Morgunblaðið - 14.09.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
Morgunblaðið/Hari
WOW Trygging Isavia fór með Air-
bus-þotunni sem flogið var brott.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Isavia hefur kært niðurstöðu Lands-
réttar sem hafnaði að ógilda úrskurð
héraðsdóms um að Isavia þyrfti að
afhenda flugvélaleigunni þotu þá
sem Isavia kyrrsetti vegna krafna á
eigandann frá því WOW air varð
gjaldþrota í lok mars. ALC hefur
gagnkært vegna málskostnaðar.
Deilur Isavia og ALC vegna kyrr-
setningar Isavia á Airbusþotu sem
WOW air var með á leigu hefur verið
fyrir hinum ýmsu dómstigum frá því
WOW air varð gjaldþrota. Vélin var
eina trygging Isavia vegna liðlega
tveggja milljarða króna skuldar
WOW air við Isavia. Eftir mikið japl,
jaml og fuður fékk ALC þotuna af-
henta eftir miðjan júlí og lét fljúga
henni af landi brott eftir að Héraðs-
dómur Reykjaness úrskurðaði að
vélin gæti ekki verið trygging fyrir
heildarskuldum WOW air, aðeins
þeim skuldum sem snéru að notkun
vélarinnar sjálfrar.
Vísað frá Landsrétti
Landréttur hafnaði í lok ágúst
kröfu Isavia um að úrskurður hér-
aðsdóms yrði felldur úr gildi á þeim
forsendum að ALC hefði fengið far-
þegaþotuna afhenda og Isavia ætti
ekki lengur lögvarða hagsmuni af því
að fá niðurstöðu héraðsdóms hnekkt.
Á sömu forsendum var neitun hér-
aðsdóms um að málskot frestaði
réttaráhrifum úrskurðarins hafnað.
Var báðum þessum efnisatriðum vís-
að frá dómi.
Telja dóminn rangan
Guðjón Helgason, upplýsinga-
fulltrúi Isavia, staðfestir að niður-
staða Landsréttar hafi verið kærð til
Hæstaréttar. Segir hann að Isavia
telji mikilvægt að fá úr málinu skorið
fyrir æsta dómstóli landsins því nið-
urstaðan verði fordæmisgefandi fyr-
ir önnur mál í framtíðinni.
Stjórnendur Isavia voru afar
óánægðir með niðurstöðu héraðs-
dóms á sínum tíma. Sögðu að vélin
hefði farið úr landi vegna þess að
dómur héraðsdóms hafi verið rangur
en ekki vegna þess að Isavia hafi
beitt kyrrsetningarheimild með
röngum hætti.
Ákvörðun málskostnaðar var eina
atriðið sem Landsréttur vísaði ekki
frá dómi. Ákvað rétturinn að máls-
kostnaður og kærumálskostnaður
félli niður, þannig að hvor aðili skyldi
bera sinn kostnað. Oddur Ástráðs-
son, lögmaður ALC, staðfestir að
fyrirtækið hafi gagnkært vegna
málskostnaðar.
Isavia kærir niðurstöðu Landsréttar
Þotan er löngu farin en Isavia telur mikilvægt að fá úrskurð Hæstaréttar í málinu gegn ALC vegna
fordæmis niðurstöðunnar ALC gagnkærir vegna málskostnaðar sem Landsréttur lét falla niður
Eigendur vindorkugarðanna sem
óskuðu eftir styrkingu á flutnings-
kerfinu þannig að þeir gætu komið
orkunni frá sér þurfa ekki að greiða
stofnkostnað vegna lagningar um
100 km háspennulínu úr Hvalfirði í
Hrútafjörð.
Áætla má að umrædd háspennu-
lína kosti rúma átta milljarða króna.
Gert er ráð fyrir að undirbúningi
fyrir lagningu hennar verði flýtt,
samkvæmt uppfærðri kerfisáætlun
Landsnets sem skilað hefur verið til
Orkustofnunar.
Endurnýjun á byggðalínu
Sverrir Jan Norðfjörð, fram-
kvæmdastjóri tækni- og þróunar-
sviðs Landsnets, segir að línan sé
hluti af meginflutningskerfinu. End-
urnýja þurfi byggðalínuna á þessum
kafla og víðar og það sé Landsnets
að koma með tillögu um forgangs-
röðun framkvæmda. Væntanlega
aukist viðskiptin þegar vindorku-
garðarnir hefji raforkuframleiðslu
og það auki tekjur Landsnets. Of
snemmt sé að fullyrða um hvort og
þá hvaða áhrif framkvæmdin hefði á
gjaldskrá.
Sverrir tekur fram að vindorku-
garðarnir gætu þurft að greiða
kostnað við tengingar við kerfið, svo-
kallað kerfisframlag, en það þurfi að
skoða í hverju tilviki fyrir sig.
Línan verður tæpir 100 km að
lengd og tengir Norðvesturland við
mesta orkuöflunarsvæði landsins,
Suðvesturland. Hún nýtist því
stærra svæði en Dölum og Gilsfirði
þar sem fyrirhugað er að reisa þrjá
vindorkugarða. helgi@mbl.is
Vindorkugarðar
greiða ekki línuna
Háspennulínan kostar um átta milljarða
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Ormskríkja (Vermivora peregrina),
lítill amerískur spörfugl, hefur und-
anfarna daga haldið til á Suðvestur-
landi, nánar tiltekið við Reykjanes-
vita, eftir að einhver kröftug lægðin
greip hana nýverið og feykti upp til
Íslands. Fuglar þessarar tegundar
eru 10-13 cm að stærð og 6,2-18,4 g
að þyngd. Skríkjunnar varð fyrst
vart á sunnudag, 8. september, þeg-
ar náðist af henni símamyndbands-
upptaka. Einungis einu sinni áður
hefur ormskríkja fundist hér á landi,
það var 14. október 1956 á Hall-
bjarnareyri í Eyrarsveit á Snæfells-
nesi. Það var jafnframt fyrsta orm-
skríkja Evrópu.
Sumarheimkynnin eru í austan-
verðri Norður-Ameríku, stranda á
milli í Kanada, allt norður undir 63.
breiddargráðu, og suður í nyrstu
ríki Bandaríkjanna, Maine, New
York, Michigan og Minnesota.
Vetrarstöðvar eru í löndunum frá
Gvatemala og austur til Vestur-
Kólumbíu og Norður-Venesúela.
Í varpheimkynnum sínum nær-
ist ormskríkjan aðallega á skor-
dýralirfum, einkum hreisturvængja
(fiðrilda), en á veturna líka sitt-
hverju úr jurtaríkinu, s.s. ávöxtum,
berjum og hunangslegi.
Ormskríkjan á Reykjanesi mun
vera ungfugl. Ljósmynd/Mikael Sigurðsson
Síðast sást
hér til fugls-
ins 1956
Sjaldgæfur spörfugl úr Vesturheimi, ormskríkja, hefur sést að undanförnu á Suðvesturlandi
GRÆNT ALLA LEIÐ