Morgunblaðið - 27.09.2019, Side 4

Morgunblaðið - 27.09.2019, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2019 Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is Erla María Markúsdóttir Höskuldur Daði Magnússon „Eins og gefur að skilja hefur þetta verið erfiður dagur alls staðar í bankanum en ekki síst í höfuðstöðv- unum, þar sem margir starfsmenn voru að kveðja okkur í dag,“ segir Benedikt Gísla- son, bankastjóri Arion banka. Stjórn Arion banka samþykkti á fundi sínum í gærmorgun nýtt skipulag bank- ans. Alls misstu um eitt hundrað manns vinnuna við breytingarn- ar, langflestir í höfuðstöðvum bank- ans eða um 80%, en um 20% í útibú- um hans. Uppsagnirnar tengjast nýju skipulagi bankans sem tók gildi í dag og var samþykkt á fundi stjórn- ar Arion banka í morgun. „Samhliða því erum við að fara yfir skipulag okkar og mönnun. Undirbúningur- inn hefur staðið yfir í þó nokkurn tíma,“ segir Benedikt og vísar í orð sín á kynningarfundi árshlutaupp- gjörs fyrir annan ársfjórðung í ágúst þar sem hann greindi frá því að stefnumótunarvinna stæði yfir. „Við höfum verið að rýna í rekstur okkar ofan í kjölinn. Við erum að teikna upp nýjar áherslur og nýtt skipurit og mannabreytingar eru teknar í samræmi við það,“ bætir hann við. Friðbert Traustason, framkvæmdastjóri starfsmanna fjármálafyrirtækja, gagnrýnir að bankinn hafi ekki talið sig geta upp- lýst um uppsagnirnar því bankinn sé skráður á markað og telur hann að lög um hópuppsagnir hafi verið brotin með uppsögnunum í gær. Benedikt segir að bankinn hafi fylgt lögum og reglum í hvívetna. Þungt hljóð var í starfsfólki Arion í gær þegar uppsagnirnar voru kynntar og fólk var kallað til fundarherbergja þar sem því var sagt upp störfum. Langflestum þeirra sem misstu vinnuna var gert að hætta strax. Ekki verða gerðar neinar grund- vallarbreytingar á starfsemi í útibú- um Arion banka í kjölfar skipulags- breytinganna. Engu þeirra verður lokað, en mögulega verða einhverj- ar mönnunarbreytingar, að sögn Haraldar Guðna Eiðssonar, for- stöðumanns samskiptasviðs bank- ans. Sviðum bankans er fækkað um tvö og snerta uppsagnirnar nær all- ar deildir innan bankans. „Það er verið að færa verkefni til og það snertir marga,“ segir Haraldur Guðni. Um er að ræða mestu fjöldaupp- sagnir sem Arion banki hefur ráðist í frá því að bankinn var stofnaður á grunni gamla Kaupþings eftir hrun íslenska fjármálakerfisins haustið 2008. Síðasta fjöldauppsögn hjá bankanum var í september árið 2016, en þá misstu 46 manns vinn- una. Árið 2011 var einnig fjölda fólks sagt upp hjá bankanum, þá 57 starfsmönnum. Í gær var sömuleiðis tilkynnt að Íslandsbanki hefði sagt tuttugu starfsmönnum upp störfum. Fleiri hætta þar störfum fyrir aldurs sakir. Þá sagði Valitor upp tólf starfsmönnum í vikunni. Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Lands- bankans, sagði við mbl.is í gær að ekki stæði til að segja upp fjölda starfsmanna þar á bæ. „Við höfum verið jafnt og þétt að hagræða í starfseminni og það kem- ur mikið til vegna þess að við höfum verið að breyta þjónustunni. Starfs- fólki hefur fækkað mjög mikið hjá okkur síðustu ár,“ sagði hún. „Erfiður dagur“ í Arion banka  Hundrað manns missa vinnuna hjá Arion banka  80% þeirra sem misstu vinnuna störfuðu í höfuðstöðvum bankans  Mestu fjöldauppsagnir sem Arion banki hefur ráðist í frá stofnun bankans Morgunblaðið/Eggert Arion banki Þungt hljóð var í starfsmönnum í höfuðstöðum bankans í gær þegar hundrað manns misstu vinnuna. Benedikt Gíslason Höskuldur Daði Magnússon Þorgerður Anna Gunnarsdóttir „Þetta er ofsalegur fjöldi, meiri fjöldi en við bjuggumst við,“ segir Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, um tíðindi gærdagsins af uppsögnum í Arion banka og Íslandsbanka. Unnur segir að þótt búist hafi ver- ið við skipulagsbreytingum og upp- sögnum í bönkunum hafi umræddur fjöldi komið sér á óvart. „Þetta slær mig illa,“ segir hún. Forstjórinn segir að vinna hafi þegar í gærmorgun verið sett í gang innan Vinnumálastofnunar um það hvernig brugðist verði við þessum uppsögnum. Starfshópur hafi fengið það hlutverk að halda utan um þá vinnu. „Við höfum óskað eftir grein- ingu frá Arion banka um það hve- nær við getum búist við að fá þetta fólk í þjónustu hjá okkur. Þetta er auðvitað allt öðruvísi en við fall Wow því starfsfólk í bankanum er með mislangan uppsagnarfrest og það fær hann greiddan. Mér sýnist að þeir reyni að mýkja þetta eins og hægt er,“ segir Unnur, en mánuði var bætt við uppsagnarfrest starfs- fólks hjá Arion banka. Þá fengu elstu starfsmenn þrjá mánuði auka- lega. Þrátt fyrir að tilkynnt hafi verið um uppsagnir 120 manns í banka- kerfinu í gær og að daginn áður hafi Icelandair ákveðið að segja upp 87 flugmönnum vill Unnur ekki ganga svo langt að líkja ástandinu við efna- hagshrunið fyrir ellefu árum. „Nei, þetta er ekkert hrun. Þetta er hins vegar hagræðing af stærri skalan- um.“ Skelfilegt fyrir starfsfólkið Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrir- tækja, segir uppsögnina hjá Arion banka líklega stærstu hópuppsögn fjármálafyrirtækis frá hruni, en um 700 starfsmönnum viðskiptabank- anna var sagt upp á einu bretti árið 2008. „Þetta er auðvitað skelfilegt fyrir þá starfsmenn sem eru að missa lífs- viðurværi sitt. Margir eru búnir að starfa lengi hjá þessum banka og forverum hans. Þeir sem eru elstir í hópnum eru reyndar að fara beint á eftirlaun og svo eru inni í þessari tölu líka þau sem bankinn hefur ver- ið að semja við undanfarna daga eins og við höfum lesið um í fjöl- miðlum,“ segir Friðbert. Að því er fram kom á mbl.is hafði kvisast út meðal starfsfólks daginn áður að ráðast ætti í uppsagnirnar á fimmtudag. Öll fundarherbergi í höfuðstöðum Arion höfðu verið tekin frá fyrir hádegi undir einkafundi. Friðbert lýsti óánægju sinni í við- tali við mbl.is að SSF hefði ekki ver- ið tilkynnt um hópuppsögnina eins og tíðkast hefði. Í lögum um hóp- uppsagnir segir að atvinnurekandi skuli svo fljótt sem auðið er hafa samráð við trúnaðarmann stéttar- félaga eða, ef ekki hafi verið kjörinn trúnaðarmaður, við annan fulltrúa starfsmanna. „Fulltrúi starfsmanna á staðnum átti fund með mannauðs- stjóranum í gær og segjast þeir því hafa uppfyllt lögin, en þetta er þá spurning um túlkun á lögunum,“ sagði Friðbert í gær. „Þeir bera það líka fyrir sig að lög um hópuppsagnir geti ekki átt við um fyrirtæki sem eru í kauphöllinni. Þetta er algjörlega nýr veruleiki og gerir það að verkum, ef rétt reynist, að þessi lög eru algjörlega tilgangs- laus öllum fyrirtækjum sem skráð eru á markaði. Við munum að sjálf- sögðu kanna þetta,“ segir Friðbert. „Þá segir í lögum um hópupp- sagnir að leitað skuli allra leiða til að fækka uppsögnum. Yfirleitt er hóp- uppsögnum líka beitt í fyrirtækjum sem standa illa og hafa verið í tap- rekstri. Arion banki er langt frá því að vera í taprekstri. Hann vill bara hagnast meira.“ „Þetta er hagræðing af stærri skalanum“  Uppsagnir í bönkum sagðar víðtækari en búist var við Friðbert Traustason Unnur Sverrisdóttir Hópuppsagnir á Íslandi Fjöldi hópuppsagna Fjöldi sem missti vinnuna 2017 2018 2019 17 15 15* 2017 2018 2019 632 864 809* 15 tilkynningar hafa borist Vinnumálastofnun um hópuppsagnir það sem af er árinu 2019 Misstu vinnuna 2017: 38% í fiskvinnslu, 20% í iðnaðarframleiðslu, 14% í verslun Misstu vinnuna 2018: 45% í flutningum, 31% í iðnaðarframleiðslu, 17% í fiskvinnslu þar sem 809 manns var sagt upp störfum *Þ a ð s e m a f e r á ri . H e im ild : V in n u m á la st o fn u n . Í flutningum, 50% Í fjármálastarf- semi, 13% Í ferðaþjónustu, 10% Annað, 27% Uppsagnir í fjármálageiranum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.