Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 24
Teymi UN Women-teymið hjá Pipar\TBWA: Hreiðar Júlíusson, Víðir Björnsson, Sævar Sigurgeirsson, Ásdís Rúnarsdóttir, Björn Jónsson, Vigdís Jóhannsdóttir, Selma Þorsteinsdóttir og Snorri Sturluson. laun, en það var fyrir 29 árum þegar AUK, Auglýsingastofa Kristínar, fékk verðlaun fyrir umbúðir sem El- ísabet Cohran hannaði. Verðlaunaherferðin var frumsýnd á síðasta ári. Hún vakti strax mikla athygli og var valin almannaheilla- auglýsing ársins á Lúðrinum – ís- lensku auglýsingaverðlaununum. Átakanleg vinna Í auglýsingunni lásu karlar tvo texta um gróft kynferðisofbeldi. Fyrst texta sem gerðist úti í heimi en síðar lásu þeir lýsingu, sem þeir fengu síðar að vita að var skrifuð af konu sem sat á móti þeim. „Verðlaunin verða ekki mikið stærri. Þetta er eins og að fá Óskarsverð- launin,“ segir Valgeir Magnússon, starfandi stjórnarformaður auglýs- ingastofunnar Pipar\TBWA, en stof- an fékk á dögunum gullverðlaun í hinni bandarísku CLIO-auglýsinga- keppni, fyrir He for She-herferðina sem unnin var fyrir UN Women á Ís- landi. Titill herferðarinnar var: „Kyn- bundið ofbeldi er nær en þú heldur“. Valgeir segir að fulltrúar Pipar\- TBWA muni fara til New York til að veita verðlaununum viðtöku hinn 25. september nk. Aðspurður segir hann að íslensk auglýsingastofa hafi aðeins einu sinni áður fengið CLIO-verð- „Vinnan við herferðina var mjög átakanleg. Þegar þú lest texta um svona gróft kynferðisofbeldi, og færð svo að vita að fórnarlambið situr beint á móti þér, þá koma alvöru tilfinning- ar fram beint í andliti viðkomandi. Við sem fylgdumst með fengum einnig til- finningarnar beint í æð.“ Spurður um hvaða þýðingu verð- launin hafa fyrir Pipar\TBWA segir Valgeir að það sé gott fyrir sjálfs- traustið að fá svona alþjóðlega viður- kenningu. „Þetta hefur líka vakið at- hygli á okkur. Við erum hluti af hinni alþjóðlegu TBWA-auglýsingastofu- keðju og þetta þýðir að við skiptum meira máli í heildarsamhenginu.“ Herferð Söngvarinn Króli var einn karlmannanna sem komu fram í auglýs- ingunni. Hér sést hann á auglýsingaskilti úr herferðinni. Eins og að fá Óskarsverð- launin í auglýsingagerð  Pipar\TBWA fékk eftirsótt verðlaun fyrir herferð um kyn- ferðisofbeldi  Fara til New York 25. september 24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019 STUTT ● Hlutabréf Kviku hækkuðu um 0,78%, mest allra fyrirtækja, í Kaup- höll Íslands í gær í 241 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa Kviku nemur 10,3 kr. bréfið. Heildarvelta í kaup- höllinni í gær nam 711 milljónum króna en viðskipti með bréf Marels, sem lækkuðu um 0,09% og standa í 578,5 kr. og bréf Kviku námu 63% af heildarviðskiptum gærdagsins. Mest lækkuðu hlutabréf í sjávarútvegsfyr- irtækinu Brimi, eða um 2,77% í 132 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfa félagsins stendur í 36,9 kr. Þá lækkaði Skeljungur um 1,15% og standa bréf félagsins í 7,72 kr. Kvika hækkaði mest á rólegum degi í kauphöll Bjalla Velta nam 711 mkr. í gær. 9,7% árið 2016. „Hlutfall framúr- skarandi fyrirtækja í hverjum geira gefur ákveðna mynd af því hversu stöðugur geirinn er. Ef þú ert með mörg framúrskarandi fyrirtæki inn- an ákveðins geira, ætti það að gefa til kynna að hann sé frekar stöð- ugur,“ segir Kári Finnsson, við- skiptastjóri hjá Creditinfo. Þá er nýliðun í greininni að minnka, og aðeins 83 ný fyrirtæki voru skráð árið 2018. Árið á undan voru þau 108 og árið þar á undan voru þau 166. Til að ná á lista yfir framúrskar- andi fyrirtæki þurfa fyrirtæki meðal annars að uppfylla skilyrði um meira en 20% eiginfjárhlutfall og já- kvæða rekstrarniðurstöðu síðustu þrjú ár. Creditinfo mun gefa út lista yfir framúrskarandi fyrirtæki þann 23. október nk. Sama dag kemur út sérblað í samstarfi við Morgunblað- ið. Ferðaþjónustan byrjaði að dragast saman 2017  Áhrif Icelandair mikil á greinina í heild sinni  Nýliðun minnkar Ferðaþjónustufyrirtæki á lista Framúrskarandi fyrirtækja Þróun EBITDA og rekstrarhagnaðar með og án Icelandair, þús. kr. Þróun rekstrarhagnaðar, meðaltal 2009-2018 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 0 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Öll ferðaþjónustufyrirtæki Ferðaþjónustufyrirtæki án Icelandair Þróun EBITDA, meðaltal 2009-2018 100.000 80.000 60.000 40.000 20.000 0 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Öll ferðaþjónustufyrirtæki Ferðaþjónustufyrirtæki án Icelandair Heimild: Creditinfo BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Þrátt fyrir að mikið hafi verið rætt um það á þessu ári að íslensk ferða- þjónusta hafi dregist talsvert saman síðustu mánuði vegna falls flug- félagsins WOW air meðal annars, þá sýna ný gögn frá Creditinfo að samdráttur í ferðaiðnaði hafi byrjað strax árið 2017. Þannig sýna gögnin að meðal- rekstrarhagnaður fyrirtækja í greininni hafi verið rúmar 63 millj- ónir króna árið 2016 en árið 2017 var hagnaðurinn orðinn rúmar 44 milljónir króna. Árið 2018 minnkaði hann enn og var tæpar 25 milljónir króna. Sömu þróun má sjá í EBITDA-hagnaði félaganna. Icelandair stórt Á töflunni sem fylgir fréttinni má bæði sjá þróun með og án Iceland- air, en það er gert vegna umfangs flugfélagsins og mikilla áhrifa sem afkoma félagsins hefur á greinina alla. Félagið tapaði t.d. rúmum 6,7 milljörðum króna á síðasta ári. Séu aðrir mælikvarðar skoðaðir í samantekt Creditinfo fyrir Morgun- blaðið má sjá að hlutfall ferðaþjón- ustufyrirtæka af fjölda framúrskar- andi fyrirtækja, lista sem Creditinfo tekur saman árlega, er aðeins að dragast saman, og var 8,7% árið 2018. Það var 9% árið á undan og ● Í ágúst jókst velta erlendra greiðslu- korta um 4,7% borið saman við sama mánuð í fyrra, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Er aukningin að- eins minni en í júlí þegar velta erlendra greiðslukorta jókst um 5,1% borið sam- an við júlí 2018. Þessar tölur Hagstof- unnar taka ekki tillit til viðskipta við ís- lensk flugfélög og hafa þau verið tekin út úr veltunni, til að gefa betri mynd af eyðslu útlendinga á Íslandi. Á þessu ári hefur velta erlendra greiðslukorta aukist í sex af þeim átta mánuðum sem liðnir eru. Í maí og júní var veltan nánast sú sama og í fyrra. Kemur aukningin þrátt fyrir fækkun ferðamanna. Þá hefur meðal annars greiningardeild Arion banka spáð að fækkun erlendra ferðamanna til lands- ins verði um 15% á árinu. Eyðsla ferðamanna eykst þrátt fyrir fækkun 14. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.33 125.93 125.63 Sterlingspund 154.48 155.24 154.86 Kanadadalur 94.98 95.54 95.26 Dönsk króna 18.506 18.614 18.56 Norsk króna 13.987 14.069 14.028 Sænsk króna 12.969 13.045 13.007 Svissn. franki 126.42 127.12 126.77 Japanskt jen 1.161 1.1678 1.1644 SDR 171.44 172.46 171.95 Evra 138.11 138.89 138.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.5649 Hrávöruverð Gull 1502.95 ($/únsa) Ál 1773.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.16 ($/fatið) Brent Selfoss // Akureyr i // Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Tilboðsverð frá 1.480.000 Mest seldu f jórhjól á Íslandi á ti lboði! ALLT AÐ 1 90.000 kr . AFSLÁTTU R! 1.290.000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.