Morgunblaðið - 14.09.2019, Page 36
36 MESSURá morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 þar
sem fermingarbörn taka þátt. Vígslubiskup
Skálholtsstiftis Kristján Björnsson. Sr. Þór
Hauksson, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir og
Ingunn Björk Jónsdóttir djákni þjóna í athöfn-
inni. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn
Krisztinu Kalló Szklenár.
Á eftir er foreldrafundur fyrir foreldra ferming-
arbarna þar sem rætt verður um ferming-
arstarf vetrarins.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11 í
umsjá Kristnýjar Rósar Gústafsdóttur, djákna
Ássafnaðar, og séra Hjalta Jóns Sverrissonar,
prests Laugarnessafnaðar. Brúður, bænir,
söngur, sögur.
BESSASTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Upphaf fermingarstarfsins; fermingarbörn
vorsins 2020 og foreldrar þeirra sérstaklega
boðin velkomin. Álftaneskórinn syngur undir
stjórn Ástvaldar organista. Sr. Hans Guðberg
þjónar fyrir altari og Margrét djákni flytur hug-
leiðingu á degi kærleiksþjónustunnar í kirkj-
unni.
Súpa í boði Lionsklúbbsins Seylu að athöfn
lokinni í Brekkuskógum 1.
Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Um-
sjón Sigrún Ósk og Þórarinn.
BORGARNESKIRKJA | Kvöldmessa sunnu-
dag kl. 20. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason þjón-
ar fyrir altari, og kirkjukór Borgarneskirkju leiðir
sálmasöng undir stjórn Steinunnar Árnadóttur.
Fermingarbörn eru hvött til þess að mæta
ásamt forráðamönnum. Heiðrún Helga mun
fara yfir fermingarstarf vetrarins, og því er því
mikilvægt að sem flestir úr hópnum sjái sér
fært at mæta.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl.
11. Síðan fara börnin niður með Steinunni
Leifsdóttur. Í messunni þjónar Sighvatur Karls-
son héraðsprestur. Kór Breiðholtskirkju syng-
ur. Léttur hádegisverður eftir messu. Ensk
bænastund kl. 14. Prestur er Toshiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Boð-
ið er upp á hressingu eftir stundina. Í barna-
messum þjóna Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jón-
as Þórir og sr. Pálmi. Almennar messur kl. 14.
Tónlist, bænir, ritningarlestur og hugleiðing.
Þar þjóna messuþjónar, Kór Bústaðakirkju,
Jónas Þórir og sr. Pálmi. Boðið er upp á hress-
ingu eftir stundina.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er Gunnar Sigurjónsson. Vinir Digraneskirkju
leiða söng. Veitingar í safnaðarsal að messu
lokinni. Fermingarfræðsla fyrir verðandi
fermingarbörn að messu lokinni.
DÓMKIRKJA KRISTS konungs, Landa-
koti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl.
10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á
ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl.
8, lau. kl. 16 er vigilmessa á spænsku og kl.
18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Presta- og djáknavígsla kl.
11. Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir,
vígir. Séra Sveinn Valgeirsson þjónar. Dómkór-
inn og organisti er Örn Magnússon. Sunnu-
dagaskóli á kirkjuloftinu. Bílastæði við Alþingi,
gegnt Þórshamri.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kór kirkjunnar
syngur. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir.
Sunnudagaskólinn á sama tíma. Kaffisopi eft-
ir stundina. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jóhanns-
son, leiðir stundina. Fermingarbörn taka þátt.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við
Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunnari Gunn-
arssyni organista. Barnakór Fríkirkjunnar syng-
ur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Við
hvetjum fjölskyldur fermingarbarna til að
mæta og vera með börnum sínum í guðsþjón-
ustunni.
GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli
kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Petru Bjark-
ar Pálsdóttur organista. Umsjón með sunnu-
dagaskóla: Sunna Kristrún djákni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra
Guðrún Karls Helgudóttir og Arna Ýrr Sigurð-
ardóttir þjóna. Organisti er Hilmar Örn Agn-
arsson og félagar úr Kór Grafarvogskirkju og
Vox Populi leiða söng. Fermingarbörn og for-
eldrar/forráðafólk fermingarbarna úr Keldu-
skóla og Rimaskóla eru sérstaklega boðin vel-
komin.
Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hefur Þóra
Björg Sigurðardóttir og undirleikari er Stefán
Birkisson. Hlustað verður á sögu, sungnir
söngvar og í lokin fá börnin límmiða og bók.
GRAFARVOGUR - kirkjuselið í Spöng | Sel-
messa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir pré-
dikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agn-
arsson og félagar úr Kór Grafarvogskirkju og
Vox Populi leiða söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messa fellur niður vegna
djáknavígslu í Dómkirkjunni kl. 11. Daníel
Ágúst Gautason, æskulýðsfulltrúi í Grensás-
og Bústaðasöfnuðum, verður vígður til djákna-
þjónustu. Sunnudagaskólinn er í Bústaða-
kirkju kl. 11.
Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12, opið hús til kl.
14. Núvitund kl. 18.15 og opinn kynningar-
fundur 12-spora starfs kl. 19.15 á fimmtudag.
Ferð eldri borgara á miðvikudag kl. 12.30.
Skráning í síma 528 4410 í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs-
þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur er Leifur
Ragnar Jónsson, organisti er Hrönn Helgadótt-
ir og kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudaga-
skólinn verður á sínum stað og Pétur Ragnhild-
arson mun kenna Húba, húba dansinn. Kirkju-
vörður Lovísa Guðmundsdóttir, kaffisopi í boði
eftir messuna.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjöl-
skyldustund. Kirkjubrall (Messy Church) kl.
11. Börn og fullorðnir sameinast í sköpun,
samveru, borðhaldi og helgihaldi. Vinsamleg-
ast mætið í fötum sem má bralla og föndra í.
Sr. Stefán Már Gunnlaugsson og Bylgja Dís
Gunnarsdóttir leiða stundina. Guðmundur Sig-
urðsson er organisti. Eftir samveruna verður
boðið upp á pítsur og djús.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna að-
stoðar. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón
barnastarfs hafa Ragnheiður Bjarnadóttir og
Rósa Árnadóttir. Bænastund mánud. kl.
12.15. Fyrirbænaguðsþjónusta þriðjud. kl.
10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrð-
arstund fimmtud. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Kordía, kór
Háteigskirkju, leiðir messusöng. Organisti er
Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Prestur er Eiríkur
Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11.
Sr. Sunna Dóra Möller og Lára Bryndís org-
anisti sjá um stundina. Sunnudagaskólinn er á
sama tíma í safnaðarheimilinu.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaupmannahöfn |
Sunnudagaskóli í húsi Jóns Sigurðssonar
sunnudaginn 15. sept. kl. 11.15 og kynning-
arfundur fermingarfræðslu kl. 12. Guðsþjón-
usta kl. 14 í Skt. Pauls-kirkju. Kammerkórinn
Staka syngur. Organisti er Sólveig Anna Ara-
dóttir. Kirkjukaffi í Jónshúsi. Sr. Ágúst Ein-
arsson.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11 er markar upphaf vetrarstarfs sunnudaga-
skólans.
Sunnudagaskólaleiðtogarnir Helga, Ingi Þór og
Jóhanna María leiða stundina ásamt sr. Erlu
og Arnóri organista. Að lokinni messu er boðið
uppá súpu og brauð í Kirkjulundi. Kvöldmessa
kl. 20 þar sem afhentir verða nýendurgerðir
ljósahjálmar. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir
stjórn Arnórs organista. Sr. Fritz Már og sr. Erla
þjóna.
KIRKJA heyrnarlausra | Messa í Grens-
áskirkju kl. 14. Prestur er Kristín Pálsdóttir.
Táknmálskórinn syngur undir stjórn Eyrúnar
Ólafsdóttur. Kaffi eftir messuna.
