Morgunblaðið - 14.09.2019, Side 45
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019
„HRINGDU BJÖLLUNNI AFTUR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... kærleiksríkur
umhyggjusamur
einstaklingur.
EKKERT ENDIST
AÐ EILÍFU
MEGRUNAR-
KATTAMATUR
ÞAÐ VIRÐIST BARA
GERA ÞAÐ
BRA
BRA
ÖND? ÉG BAR Á BORÐ
LASAGNA!
„MANSTU HVAÐ ÞÚ VARST AÐ GERA
ANDARTAKI ÁÐUR EN HÚN FRAUS?”
HELGA! KOMDU OG
TAKTU ÖNDINA AF
DISKNUM MÍNUM!
Börn Birnu og Árna eru: 1) Erla
Svanhvít Árnadóttir, f. 11.4. 1959,
hæstaréttarlögmaður í Reykjavík.
Maki: Jón Finnbjörnsson landsrétt-
ardómari. Barnabörn: Guðrún Hrönn
Jónsdóttir, f. 1986, eiginmaður: Ragn-
ar Steinn Ólafsson, og Birna S. Jóns-
dóttir, f. 1990, sambýlismaður: Einar
Ingi Davíðsson. Barnabarnabörn: Em-
ilía Kristbjörg Ragnarsdóttir, f. 2011,
og Árni Gunnar Ragnarsson, f. 2014; 2)
Anna Sólveig Árnadóttir, f. 10.8. 1967,
bankastarfsmaður í Hafnarfirði. Maki:
Þorkell Jóhannsson flugstjóri. Barna-
börn: Jóhann Árni Þorkelsson, f. 1993,
sambýliskona: Anna Gunnarsdóttir, og
Bjarnleifur Þór Þorkelsson, f. 2000.
Foreldrar Birnu voru hjónin Anna
Sólveig Veturliðadóttir, f. 16.11. 1911,
d. 8.12. 1980, húsfreyja á Ísafirði og í
Reykjavík, og Bjarnleifur Hjálmars-
son, f. 31.12. 1907, d. 3.1. 1982, vélstjóri
á Ísafirði og starfsmaður véla-
miðstöðvar Reykjavíkurborgar.
Úr frændgarði Birnu G. Bjarnleifsdóttur
Birna G.
Bjarnleifsdóttir
Anna Sólveig Veturliðadóttir
húsfreyja á Ísafi rði og í Reykjavík
Veturliði Bjarnason
sjómaður á Suðureyri
Helga Jónína Jónsdóttir
húsfreyja í Kvíanesi
Bjarni Helgi Ólafsson
bóndi í Kvíanesi í Súgandafi rði
Elísabet Hjálmarsdóttir
húsfreyja í Súðavík og
í Rvík
Elísa Jónsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Huld Jónsdóttir
fv. starfsmaður
Háskólabókasafns
Þorsteinn Hjálmarsson
kennari og póst- og
símstöðvarstjóri á Hofsósi
Þorsteinn
Þorsteinsson
fv. bæjarstjóri,
bankastj. og frkvstj.
Veturliði Gunnarsson listmálari
og myndlistarkennari
Gunnar Kr. Gunnarsson
skákmaður og fv. útibússtjóri
Benedikt Gunnarsson
listmálari og
myndlistarkennari
Valgerður
Benediktsdóttir
lögfr. hjá Forlaginu
Steinþór Marinó
Gunnarsson
málarameistari
og listmálari
Sigrún Steinþórsdóttir
textíllistakona
Jón Jóhannes Veturliðason matsveinn í Rvík
Helga Jóhannesdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Helgi Ágústsson fv.
sendiherra
Anna
Torfadóttir
mynd listar-
maður
Ólafur Torfason
rithöfundur
Jóhanna Gunnarsdóttir
dagmóðir o.fl . í Kópavogi
Elín Oddgeirsdóttir
húsfreyja á Hesti í Súðavíkurhr.
Rósinkrans Rósinkransson
bóndi á Hesti og í Súðavík
María Salóme Rósinkransdóttir
húsfreyja í Álftafi rði
Hjálmar Hjálmarsson
bóndi og sjómaður í Álftafi rði
Bjargey Jóhannesdóttir
vinnukona í Álftafi rði
Hjálmar Þorsteinsson
vinnumaður í Aðalvík og Álftafi rði
Bjarnleifur Hjálmarsson
vélstjóri á Ísafi rði og í Reykjavík
Valgerður Þórarinsdóttir
húsfreyja í Meirihlíð
Benedikt Gabríel Jónsson
bátsformaður í Meirihlíð í
Bolungarvík
Sigrún Benediktsdóttir
húsfreyja á Suðureyri,
Akranesi og í Rvík
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Gjarnan haft um góða siði.
Getur verið útlit manns.
Eitthvað gert með ýmsu sniði.
Einnig bragarform til sanns.
Helgi R. Einarsson á þessa
lausn:
Ef að ráða gátu get
glaður verð og sáttur.
Þess vegna nú þessa met.
Þetta’ er sjálfsagt háttur.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Góða hætti heiðra ætti.
Háttur varðar útlit manns.
Eitthvað gert með ýmsum hætti.
Iðkum bragarhátt til sanns.
Þá er limra:
Natan Mortensen múrari
er maður í háttum klúrari
en nafni hans
Natan Rósenkrans
Nikulásson frímúrari.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Sumarið líður senn á braut,
sólríkt fram úr máta,
löngum er þó líkn í þraut
laugardagsins gáta:
Heiti fugls að hálfu er.
Harla biturt vopn með sanni.
Steðjanef er hulið hér.
Hermannlegt er nafn á manni.
Svar verður að berast eigi síðar
en á mánudagsmorgun þar sem ég
er á förum vestur um haf og er
klaufi á tölvur.
Þetta er skemmtileg lausavísa
eftir Magnús Halldórsson á Boðnar-
miði og heitir hún „Haustdagur hjá
Eyvindarveri á Sprengisandsleið“:
Hulin sól í vestri var,
víða blásnar auðnirnar,
fýkur víða fífuskar,
flúnar burtu lóurnar.
Hofsjökul við himinn bar,
höfuðprýði afréttar,
hraglandans í hreti þar,
hugur vék til Eyvindar.
Hallmundur Kristinsson yrkir af
því tilefni að stjörnufræðingar hafa
fundið plánetu þar sem líf gæti hafa
kviknað:
Margt er slæmt í heimi hér.
Hulin stefnan er.
Kannski næsti kostur sé
K218B
Páll Ólafsson orti í kuldatíð:
Í fjósinu hefur flórinn lagt,
þótt fólkið í hann mígi.
Þá hef ég aldrei satt orð sagt
sé nú þetta lygi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Haltu háttum þínum
FB Selfoss
Austurvegur 64a
5709840
FB Hella
Suðurlandsvegur 4
5709870
FB Hvolsvöllur
Ormsvöllur 2
5709850
Fóðurblandan hf. - www.fodur.is - 5709800
ert þú að fara
að smala ?
VIÐ KLÆÐUM ÞIG UPP !
STÍGVÉL OG
GÚMMÍTÚTTUR
REGNFÖT
& ullarföt
sokkar og
vettlingar