Fréttablaðið - 12.11.2016, Page 104
sonne t t an
Ný skáldsaga eftir
S I G U R J Ó N M A G N Ú S S O N
»» H jónabandið
»» Mannorð ið
»» L jóð l is t in
»» A fbrýð isemin
»» F jö lmenning in
»» Só lars t röndin
»» Ást in
Áhrifamikil og tímabær bók! Þær Inga Huld Hákonar-dóttir og Rósa Ómars-dóttir eru ungar og upp-rennandi í íslenskum dansheimi og þó svo víðar væri leitað. Þrátt
fyrir ungan aldur eru þær í raun
komnar langt frá því að vera efni-
legar enda unnu þær til Grímuverð-
launa fyrir dansverkið The Valley á
síðasta leikári. Að þessu sinni eru
þær þó að semja dansverk fyrir hóp,
en í kvöld verður frumsýnt eftir þær
verkið DaDa Dans á vegum Íslenska
dansflokksins á Nýja sviði Borgar-
leikhússins.
Þær Inga Huld og Rósa luku
báðar framhaldsnámi frá hinum
virta Listaháskóla P.A.R.T.S. fyrir
um tveimur árum en báðar hófu
þær vegferð sína í dansinum hér
heima. Það sem vekur þó ekki síst
eftirtekt er að svo ungar listakonur
skuli kjósa að leita í smiðju lista-
stefnu á borð við dadaisma sem er
reyndar 100 ára um þessar mundir.
Rósa segir að rætur dadaismans
megi rekja til þess þegar hinn víð-
frægi Cabaret Voltaire hafi opnað í
Zürich. „Hugo Ball og Emma Henn-
ings opnuðu þennan kabarett sem
ákveðið svar því hvernig listin var
á þessum tíma. Þau voru mikið
að velta því fyrir sér hvernig við
metum list og þau gerðu mikið af
því að blanda saman listgreinum og
vissulega að stuða fólk. Þau skrifuðu
mikið af manifestóum þar sem þau
veltu fyrir sér gildi listarinnar og
þar skrifuðu þau jafnvel manifestó
sem stönguðust á og svona rugluðu
dáldið hressilega í fólki.“
Inga Huld tekur undir þetta og
bætir við að þetta hafi líka mikið
til verið ákveðið svar við stríði og
ástandinu í samfélaginu. „Það voru
margir listamenn þarna í Zürich
sem höfðu þurft að flýja frá sínum
heimahögum í fyrri heimsstyrjöld-
inni og þau voru að reyna að tækla
þær öfgastefnur sem voru í gangi í
listheiminum á þessum tíma.“
En hvers vegna skyldi þetta höfða
til tveggja ungra danshöfunda frá
Íslandi hundrað árum síðar? „Við
búum Brussel og það hefur farið
mikið fyrir þessu afmæli þar og
víðar. Okkur fannst því tilvalið að
fagna þessu líka í dansi, ekki síst
vegna þess að dansinn hefur ekki
verið ýkja tengdur við dadaisma.
Kannski er það vegna þess að þær
konur sem unnu innan stefnunnar
fengu litla umfjöllun á sínum tíma
og því er lítið vitað um dans innan
stefnunnar.
Þegar við fórum að skoða stefn-
una og forsendur hennar þá fannst
okkur líka að það væri mikill sam-
hljómur með því sem er að gerast í
samfélaginu í dag og var þá. Þannig
að þetta á við í dag.“
Rósa segir að þetta felist meðal
annars í þeim mikla uppgangi öfga
sem heimurinn stendur frammi
fyrir í samtímanum. „Það er mikill
hægri uppgangur og aðskilnaður
á svo mörgum sviðum. Sjáið bara
Trump. Málið er að sagan virðist
vera að endurtaka sig. Því miður
virðist það vera þannig að þetta
harðlínuhægri sem fer eins og
eldur í sinu um heimsbyggðina
núna ber með sér kynþáttafor-
dóma og fleiri fordóma gagnvart
ýmsum minnihlutahópum og það
er auðvitað áhyggjuefni.“
„En markmið dada er að forð-
ast þennan aðskilnað,“ segir Inga
Huld. „Leitast við að láta allt efni
búa saman í sátt í einum heimi.
Klippimyndin á þannig t.d. upp-
runa sinn í þessari stefnu og hún
gengur einmitt út á að endurnýta
og sætta ólík efni í einni heild.
Þannig er þessi stefna svar við því
að skapa list á tímum ringulreiðar
og óvissu og við leitumst við að
gera slíkt hið sama. Við erum
á ákveðinn hátt að gera klippi-
myndaverk, eins og þessir lista-
menn gerðu fyrir hundrað árum,
en auðvitað gerum við það á okkar
hátt og inn í samtímann.“
Dada leitast við að láta allt búa
saman í sátt í einum heimi
Í kvöld frumsýnir Íslenski dansflokkurinn DaDa Dans á Nýja
sviði Borgarleikhússins. Dadaismi er einmitt hundrað ára um
þessar mundir en felur þó í sér skírskotanir til dagsins í dag.
Danshöfundarnir á Nýja sviði Borgarleikhússins þar sem verkið þeirra DaDa Dans verður frumsýnt í kvöld. FréttaBlaðið/GVa
Úr sýningunni DaDa Dans hjá Íslenska dansflokknum.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
ÞaNNig er Þessi
stefNa svar við ÞvÍ
að skapa list á tÍmum
riNgulreiðar og óvissu og
við leitumst við að gera
slÍkt hið sama.
1 2 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r56 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð