Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutn- ingsmaður frumvarpa til laga um breytingu á barnaverndarlögum, nr. 80/2002, og almennum hegningar- lögum, nr. 19/1940 sem felur það í sér að heimilt verði að viðhafa sérstakt eftirlit með barnaníðingum sem af- plánað hafa fangelsisdóm. Þetta er í þriðja sinn sem frumvarpið er flutt. Helga Vala Helgadóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, og Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, eru meðflutn- ingsmenn Silju að frumvarpinu. Lögð er til breyting á barnavernd- arlögum í nýrri grein, 36. gr. undir fyrirsögninni Eftirlit. Þar segir m.a.: „Fangelsismálastofnun veitir Barna- verndarstofu upplýsingar um upphaf afplánunar í þeim tilvikum þegar brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, hefur beinst gegn einstaklingi sem ekki hefur náð 18 ára aldri. Bendi niðurstöður mats sam- kvæmt lögum um meðferð sakamála til þess að veruleg hætta sé talin stafa af viðkomandi einstaklingi og í refsi- dómi er kveðið á um áframhaldandi ráðstafanir í öryggisskyni eftir að af- plánun lýkur skulu Barnavernd- arstofa og Fangelsismálastofnun eiga samstarf um úrræði gagnvart ein- staklingnum á meðan afplánun og reynslulausn varir. Fangelsismálastofnun veitir Barnaverndarstofu jafnframt upplýs- ingar um lok afplánunar og reynslu- lausnar, skilyrði sem sett eru í refsi- dómi fyrir reynslulausn sem og fyrirhugaðan dvalarstað einstaklings að afplánun lokinni auk gagna sem til eru frá heilbrigðisstarfsmönnum um einstaklinginn. Viðkomandi ein- staklingi er jafnframt skylt að til- kynna breyttan dvalarstað til Barna- verndarstofu án tafar þegar afplánun er lokið allan þann tíma sem áfram- haldandi ráðstafanir eiga að vara. Í þeim tilvikum þar sem kveðið er á um sérstakar öryggisráðstafanir gagnvart einstaklingum, sem hafa gerst sekir um brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga, hefur Barnaverndarstofa, í samráði við lögreglu og barnaverndar- og fé- lagsmálayfirvöld þar sem ein- staklingur er búsettur, það hlutverk að gera þær öryggisráðstafanir. Barnaverndarstofa getur tilkynnt viðkomandi barnaverndarnefnd flytji einstaklingur sem veruleg hætta er talin stafa af í umdæmi hennar. Ef rík barnaverndarsjónarmið mæla með getur barnaverndarnefnd gert öðrum viðvart að fengnu samþykki Barna- verndarstofu.“ Vilja heimila eftirlit með barnaníðingum  Eftirlit geti farið fram þótt einstak- lingur hafi lokið afplánun dóms Morgunblaðið/Eggert Alþingi Frumvarp um eftirlit með barnaníðingum flutt í þriðja sinn. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hvorki gengur né rekur hjá Strætó að halda áætlun strætisvagna að Háskólanum í Reykjavík. Strætó gerði breytingar á leiðakerfi sínu fyrir haustið til þess að bæta úr, þær hafa litlu skilað fyrir farþega á leið í HR. Sem kunnugt er teppist umferð verulega í nágrenni við skólann á álagstímum. Morgunblaðinu barst ábending um nemanda skólans sem rak upp stór augu þegar mælt var með því á vef Strætó að taka leið 18 ofan úr Grafarholti niður að Veðurstofu til þess að ganga síðan í hátt í 25 mín- útur, yfir Öskjuhlíð og að HR. Hugnaðist honum þetta illa, sér- staklega með frost, slabb og skammdegi í huga, og ákvað að fjárfesta í bíl til þess að sækja skól- ann. Áætlanir standast ekki Strætó gerir ráð fyrir annarri leið, þ.e. úr Grafarholti með leið 18 í Ártún þar sem skipt sé yfir í vagn 6. Með honum liggi leið að BSÍ það- an sem leið 8 fer í HR, en hún er ný af nálinni hjá Strætó. Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, segir að áætlanir leiðar 8 standist þó nær aldrei á álagstímum sökum umferðarþunga í Öskjuhlíð. Guðmundur Heiðar segir að leið 8 hafi verið bætt við leiðakerfið í byrjun hausts í tengslum við erf- iðleikana í Öskjuhlíð. Fimman var sú leið sem fór að HR, en leið henn- ar liggur einnig upp í Árbæ og Norðlingaholt. Guðmundur segir það hafa komið fyrir að þrjár fimm- ur hafi verið fastar í einu í umferð við HR. „Leiðin upp í Árbæ og Norðlingaholt fór bara í klessu. Eins og við bjuggumst við, þá er leið 8 reglulega föst og engar áætl- anir standast á álagstímum liggur við, þar til eitthvað meira kemur til. Hvað það verður er ég bara ekki viss um,“ segir hann. Hugbúnaðurinn ferkantaður Spurður hvort Strætó sé ráð- þrota hvað varðar strætóferðir að háskólanum svarar Guðmundur Heiðar því til að það sé „eiginlega“ staðan. „Það hefur verið rætt um for- gangsakrein og brú þarna yfir [frá Kársnesi], en það snýr algjörlega að skipulagshliðinni. Það segir sig sjálft að það verður teppa þegar það er bara ein akrein að háskól- anum. Sumir hafa lýst því að þeir séu 70 mínútur á einkabíl frá Há- skólanum að BSÍ. Aðstæðurnar eru bara hræðilegar,“ segir hann. „Ég veit að fólk er ekki endilega ánægt með þá breytingu að þurfa að skipta þrisvar um vagn, en þetta er okkar tilraun til þess að gera fimm- una að áreiðanlegri leið,“ segir Guð- mundur Heiðar. Spurður af hverju Strætó mæli með því að fólk gangi í 25 mínútur frá Veðurstofu Íslands segir Guð- mundur Heiðar að á vefnum og í smáforritinu sé lögð áhersla á það í algríminu að stinga upp á leiðum þar sem sjaldan sé skipt um vagna. Þó sé einnig tekið með í reikninginn að fólk þurfi ekki að ganga langar vegalengdir. „Ég held að „appið“ gefi hugmyndir um að labba gegn- um Öskjuhlíðina af því 18 stoppar ekki á BSÍ, en síðan er einnig gef- inn möguleiki á því að skipta yfir í leið 6 í Ártúni. Appið reynir að halda skiptingum milli vagna eins fáum og hægt er,“ segir Guðmund- ur. „Þetta er auðvitað hugbúnaður sem er ótrúlega ferkantaður í hugs- un. Við biðjum fólk að skoða mögu- leikana aðeins betur því appið gerir kannski ekki alveg ráð fyrir veðri og vindum.“ Fastir í sömu súpu og aðrir Leó Snær Emilsson, formaður Stúdentafélags HR, segir félagið hafa ritað borginni og Strætó bréf vegna stöðu mála. Hann segir það koma fyrir að nemendur mæti of seint í kennslustundir vegna um- ferðarinnar, en enn meiri álagstími sé þó seinnipartinn. Ekki hefji allir skóladaginn á sama tíma en margir vilji komast heim á sama tíma. „Það er ekki beint hvetjandi að taka strætó ef þú ert fastur í sömu súpunni og allir hinir,“ segir hann, en samkvæmt svörum Strætó við erindi stúdentanna sér Reykjavík- urborg um að greiða úr flækjunni. „Með tilkomu borgarlínu á að breikka veginn og búa til sérakrein fyrir strætó. Við erum að þrýsta á Reykjavíkurborg um að gera þetta fyrr,“ segir Leó Snær, en hug- myndin gengur út á að viðbótar- akrein yrði forgangsakrein fyrir strætó eingöngu á álagstímum. Leó bendir á að málið snúist ekki aðeins um hentisemi fyrir nemend- ur heldur sé einnig öryggisatriði tengt rýmingu háskólans. Strætó er ráðþrota  Strætó-appið mælti með 20 mínútna göngutúr í Öskjuhlíð  Áætlun HR-leiðar stenst illa  Stúdentar þrýsta á borgina Ferðatími með Strætó frá Grafarholti að Háskólanum í Reykjavík Dæmi um tvær mismunandi leiðir samkvæmt vefsíðu Strætó Kristnibraut/ Prestastígur 07:35 Kristnibraut / Prestastígur 07:3708:19 07:59 Veðurstofan Veðurstofan Ártún BSÍ Háskólinn í Reykjavík Háskólinn í Reykjavík Gangið yfi r Hinkrið í 2 mín.22 mín.20 mín. Takið leið 18 í átt að HlemmiÖskjuhlíðina Ferðatími er alls tæpar 45 mínútur Kortagrunnur: www.strætó.is Miðað við neðangreinda brottfarartíma 18 HLEMMUR 07:50 Kristnibraut / Prestastígur 07:5208:30 Ártún 08:1708:23 08:0308:08 BSÍ Háskólinn í Reykjavík Hinkrið í 2 mín.11 mín.7-10 mín.* Leið 18 í átt að Hlemmi 9 mín. Leið 6 að BSÍLeið 8 að Nauthól *Með stuttri göngu að Háskólanum Fyrir hrein eyru EINFÖLD OG ÁHRIFARÍK LEIÐ TIL AÐ MÝKJA OG FJARLÆGJA EYRNAMERG Á NÁTTÚRULEGAN HÁTT MEÐ ÓLÍFUOLÍU fæst í öllum helstu apótekum Rúmlega tveir af hverjum tíu hafa orðið fyrir einelti á vinnustað og eru konur líklegri en karlar til að greina frá því, eða um 25 prósent kvenna á móti sjö prósentum karla. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála- ráðherra, tók á móti í gær og kynnti fyrir ríkisstjórninni. Skýrsl- an nefnist „Valdbeiting á vinnustað – rannsókn á algengi og eðli einelt- is og áreitni á íslenskum vinnu- markaði“. Samkvæmt rannsókninni eru fatlaðir þátttakendur og þátttak- endur með skerta starfsgetu mun líklegri til að hafa reynslu af einelti en þátttakendur án skerðingar eða fötlunar, eða 35% á móti 20%. Um 16% þátttakenda greina frá því að hafa orðið fyrir kynferðis- legri áreitni einhvern tíma á vinnu- ferlinum; 25% kvenna og 7% karla. Fatlaðir þátttakendur og þátttak- endur með skerta starfsgetu eru samkvæmt skýrslunni líklegri til að hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustað einhvern tíma á lífsleiðinni en aðrir þátttakendur, eða 21 prósent á móti 15 prósent- um. Konur líklegri til að greina frá einelti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.