Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.09.2019, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019 Á kjörtímabilinu hef- ur gengið vel að sækja fram á öllum sviðum samfélagsins og í fjár- lagafrumvarpi ársins 2020 birtist glögglega áframhaldandi sókn í þá veru. Í frumvarpinu birtist enn frekari fram- sókn í þágu mennta-, vísinda-, menningar-, lista-, íþrótta- og æsku- lýðsmála í landinu sem er í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Heildarframlög málefnasviðanna eru komin í 115 milljarða. Til sam- anburðar námu heildarframlögin tæpum 98 milljörðum króna árið 2017 og er því um að ræða nafnverðs- hækkun upp á 17,5% eða 17 milljarða króna á þremur árum! Vel fjármagnaðir framhaldsskólar Framlög á hvern framhaldsskóla- nemenda í fullu námi hækka úr 1.732.000 kr. árið 2019 í 1.819.800 kr. árið 2020. Framlög til framhalds- skóla hafa hækkað umtalsvert und- anfarin ár en sú hækkun mun halda sér samkvæmt fjármálaáætlun fyrir árin 2020-2024. Árið 2020 munu heildarframlög til framhalds- skólastigsins nema 36,3 milljörðum kr. sem er aukning um 6 milljarða frá árinu 2017. Auknir fjármunir sem runnið hafa til skólanna að und- anförnu gera þeim kleift að efla sitt skólastarf enn frekar, meðal annars með því að bæta námsframboð, styrkja stoðþjónustu og endurnýja búnað og kennslutæki. Starfsnám í forgangi Meðal áhersluverkefna á árinu 2020 er að efla starfsnám. Forgangs- raðað er í þágu þess í nýju reiknilík- ani framhaldsskólanna á komandi ári. Þá verður unnið að tillögu um framkvæmd þingsályktunar um að- gengi að stafrænum smiðjum og farið í mat á endurskipulagningu námstíma til stúdents- prófs. Áfram er unnið að því fjölga nem- endum sem útskrifast úr framhaldsskóla á til- settum tíma með því að kortleggja betur nem- endur í brotthvarfs- hættu og innleiða reglubundnar mæl- ingar. Sérstök áhersla er þar lögð á nemendur með annað móðurmál en íslensku og nemendur á landsbyggðinni. Þá hef- ur verið settur á laggirnar starfs- hópur sem meta mun þörf á heima- vist á höfuðborgarsvæðinu fyrir framhaldsskólanema. Öflugra háskólastig og OECD-markmið í augnsýn Undanfarin ár hafa framlög til há- skóla og rannsóknastarfsemi verið aukin verulega og er ráðgert að þau nemi tæpum 41 milljarði kr. á næsta ári. Það er hækkun um 22,3% frá árinu 2017 þegar þau námu tæpum 33,4 milljörðum. Nýverið birti Efna- hags- og framfarastofnunin (OECD) árlega skýrslu sína Menntun í brennidepli 2019 (e. Education at Glance) þar sem fram kemur að Ís- land nálgist óðfluga meðaltal OECD í framlögum á hvern ársnema í há- skóla. Samkvæmt henni voru fram- lögin á Íslandi 94% af meðaltalinu ár- ið 2016 sem er nýjasta mælingin. Ríkisstjórnin stefnir á að framlög á hvern nemanda hér á landi nái OECD-meðaltalinu árið 2020. Við er- um því sannarlega á réttri leið. Meg- inmarkmið stjórnvalda er að íslensk- ir háskólar og alþjóðlega samkeppnishæfar rannsóknastofn- anir skapi þekkingu, miðli henni og undirbúi nemendur til virkrar þátt- töku í þekkingarsamfélagi nútímans og til verðmætasköpunar sem bygg- ist á hugviti, nýsköpun og rann- sóknum. Til að ná meginmarkmiði háskólastigsins er meðal annars unn- ið að því að auka gæði náms og náms- umhverfis í íslenskum háskólum, styrkja rannsóknastarf og umgjörð þess ásamt því auka áhrif og tengsl háskóla og rannsóknastofnana. Unn- ið er að heildstæðri menntastefnu Ís- lands til ársins 2030, þvert á skóla- stig. Á sviði háskóla stendur yfir endurskoðun á reglum um fjárveit- ingar til þeirra með það að markmiði að styðja betur við gæði í háskóla- starfi. Þá er einnig unnið að gerð stefnu um starfsemi rannsókna-, fræða- og þekkingarsetra og ráðgert að birta og hefja innleiðingu á stefnu Íslands um opinn aðgang að rann- sóknaniðurstöðum og rann- sóknagögnum. Gríðarleg fjölgun í kennaranám Meðal áhersluverkefna á mál- efnasviði háskólastigsins eru aðgerð- ir sem miða að fjölgun kennara. Í frumvarpi til fjárlaga ársins 2020 er gert ráð fyrir 220 milljónum kr. til verkefnisins en meðal aðgerða sem að því miða eru námsstyrkir til kenn- aranema á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunn- skólastigi. Stjórnvöld hafa ásamt lyk- ilfólki í menntamálum unnið að því að mæta yfirvofandi kennaraskorti og fyrr á árinu kynntum við tillögur og byrjuðum hrinda þeim í framkvæmd. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa en umsóknum um kenn- aranám hefur stórfjölgað eða um 45% í Háskóla Íslands. Stórbætt kjör námsmanna Í undirbúningi er nýtt og full- fjármagnað stuðningskerfi fyrir námsmenn sem felur í sér gagnsærri og jafnari styrki til námsmanna. Námsaðstoðin sem sjóðurinn mun veita verður áfram í formi lána á hag- stæðum kjörum og til viðbótar verða beinir styrkir vegna framfærslu barna og 30% niðurfelling á hluta af námslánum við lok prófgráðu innan skilgreinds tíma. Kerfið miðar að því að bæta fjárhagsstöðu háskólanema, ekki síst þeirra sem hafa börn á framfæri, og skapa hvata til að nemar klári nám sitt á tilsettum tíma. Á yf- irstandandi haustþingi mun ég mæla fyrir frumvarpi þessa efnis og vil ég þakka námsmönnum sérstaklega fyr- ir virkilega gæfu- og árangursríkt samstarf við smíði þess. Þróttmikið vísindastarf Á næsta ári aukast framlög til vís- indamála sem heyra undir mennta- og menningarmálaráðuneyti veru- lega. Markmið okkar er efla rann- sóknir, vísindamenntun og tækniþró- un í landinu og gera íslenskt vísindasamfélag enn betur í stakk bú- ið til þess að taka þátt í alþjóðlegu vísindasamstarfi. Vel fjármagnaðir samkeppnissjóðir í rannsóknum styrkja framúrskarandi vísinda- og nýsköpunarstarf á öllum sviðum. Sá árangur sem íslenskt vísindafólk hef- ur náð á undanförnum árum er fram- úrskarandi og því er mikilvægt að halda áfram að styðja myndarlega við málaflokkinn. Menning í blóma Á næsta ári munu framlög til menningar-, lista-, íþrótta- og æsku- lýðsmála vaxa í 16,1 milljarð króna. Það er 32% aukning frá árinu 2017 þegar að framlögin námu 12,2 millj- örðum. Meðal áhersluverkefna á sviði menningar og lista eru málefni ís- lenskrar tungu, aðgengi að menningu og listum og mótun nýrrar menning- arstefnu. Til marks um áherslur stjórnvalda sem stuðla vilja að bættu læsi og styrkja stöðu íslenskrar tungu hækka framlög í bókasafnssjóð höfunda um 62% árið 2020. Aukinn stuðningur er við starf safna í landinu með hækkuðu framlagi sem nemur 100 milljónum kr. til Safnasjóðs sem úthlutar til verkefna og rekstrar- styrkjum til viðurkenndra safna. Þá hækka framlög til þriggja höfuðsafna þjóðarinnar, Þjóðminjasafns Íslands, Listasafns Íslands og Náttúru- minjasafns Íslands um 15 milljónir kr. Áfram er unnið að tillögum að byggingu nýs þjóðarleikvangs í knattspyrnu í Laugardal og unnið eftir nýrri íþróttastefnu sem var samþykkt nú í ár. Bætt rekstrarumhverfi fjölmiðla Rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla er erfitt. Í fjárlaga- frumvarpinu er eyrnamerkt fjár- magn til stuðnings fjölmiðlum í sam- ræmi við sáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Ég mun leggja það fram á haustþingi en það heimilar opinberan stuðning við einkarekna fjölmiðla vegna öflunar og miðlunar frétta og fréttatengds efnis. Það hefur gengið vonum framar á kjörtímabilinu að efla þá málaflokka sem heyra undir mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið. Vinna við helstu stefnumál hefur gengið vel og aðgerðir á ýmsum sviðum eru þegar farnar að skila árangri. Það er í senn ánægjulegt að finna fyrir