 98
Bragi Halldórsson
225
„Jæja, Konráð,“ sagði Kata. „Þú sem allt veist, hvað á að gera hér?“ „Við eigum
að klippa út þessi fimm form,“ sagði Konráð. „Og raða þeim þannig saman að þau
myndi stóran bókstaf.“ „Bókstaf,“ sagði Kata önug. „Ekki segja mér að við eigum
að búa til bókstaf. Ég get ekki séð að það sé hægt.“ Róbert klóraði sér í hausnum.
Hann gat heldur ekki séð hvernig hægt væri að búa til stóran bókstaf úr þessum
skrítnu formum.
Getur þú raðað saman þessum formun svo úr verði stór bókstafur?
Ólafur Matti er í 5. bekk í Hóla-
brekkuskóla og finnst lang-
skemmtilegast í ensku. Hann
hefur gaman af að lesa og var að
ljúka við eina bók sem hann gat
varla lagt frá sér. Hvaða bók er
það? Hún heitir Maður hendir
ekki börnum í ruslatunnuna
og er eftir Bent Haller. Hún er
spennandi og hræðileg, reyndar
svo mikið að ég fékk martröð.
En hún fékk mig til að hugsa
um hvað ég myndi gera í sömu
aðstæðum og söguhetjurnar sem
finna nýfætt barn í ruslinu.
Helstu áhugamálin? Tónlist, helst
popp, RB og allt rokk, líka hip-
hop dans, að lesa skemmtilegar
bækur, gera myndbönd og svo er
ég að læra á gítar.
Skemmtilegasta ferðalagið?
Þegar ég fór hringinn kringum
Ísland. Mér finnst gaman að
skoða náttúruna og auðvitað að
vera með fjölskyldunni.
Uppáhaldsstaður á Íslandi? Mér
finnst Háifoss í Þjórsárdal mjög
flottur og líka stuðlabergið í
Reynisfjöru í Mýrdal.
Eftirlætistölvuleikur? Ég hef
engan áhuga á tölvuleikjum en
mér þykir gaman að dansa og
syngja við tónlistarmyndbönd á
YouTube.
Hefurðu lent í ævintýri? Einu
sinni ætlaði ég að skreppa með
vini mínum í stuttan hjólatúr
heima í Efra-Breiðholti sem
endaði óvænt í IKEA í Garðabæ.
Við áttum 200 krónur og héldum
að þær dygðu fyrir einhverju
góðgæti í hjólatúrnum. Byrjuð-
um í Smáralind og ætluðum að fá
okkur Dunkin Donuts kleinu-
hringi en bara einn kostaði 350!
Þá datt okkur í hug að hjóla í
IKEA, þar gátum við keypt okkur
hvor sitt glasið af ísköldu krapi
fyrir peninginn. Foreldrar okkar
urðu frekar hissa þegar þeir
fréttu af þessu ferðalagi.
Hvað langar þig að verða? Mig
langar mest að verða heimsfræg
popp- og rokkstjarna. Þá gæti
ég orðið nógu ríkur til að hjálpa
þeim sem eiga bágt í heiminum
og kannski haft áhrif á að stríð
taki enda. Það er stóri draumur-
inn minn.
Gerir myndbönd
og lærir á gítar
Ólafur Matti Matthíasson er tíu ára. Hann langar að verða heims-
fræg rokkstjarna og nógu ríkur til að hjálpa þeim sem eiga bágt.
Í skólanum:
Kennarinn: Gústi, getur þú nefnt
mér tíu afrísk dýr.
Gústi: Ekkert mál. Einn gíraffi og
níu fílar.
Í eldhúsinu:
Mamma: Þú átt ekki að teygja þig
svona eftir kökufatinu, Ella Sigga. Þú
átt að biðja fólk að rétta þér. Ertu
ekki með tungu?
Ella Sigga: Jú, en handleggurinn
er lengri en tungan.
Í réttinum:
Dómarinn: Hverju hentir þú í
þann sem ákærir þig?
Sakborningurinn: Bara sveppum.
Dómarinn: Hvernig stendur þá
á því að hann rotaðist og er með
stóra kúlu á höfðinu?
Sakborningurinn: Sveppirnir
voru í dós.
Í búðinni:
Regína: Þú gafst mér vitlaust til
baka í gær.
Afgreiðslumaðurinn: Þú hefðir
átt að segja það strax í gær. Nú er
það of seint.
Regína: Flott, ég held þá bara
þúsundkallinum.
Brandarar
Þorvaldur Hörður Villys- og
Láruson, 8 ára gamall, teikn-
aði þessa mynd í 1. bekk í
Vesturbæjarskóla. Hann fann
hana rétt fyrir forsetakosn-
ingarnar í Bandaríkjunum og
sagði að þetta væri alveg eins
og Trump.
Listaverkið
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r50 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð