Morgunblaðið - 14.09.2019, Side 52

Morgunblaðið - 14.09.2019, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2019 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Markmið okkar er að búa þannig um hnútana að Harpa geti sem tón- listar- og ráðstefnuhús hámarkað alla möguleika sína samfélaginu til góða,“ segir Svanhildur Konráðs- dóttir, forstjóri Hörpu. „Húsið og allir sem það nýta eru daglega að skapa hér verðmæti sem eru allt í senn samfélagsleg, efnahagsleg og menningarleg. Markmiðið er Harpa hafi þær forsendur í rekstri og starf- semi að hægt sé að hámarka þessi verðmæti. Þá á ég ekki síst við að hægt sé að bjóða upp á aðstöðu fyrir eins fjölbreytta tónlist og kostur er.“ Maxímús sýnilegri í Hörpu Sú nýbreytni var að sögn Svan- hildar tekin upp þetta starfsárið að bjóða upp á fjölskyldudagskrá allar helgar í vetur og er hluti viðburð- anna undir merkjum Hörpu, auk þess sem um helmingur þeirra er ókeypis. „Um er að ræða sambland af samstarfsverkefnum og svo við- burðum sem aðrir standa al- gjörlega fyrir. Það er von mín að þessi fjölskylduvæna dagskrá verði upptakturinn að enn fjölbreyttari og fyllri dagskrá fyrir börn og fjöl- skyldur hér í Hörpu,“ segir Svan- hildur og bendir á að í boði verði allt frá umfangsmiklum Sinfón- íutónleikum fyrir börn yfir í Vísindasmiðjur frá Háskóla Íslands þar sem þátttakendur geta gert til- raunir með hljóð, ljós og ýmislegt sem tengist Hörpu. „Viðburðirnir verða ýmist á laugardögum eða sunnudögum og er hægt að finna allt um þá á heima- síðu Hörpu. Við munum bjóða upp á skoðunarferðir og sögustundir með tónlistarmúsinni Maxímús Músíkús og er gaman að hann verði sýnilegri hér í húsinu enda dásamleg mús. Síðan verður boðið upp á leiklistar- kennslu frá Leynileikhúsinu fyrir krakka á aldrinum 7-11 ára, tón- leikaröðina Reikistjörnur sem unn- in er í samstarfi við Klapp og Rás 2 og hefur göngu sína í Kaldalóni og ýmsa aðventutónleika auk þess sem Skoppa og Skrítla leggja undir sig Eldborg undir lok nóvember til að fagna 15 ára afmæli sínu, svo fátt eitt sé nefnt fyrir áramót,“ segir Svanhildur og bætir við: „Meðal þess sem í boði verður eftir áramót er Stórsveitar- maraþon, Músíktilraunir í Norður- ljósum, barnastund Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, uppfærsla Bjarna Hauks Þórssonar á Karíus og Baktus eftir Thorbjørn Egner í Kaldalóni og tónsköpunarverðlaun- in Upptakturinn ásamt Barna- menningarhátíð í Reykjavík og há- tíðinni Big Bang,“ segir Svanhildur og tekur fram að þar sé um að ræða evrópska tónlistarhátíð sem sting- ur sér niður í ýmsum borgum. Tryggja gæði og fjölbreytni Svanhildur bendir á að líkt og síð- ustu ár muni Harpa sjálf standa fyr- ir nokkrum völdum viðburðum, en 90% þeirra viðburða sem haldnir eru í Hörpu eru framleiddir af öðrum. „Rekstrarfélagið Hörpustrengir ehf., sem stofnað var í desember 2013, hefur þann tilgang að standa fyrir fáum völdum viðburðum sem marka spor í íslenskt tónlistar- og menningarlíf og myndu annars lík- lega ekki verða að veruleika,“ segir Svanhildur og bendir á að viðburð- irnir séu oft unnir með völdum sam- starfsaðilum. „Félagið gætir þess að standa ekki í beinni samkeppni við viðburðahaldara og fasta notendur hússins, en Harpa er heimili Sinfón- íuhljómsveitar Íslands, sem er stærsti einstaki tónleikahaldarinn í húsinu, með frábæra dagskrá í vet- ur, Íslensku óperunnar og Stór- sveitar Reykjavíkur,“ segir Svan- hildur. Meðal fastra tónleikaraða sem Harpa kemur að eru svo Jazz- klúbburinn Múlinn, Sígildir sunnu- dagar og Velkomin heim auk þess sem Reykjavík Classics er í boði yfir sumartímann. Svanhildur bendir á að víða er- lendis, hjá þeim tónlistarhúsum á Norðurlöndunum og í Evrópu sem Harpa vilji bera sig saman við, fram- leiði tónlistarhúsin sjálf mun fleiri viðburði en þekkist hérlendis. „Hjá til dæmis Elbphilharmonie í Ham- borg, sem ég heimsótti nýlega, fram- leiðir húsið sjálft um 30% viðburða, um 30% eru framleidd af NDR Elb- philharmonie-hljómsveitinni og um 30% viðburða eru í höndum sjálf- stæðra skipuleggjenda. Flest hús sem vilja standa undir nafni eiga það sammerkt að þau beita einhvers konar ráðum, hvort sem það er eigið viðburðahald, samstarfsverkefni eða dagskrárstefna, til að tryggja bæði gæði og fjölbreytni. Þetta viljum við gera með enn skýrari hætti,“ segir Svanhildur og tekur fram í þessu samhengi að á næstu mánuðum verði kynnt spennandi stefnumótun sem verið hefur í vinnslu síðustu misseri. „Þegar horft er á hvað Harpa hef- ur verið að gera í viðburðahaldi í eig- in nafni samanborið við nánast öll stóru tónlistarhúsin á Norðurlönd- unum og í Evrópu, þá er það mjög lítið. Við erum mjög meðvituð um að það er ekki hlutverk hússins að stíga inn á svið sem aðrir geta sinnt, hvort heldur það er markaðslega eða list- rænt. Í eigendastefnu hússins segir að Harpa eigi að stuðla að blómlegu tónlistarlífi á Íslandi, sem felur bæði í sér að styðja við íslenska tónlist og vera vettvangur fyrir það besta sem gerist í heiminum. Svo er spurning hvaða leiðir eru færar í ljósi langvar- andi erfiðrar fjárhagsstöðu hússins til þess að uppfylla þetta hlutverk,“ segir Svanhildur, sem hefur síðan hún tók við starfi forstjóra fyrir tveimur árum lagt ríka áherslu á að ná sem bestum tökum á rekstri Hörpu. Ávallt á heimsmælikvarða „Við starfsfólk Hörpu höfum unn- ið hörðum höndum að þessu verkefni og einnig þétt með eigendum húss- ins, þ.e. ríki og borg, að því að finna raunhæfan rekstrargrundvöll til framtíðar. Það styttist í að húsið fagni 10 ára starfsafmæli, sem verð- ur 2021. Á þeim átta árum sem liðin eru frá opnun hússins er fullreynt að það er ekki hægt að reka þetta stóra og dýra hús án stuðnings frá eig- endum sínum. Rekstrarmódelið sem notast hefur verið við hérlendis þekkist hvergi í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við, hvort heldur er á Norðurlöndunum eða í Evrópu. Harpa er t.a.m. að greiða rúmar 300 milljónir króna í fasteignagjöld og það sjá það auðvit- að allir að það er ekki hægt að hafa slíkan hagnað af tónlistar- og ráð- stefnuhúsi að það standi undir slík- um gjöldum. En það kemur fleira til. Harpa er stórt og glæsilegt borgar- torg, listaverk sem við erum öll stolt af að eiga og það tapa allir ef því er ekki haldið vel við. Við viljum að Harpa sé ávallt á heimsmælikvarða. Okkar hlutverk er þannig að stækka möguleikana og búa til ný tækifæri, bæði fyrir Reykjavík og Ísland, íslenska menn- ingu og ferðaþjónustu. Ég er bjart- sýn á að með þessari nýju stefnu- mótun sem við höfum unnið í samstarfi við mjög breiðan hóp not- enda, fólks úr menningar- og at- vinnulífi auk fulltrúa eigenda, náum við skynsamlegri lendingu til fram- tíðar,“ segir Svanhildur og tekur fram að hún leyfi sér að vona að allir séu sammála um að núna sé tími til kominn að leiðrétta og endurskoða rekstrarmódel Hörpu. Bell og ballettinn snúa aftur Að sögn Svanhildar standa fyrr- nefndir Hörpustrengir fyrir tveimur viðburðum þetta haustið. „Annars vegar eru það tónleikar í Eldborg 20. október þar sem hinn óviðjafnanlegi fiðlusnillingur Joshua Bell kemur fram ásamt heimsklassa píanist- anum Alessio Bax með glæsilega efnisskrá,“ segir Svanhildur og tek- ur fram að ánægjulegt sé að fá Bell aftur í Hörpu. „Hann var hér fyrir tveimur árum og lék þá einleik og leiddi kammersveitina Academy of St. Martin in the Fields á ógleyman- legum tónleikum sem fengu einróma lof áheyrenda sem og gagnrýnenda. Hann var svo hrifinn af Eldborg og Hörpu að hann hafði þá þegar orð á því að hann langaði að koma aftur. Ég vona að unnendur gæðatónlistar láti þessa tónleika ekki framhjá sér fara,“ segir Svanhildur og bendir á að Bell hafi á ferli sínum komið fram í öllum helstu tónlistarhúsum heims. „Hinn viðburðurinn er heimsókn St. Pétursborgar-ballettsins sem setur upp Svanavatnið við tónlist Tsjajkovskíjs í nóvember. Sýndar verða þrjár sýningar í Hörpu þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands leik- ur undir og síðan fer sýningin norð- ur í Hof. Þetta er í sjöunda sinn sem St. Pétursborgar-ballettinn kemur hingað til lands. Þetta er orðinn ómissandi upptaktur að aðvent- unni,“ segir Svanhildur og tekur fram að sýningin sé mjög falleg og fjölskylduvæn. Valkyrjan og Víkingur Af öðrum áhugaverðum við- burðum sem væntanlegir eru í Hörpu í vetur nefnir Svanhildur tón- leika Ungsveitar SÍ, Nýdanskrar, Nat og Natalie tónleika Stórsveitar- innar og tónleikauppfærslu á Evítu. „Svo er alltaf sérstaklega gaman þegar Víkingur Heiðar Ólafsson kemur fram í Hörpu. Hann er nýbú- inn að taka upp næstu plötu sína hér hjá okkur og kemur fram á tón- leikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í nóvember áður en þau leggja í tónleikaferð til Þýskalands og Austurríkis. Einn af hápunktum starfsársins verður svo klárlega uppfærslan á Valkyrjunni eftir Wag- ner í maí á næsta ári þar sem Ís- lenska óperan, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listahátíð í Reykjavík sameina krafta sína í margföldu af- mælishaldi. Það er því ótrúlega skemmtilegur og nærandi tími fram undan í Hörpu í haust og vetur. “ Morgunblaðið/Hari Markmiðið að hámarka verðmætin  Svanhildur Konráðsdóttir segir Hörpu og notendur hússins skapa verðmæti sem eru allt í senn samfélagsleg, efnahagsleg og menningarleg  Ný fjölskyldudagskrá Hörpu kynnt til sögunnar Framtíðarsýn „Ég er bjartsýn á að með þessari nýju stefnumótun […] náum við skynsamlegri lendingu til framtíðar,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir. Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVARSEMÞÚERT SAMSTARFSAÐILI Öryggiskerfi 09:41 100%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.