Morgunblaðið - 14.09.2019, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
60 ára Már er Vest-
mannaeyingur. Hann
var sjómaður, lengi á
Danska-Pétri og síðar
var hann launafulltrúi
hjá Vinnslustöðinni.
Hann er stólmeistari
frímúrarastúkunnar
Hlés í Vestmannaeyjum.
Maki: Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir,
f. 1961, sjúkraliði.
Börn: Friðþjófur Sturla, f. 1979, Víkingur,
f. 1983, og Soffía Marý, f. 1987. Barna-
börnin eru orðin 6.
Foreldrar: Friðþjófur Sturla Másson, f.
1927, sjómaður og verkstjóri, bús. á
Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, og
Jórunn Einarsdóttir, f. 1928, d. 2012,
húsmóðir og verkakona.
Már
Friðþjófsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sjálfsagt er að sýna skoðunum
annarra virðingu, þótt þær fari ekki sam-
an við okkar eigið álit. Nú er ekki rétti
tíminn til þess að stökkva en ekki
hrökkva.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú fylgir þínum skoðunum fast eftir
í dag. Hikaðu ekki við að segja makanum
hvernig þér líður því betur sjá augu en
auga.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert dularfullur og spennandi
í augum félaga þinna. Farðu varlega hvort
sem þú ert á gangi eða í umferðinni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gefðu þig að þeim sem eru
sterkir á sviði sem þú ert veikur á og
deildu niður verkefnum. Þú ert búin/n að
fá nóg af fagurgala einhvers.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú vekur aðdáun fólks og ljómar af
sjálfsöryggi. Mundu að það er aldrei of
seint að vinna nýja sigra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Reyndu að halda ró þinni hvað
sem tautar og raular. Skoðaðu árang-
urinn í fortíðinni áður en þú tekur
ákvarðanir fyrir framtíðina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert með mikilvæga hluti á prjón-
unum. Treystu innsæi þínu og láttu það
eftir þér að segja það sem þig langar til
að segja við fólk.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sjálfsöryggi þitt er nokkuð
sveiflukennt. Reyndu að hrista upp í hlut-
unum á vinnustaðnum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú finnur löngun hjá þér til
að gera eitthvað nýtt og gætir fengið
tækifæri til þess fyrr en síðar. Flas er
ekki til fagnaðar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú munt njóta þess að vera
ein/n með sjálfum/sjálfri þér í dag.
Stundum veltirðu fyrir þér hvort þú búir í
réttu landi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér er alveg óhætt að láta
eitthvað smávegis eftir þér. Nýttu þér til-
boð sem þú hefur beðið eftir. Það gengur
allt upp sem þú stefnir að.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Eitthvað verður til þess að trufla
þitt daglega mynstur. Notaðu tímann til
þess að versla, sinna viðskiptum og
skreppa í stuttar gönguferðir.
sögu svæðisins og gamla Breiðholts-
bæjarins. Hún hafði forgöngu um
stofnun Kvenfélags Breiðholts árið
1970 og var formaður félagsins í mörg
ár. Hún átti einnig sæti í byggingar-
nefnd Breiðholtskirkju. Birna er líka
stolt af vestfirskum uppruna sínum og
hefur sterkar taugar til Ísafjarðar.
Birna var félagi í Soroptimistaklúbbi
Bakka og Selja á árunum 1980-1994 og
var formaður klúbbsins 1984-1986.
Áhugamál Birnu hafa aðallega
tengst starfi hennar sem leiðsögu-
útvarpsþætti umferðarráðs. Hún
vann einnig texta fyrir ferðabækl-
inga og ferðabækur.
Birna tók saman mikið magn
kennsluefnis fyrir leiðsögunema og
gaf út handbók leiðsögumanna. Hún
var sæmd riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu árið 2000 fyrir
fræðslustörf í þágu ferðamála.
Þau hjónin voru meðal frumbyggja
í Breiðholtshverfi og létu sig málefni
hverfisins varða. Birna hefur verið
dugleg að kynna sér og halda á lofti
B
irna Guðrún Bjarnleifs-
dóttir fæddist á Ísafirði
14. september 1934 og
bjó á Mjallargötu 6
fyrstu ár ævi sinnar. Hún
lauk gagnfræðaskólaprófi á Ísafirði en
flutti til Reykjavíkur til að hefja nám
við Verzlunarskóla Íslands þaðan sem
hún lauk verslunarprófi vorið 1953.
Birna starfaði við skrifstofustörf hjá
H. Ben. hf. á árunum 1953-1958. Með-
fram heimilisstörfum næstu árin tók
hún að sér ýmis verkefni, svo sem þýð-
ingar, forfallakennslu og kennslu í vél-
ritun. Birna fékk snemma áhuga á leið-
sögustörfum. Þegar hún vann hjá H.
Ben. hf., ekki langt frá höfninni, sá hún
farþega skemmtiferðaskipanna koma í
land og hugsaði með sér að það hlyti að
vera skemmtilegt starf að vera leið-
sögumaður. Hún lauk leiðsögu-
námskeiðum Ferðaskrifstofu ríkisins á
árunum 1965-1970 og hlaut réttindi
ferðamálaráðs sem leiðsögumaður
ferðafólks árið 1983.
Birna hóf að starfa sem leið-
sögumaður árið 1969 og vann við
leiðsögn erlendra ferðamanna í
dagsferðum til ársins 1982. Hún var
forstöðumaður leiðsöguskóla ferða-
málaráðs frá árinu 1976 en tók svo
að sér að byggja upp og hafa umsjón
með ferðamálanámskeiðum MK,
sem síðar varð Leiðsöguskólinn, frá
árinu 1987.
Birna vann lengi að hagsmuna-
málum leiðsögumanna, hún var for-
maður Félags leiðsögumanna á ár-
unum 1973-1979 og ritstjóri og í
ritnefnd félagsblaðs leiðsögumanna
á árunum 1974-1983. Jafnframt sótti
hún fjölda námskeiða á vegum fé-
lagsins og tók þátt í ráðstefnum víða
um heim á vegum norrænna og al-
þjóðlegra samtaka leiðsögumanna.
Birna hefur alla tíð verið ötull tals-
maður þess að leiðsögumenn fái lög-
gildingu á starfsréttindum sínum.
Hún var fulltrúi leiðsögumanna í
ferðamálaráði 1976-1993, átti sæti í
umhverfisnefnd ráðsins 1984-1993,
var fulltrúi í náttúruverndarráði
1984-1987 og varaformaður þar
1990-1993.
Á árunum 1979 til 1983 hafði
Birna umsjón með útvarpsþáttum
um ferðamál á RÚV og sá einnig um
maður og hefur hún notið þess að
safna og miðla fróðleik um land sitt og
þjóð.
Fjölskylda
Eiginmaður Birnu er Árni H.
Bjarnason, f. 19.3. 1933, fyrrverandi
bankaútibússtjóri. Foreldrar hans
voru hjónin Bjarni Þórðarson, f. 5.10.
1900, d. 1.10. 1974, bifreiðastjóri í
Hafnarfirði, og Valería Svanhvít Árna-
dóttir, f. 12.6. 1905, d. 4.5. 1968, hús-
freyja í Hafnarfirði.
Birna G. Bjarnleifsdóttir, leiðsögumaður og fv. forstöðumaður Leiðsöguskólans – 85 ára
Fjölskyldan árið 2007 Birna og Árni ásamt dætrum, tengdasonum og barnabörnum. Aftari röð frá vinstri: Þorkell,
Anna, Erla, Birna, Guðrún Hrönn, Jón og Jóhann Árni. Fremri röð frá vinstri: Bjarnleifur, Birna og Árni.
Frumkvöðull í sínu fagi
Með langömmubörnunum 2019 Árni Gunnar, Birna og Emilía Kristbjörg. Á Ísafirði Birna við Mjallargötu 6.
Guðrún Bjarnadóttir á 90 ára afmæli í
dag. Af því tilefni verður Guðrún með
opið hús í dag og tekur á móti gestum
á milli kl. 14 og 17 í Árskógum 8, 109
Rvík.
Árnað heilla
90 ára
40 ára Víðir er Akur-
eyringur og er húsa-
smíðanemi við Fjöl-
brautaskóla Norður-
lands vestra á
Sauðárkróki. Hann
vinnur hjá SS Byggir.
Víðir er heitur stuðn-
ingsmaður KA.
Maki: Daoprakai Saosim, f. 1976 í Taí-
landi, fiskverkakona hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa.
Börn: Andrés Athit, f. 1998, Guð-
mundur Tawan, f. 2002, og Lárus Vinit,
f. 2007.
Foreldrar: Guðmundur Lárus Helgason,
f. 1953, vinnur hjá VÍS, og Brynhildur
Júlíusdóttir, f. 1957, vinnur hjá Lög-
heimtunni. Þau eru búsett á Akueyri.
Víðir
Guðmundsson
Til hamingju með daginn