þeim mikla meðbyr sem þessir málaflokkar njóta í samfélaginu. Slíkt er hvetjandi fyrir mennta- og menningarmálayfirvöld til að gera enn betur og halda ótrauð áfram á þeirri vegferð að bæta lífs- kjör á Íslandi til langrar framtíðar. Eftir Lilju Alfreðsdóttur » Það hefur gengið vonum framar á kjörtímabilinu að efla þá málaflokka sem heyra undir mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið. Vinna við helstu stefnu- mál hefur gengið vel og aðgerðir á ýmsum svið- um eru þegar farnar að skila árangri. Lilja Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. Framsækið fjárlagafrumvarp 2020 Það reynist ekki vel að breyta trúar- brögðum í pólitík og ekki heldur að breyta pólitík í trúarbrögð. Ein af afleiðingum sýndarstjórnmála sam- tímans er sú að því meiri athygli sem póli- tísk viðfangsefni vekja, þeim mun meiri hætta er á þau séu gerð að trúarbrögðum. Þegar sú er orðin raunin teljast hinir áköfustu jafnan hæst skrifaðir í söfnuðinum og sam- keppnin um að vera betri en aðrir eykst. Það er ýmist gert með því að ganga lengra en félagarnir eða með því að fordæma aðra, t.d. þá sem efast um ofsann. Þannig getur það gerst að þeir sem vilja leysa málin með hliðsjón af vísindum og almennri skynsemi séu fordæmdir sem villutrúarmenn. Þá er ekkert hlustað á skýringar. Þeir sem vilja falla í kramið þurfa m.a. að sýna tryggðina með því að temja sér að nota orðin sem æðstu- klerkarnir telja viðeigandi hverju sinni. Annars eru þeir úti. Sam- anber: „Maðurinn sagði loftslags- breytingar eftir að búið var að gefa út tilskipun um að þetta héti ham- farahlýnun. Hann er augljóslega ekki einn af okkur.“ Þeir sem reyna sitt besta til að komast í söfnuðinn, læra kennisetn- ingarnar og tungutakið, geta þó átt erfitt uppdráttar ef þeir koma ekki úr réttri átt. Sýndarpólitíkin dæmir nefnilega það sem er sagt og gert út frá því hver á í hlut, jafnvel út frá líkamlegum einkennum. Stærsta forgangsmálið Ríkisstjórnin vill gera loftslagsmálin að forgangsverkefni og virðist ætla að leita í smiðju söfnuðarins sem leggur línurnar í þeim efnum, m.a. fínni meðlimanna sem koma reglulega saman á einkaþotunum til að tala um fyrir fólki sem keyrir bíl eða fer stöku sinnum í flugvél til út- landa. Í umræðum um stefnuræðu for- sætisráðherra vöruðu margir við popúlisma og þeim hræðsluáróðri sem einkenni hann um leið og þeir minntu á að heimurinn væri að far- ast. Ég lagði áherslu á mikilvægi um- hverfismálanna eins og ég hef oft gert áður en benti á mikilvægi þess að nálgast þetta stóra viðfangsefni með hjálp vísinda og út frá stað- reyndum. Auk þess benti ég á að það hjálpaði ekki að viðhafa tilhæfu- lausan hræðsluáróður og nefndi eitt dæmi (af mörgum). Í ræðu vísaði ég líka í einkar skyn- samlegar athugasemdir Petteri Taa- las, forstjóra Alþjóðaveðurfræði- stofnunarinnar (WMO), um mikilvægi þess að við nálguðumst loftslagsmál út frá vísindum og skynsemi en ekki hræðslu og öfgum. Viðbrögðin Viðbrögð safnaðarins létu ekki á sér standa. Aðstoðarmaður ráðherra sendi frá sér skilaboð um að þetta rugl þyrfti að stöðva í fæðingu. Fé- lagsskapur sem kallar sig hvorki meira né minna en Náttúruvernd- arsamtök Íslands brást skjótt við og fullyrti snemma næsta dag að ég hefði verið að vísa í félagsskap í Bretlandi sem skipaður væri falsspámönnum og því væri þetta allt tóm vitleysa. Ekki vissi ég af til- vist þess hóps og gat því ekki vísað í hann en hafði látið mér nægja að vísa í gögn Sameinuðu þjóðanna. Dagurinn var svo ekki hálfnaður þegar dreift var nýrri yfirlýsingu frá Finnanum skynsama hjá WMO. Hvernig skyldi það hafa gerst? Langlínusamtal Rétt er að taka fram að eftirfar- andi er bara kenning en ekki stað- reynd byggð á gögnum SÞ: Finninn vinalegi var e.t.v. nýsest- ur með morgunkaffið á skrifstofu sinni í Genf þegar ritarinn skaut inn kollinum og tilkynnti að í símanum væri maður sem segðist vera ís- lenskur starfsmaður Sameinuðu þjóðanna í Brussel. Þessi maður héldi því fram að á Íslandi væri full- yrt að hann, sjálfur framkvæmda- stjóri WMO, teldi enga þörf á að- gerðum í loftslagsmálum. Þetta væri byggt á blaðaviðtölum við hann. Hvort sem skilaboðin bárust með þessum hætti eða ekki lét Finninn yfirvegaði hafa sig í að verja hluta dagsins í að skrifa langa yfirlýsingu um að hann hefði vissulega áhyggjur af loftslagsmálum. Þótt ekki verði fullyrt hver fékk framkvæmdastjórann til að skrifa yfirlýsinguna er ljóst að embætt- ismaðurinn og aktívistinn í Brussel tók að sér að skila henni til íslenskra fjölmiðla. Maður sem hafði enga að- komu að málinu (hvað sem líður tengslum við umhverfispopúlista á Íslandi). Finninn staðfasti Ekki er vitað til þess að nokkur maður hafi haldið því fram að fram- kvæmdastjóri WMO hafi afneitað loftslagsbreytingum. Það var því illa gert að raska ró hans með slíkum fullyrðingum. Best var þó að yfirlýs- ing Finnans skynsama fól fyrst og fremst í sér ítrekun á fyrri afstöðu. Hann útlistaði að loftslagsbreyt- ingar væru vissulega áhyggjuefni en mikilvægt væri að nálgast vandann á grundvelli vísinda og skynsemi en ekki með hræðsluáróðri. Ég var því ekki síður ánægður með nýju yfir- lýsinguna en viðtalið. Túlkunin Túlkun sumra fjölmiðla á Íslandi var þó allsérkennileg og jafnvel vill- andi, samanber fyrirsögnina „Stjóri veðurstofunar sem Sigmundur vitn- aði í segir orð sín afbökuð“. Erfitt var að skilja þetta öðruvísi en svo að „veðurstofustjórinn“ teldi mig hafa afbakað orð sín. Hann hafði ekki sagt neitt slíkt. Aðeins ítrekað það sem ég hafði hrósað honum fyrir. Ríkisútvarpið lét ekki sitt eftir liggja. Í Kastljósi var málinu fylgt eftir með hreint dæmalausu viðtali við stjórnmálafræðing. Þar leitaðist þingfréttaritari ríkisins til margra ára við að fylgja eftir hlutleysis- stefnu stofnunarinnar með því að krefja viðmælandann svara um hvort það væri ekki alveg á hreinu að hann teldi Miðflokkinn algjörlega glataðan. Framgangan kallar á umræðu á öðrum vettvangi en aftur að um- hverfismálunum. Við þurfum skynsamlegri aðgerðir Ríkisstjórnin boðar aðgerðir í loftslagsmálum sem ekki eru allar til þess fallnar að leysa vandann. Enn á að refsa almenningi fyrir það eitt að vera til með alls konar nýjum gjöld- um. Ofan á ný eldsneytisgjöld bæt- ast ný gjöld fyrir að fara um göt- urnar sem skattgreiðendur voru þegar búnir að borga. Afraksturinn á að fara í óendanlega dýra borgar- línu sem mun hafa þann „viðbót- arkost“ að þrengja að umferðinni. Urðunarskattur verður svo notaður til að refsa fólki fyrir að kaupa hluti og draga þannig úr neyslu. Á sama tíma reiða stjórnvöld sig þó á aukna neyslu til að láta fjárlögin ganga upp. Getum við ekki sameinast um að taka á umhverfismálum af skyn- semi? Ræktað landið, stutt vel við ís- lenska matvælaframleiðslu, eflt rannsóknarstarf, lyft þróunarverk- efnum sem þegar hafa skilað ótrú- legum árangri, en mæta endalausum hindrunum, og framleitt orku úr sorpi í umhverfisvænni hátækni- sorpbrennslu? Þannig mætti lengi telja. Umhverfismálin eru of mikil- vægur málaflokkur til að þeim sé fórnað á altari sýndarstjórnmál- anna. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson »Ríkisstjórnin boðar aðgerðir í loftslags- málum sem ekki eru allar til þess fallnar að leysa vandann. Enn á að refsa almenningi fyrir það eitt að vera til með alls konar nýjum gjöldum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins. Eftirlátum ekki popúlistum umhverfismálin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.