KÓPAVOGSKIRKJA | Útvarpsguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari
og Ásta Ágústsdóttir djákni prédikar á degi
kærleiksþjónustunnar. Félagar úr kór Kópa-
vogskirkju syngja undir stjórn Arngerðar Maríu
Árnadóttur organista. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl.
11. Krúttakórinn og sunnudagaskólabörnin
eru sérstaklega boðin í samveruna með Söru
Gríms, Auði Guðjohnsen og Aldísi Rut Gísla-
dóttur, sem leiðir stundina. Léttur hádeg-
ismatur í lok samveru.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Karla-
kórinn Esja og Kári Allansson stjórnandi leiða
tónlistarflutning. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar
fyrir altari og prédikar.
Sunnudagaskóli á meðan. Kaffi og samvera á
eftir. Betri stofan, Hátúni 12 kl. 13. Helgistund
með sr. Davíð Þór og Elísabetu organista.
17.9. Kyrrðarbæn kl. 20. Kristin íhugun. Sr.
Hjalti Jón Sverrisson leiðir stundina. Kirkjan
opnar kl. 19.45.
19.9. Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Hádeg-
isverður og samvera eldri borgara strax á eftir.
Fyrsta samvera vetrarins.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju
syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar.
NESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Guðni Þór Ólafsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Steinunni A. Björnsdóttur.
Félagar úr Kór Neskirkju syngja og leiða söng
undir stjórn Steingríms Þórhallssonar org-
anista. Sunnudagaskóli er í umsjá Rúnars
Reynissonar og Ara Agnarssonar. Hressing að
loknum stundunum á torginu í safnaðarheim-
ilinu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Baldur Rafn
Sigurðsson þjónar og kirkjukórinn leiðir söng
undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organ-
ista. Meðhjálpari er Pétur Rúðrik Guðmunds-
son. Sunnudagaskólinn hefst kl. 12 þar sem
leiðtogar kynna starfið í vetur og í framhaldi
mun Leikhópurinn Lotta mæta.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar sam-
komur kl. 17 alla sunnudaga í Kristniboðs-
salnum Háaleitisbraut 58-60. Ræðumaður:
Ron Harris frá Bandaríkjunum. Barnastarf.
Túlkað á ensku/íslensku.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta
og sunnudagaskóli kl. 11. Eva Björk Valdi-
marsdóttir héraðsprestur þjónar. Organisti er
Friðrik Vignir Stefánsson. Sveinn Bjarki og leið-
togar sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Kaffiveitingar eftir athöfn í
safnaðarheimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Fermingarbörn eru boðuð
ásamt fjölskyldum sínum. Kór Seyðisfjarð-
arkirkju leiðir söng og organisti er Rusa Petri-
ashvili.
Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og með-
hjálpari Jóhann Grétar Einarsson. Kaffi og
meðlæti í safnaðarheimili eftir stundina.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Guðsþjónusta
sunnudaginn kl. 11. Séra Skírnir Garðarsson
annast prestsþjónustuna og Jón Bjarnason
organisti leikur á orgelið. Almennur safn-
aðarsöngur.
SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta 15. sept-
ember kl. 14. Séra Skírnir Garðarsson þjónar
fyrir altari og prédikar.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Kvöldmessa kl. 20. Al-
mennur söngur við gítarundirleik.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt messuþjónum. Félagar í kór Vídal-
ínskirkju syngja og organisti er Douglas A.
Brotchie. Sunnudagaskóli á sama tíma sem
Matthildur Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi stýrir.
Messukaffi í safnaðarheimili. Sjá gardasokn-
.is
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Popp-
messa kl. 11. Tónlistarkonan Madala sér um
söng og tónlist.
ORÐ DAGSINS:
Miskunnsami Samverjinn
(Lúk. 10)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Borgarfjörður Húsafellskirkja.
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Vínlandsleið 16
Grafarholti
urdarapotek.is
Sími 577 1770
Opið virka daga kl. 09.00-18.30
og laugardaga kl. 12.00-16.00
VELKOMIN Í
URÐARAPÓTEK